Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.03.2005, Qupperneq 13

Læknablaðið - 15.03.2005, Qupperneq 13
FRÆÐIGREINAR / ÞVAG FÆ R A AÐ G E R Ð I R Enduraðgerðir á neðri þvagfærum sökum ótila eftir fyrri þvaglekaaðgerðir Ágrip Valur Þór Marteinsson SÉRFRÆÐINGUR f ÞVAG- FÆRASKURÐLÆKNINGUM Tilgangur: Við þvaglekaaðgerðir hjá konum er stundum notaður þráður eða gerviefni er eyðist eigi, sem aftur býður hættunni heim ef slíkt brýtur sér leið innan þvagvega eða gefur önnur einkenni. Tilgangur rannsóknarinnar var að yfirfara árangur enduraðgerða sökum ótila (corpus alienum) innan eða við neðri þvagvegi eftir þvaglekaaðgerðir. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin sem var aft- ursæ náði yfir tíu sjúklinga sem var vísað til höf- undar vegna þvaglátaeinkenna eftir þvaglekaað- gerðir framkvæmdar af öðrum læknum og þurftu í framhaldinu að undirgangast enduraðgerð vegna staðfestra ótila. Enduraðgerðirnar voru fram- kvæmdar á tímabilinu mars 1996 - maí 2004. Öllum sjúklingunum var fylgt eftir aðgerð og sjúkraskrár yfirfarnar að nýju fyrir þetta uppgjör. Niðurstöður eru gefnar sem miðtala (median) ásamt hæsta og lægsta tölugildi. Niðurstöður: Tíu sjúklingar með miðtölu aldurs 59,5 ár (28-82) undirgengust enduraðgerð. Fjöldi legudaga var 5,5 (1-13) eftir fyrstu enduraðgerð (9 sjúklingar), en 11 (8-11) eftir aðra endurað- gerð (3 sjúklingar). Algengustu einkenni fyrir aðgerð voru þvagfærasýking, þvagleki, verkir og þvaglátaeinkenni. Níu sjúklingar voru greindir við blöðruspeglun. Fjórir höfðu áður farið í aðgerð með togfríu skeiðarbandi (TVT, tension-free vaginal tape, Gynecare™ TVT), fjórir í nálarupp- hengingu (needle suspension) og tveir í ofanklyfta aðgerð. Þessar aðgerðir voru gerðar hálfum til 56 mánuðum áður en enduraðgerð var framkvæmd. Einn sjúklingar þurfti að fara í aðra enduraðgerð tveimur mánuðum síðar og tveir að nýju eftir 14 mánuði. Sjö þurftu að fara í opna enduraðgerð ofanklyfta þar sem ótilar í formi óuppleysanlegra þráða voru fjarlægðir, hjá tveimur var losað um og skorið á togfrítt skeiðarband neðan þvagrásar, hjá þremur var reynt að ná óuppleysanlegum þræði í blöðru við speglun í fyrri enduraðgerð, en allir þeirra þurftu á nýrri aðgerð að halda. Hjá einum var unnt að fjarlægja ótila um skeið. Ótili reyndist innan þvagvega hjá sjö sjúklingum. Hjá tveimur var gerð ný þvaglekaaðgerð og einn fékk Deflux™ (Q MED) innsprautun í þvagrás. Gangur eftir aðgerðir var góður, en einn sjúklingur fékk yfir- borðssýkingu í skurð. Arangur reyndist ágætur Handlækningadeild FSA, 600 Akureyri. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Valur Pór Marteinsson, handlækningadeild FSA, 600 Akureyri. valmart@fsa.is Lykilorð: enduraðgerðir, ótili, fylgikvillar, þvagleki. ENGLISH SUMMARY Marteinsson VÞ Reoperations on lower urinary tract due to foreign body after urinary incontinence surgery Læknablaðiö 2005; 91: 237-41 Objective: The usage of non-absorbable synthetic materials in female incontinence surgery could give rise to serious complications. The aim of this study was to describe results of reoperations due to foreign body near or within lower urinary tract in female patients previously undergoing stress incontinence surgery. Material and methods: This was a retrospective study of patients referred to the author with miscellaneous symptoms after stress incontinence surgery. The reoperations were performed in the period March 1996 to May 2004. All patients were followed after reoperation. Results are given as median, minimum and maximum value. Results: Ten patients with median age 59,5 (28-82) years were reoperated between half and 56 months from the primary operation. Urinary infection, pain, incontinence and various lower urinary tract symptoms were the most common symptoms. Nine patients were diagnosed by cystoscopy. Four had previously undergone tension- free vaginal tape surgery (TVT), four needle suspension surgery and two retropubic colposuspension. Seven were reoperated with open retropubic surgery, in two cases TVT was removed below urethra and non-absorbable suture was removed transvaginally in one patient. Foreign body was within the lower urinary tract in seven cases. In three cases, transurethral endoscopic removal of foreign body was performed without long-term success and further surgery needed. The overall results of the reoperations was very satisfying in terms of complete removal of foreign bodies and regress of symptoms. Convalescence was uneventful and only one patient got superficial skin infection. No other complications occurred. None has needed further reoperations in the follow-up period (6-78 months). Conclusions: Complications after usage of non- absorbable material in stress incontinence surgery could be serious and give chronic urinary symptoms. It is very important for the surgeon to be aware of this in all patients having unsuccessful recovery after incontinence surgery. Key words: reoperations, foreign body, complications, urinary incontinence. Correspondence: Valur Þór Marteinsson, vaimart@fsa.is Læknablaðið 2005/91 237
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.