Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.07.2006, Page 37

Læknablaðið - 15.07.2006, Page 37
SAGA OG LÆKNINGAR Vppgröftur hófst á Skriðuklaustri sumarið 2002. fjárhag Skriðuklausturs, þar með talið lausafé, jarða- og bókaeign (5). Upplýsingar þessar um veraldlegar eignir klaustursins og umsvif út á við eru gloppóttar en augljóst er þó að það varð fljótt mjög auðugt, enda eina klaustrið sem starfrækt var í Austfirðingafjórðungi á þessum tíma. Enn minna var vitað um innri starfsemi eða byggingar þess þar til uppgröfturinn hófst. Engar lýsingar á klaustur- húsunum eru til varðveittar. Allar minjar tengdar því eru horfnar undir yfirborð jarðar nema rúst kirkju sem getið er í úttekt frá árinu 1677 að reist hafi verið á grunni klausturkirkjunnar (6). Þessi rúst er greinanleg enn þann dag í dag, á svoköll- uðu Kirkjutúni sem liggur um 150 metrum neðan við Gunnarshús og gamla bæjarstæðið á Skriðu, enda stóð hún til ársins 1792. Elsta lýsing á kirkju á Kirkjutúninu er varðveitt í úttekt frá árinu 1598. Þar er að líkindum klausturkirkjunni sjálfri lýst eftir að hún var gerð að annexíu frá Valþjófsstað og þess getið að klausturhúsin séu „af fallin“. Þá var liðin tæp hálf öld frá því klausturlíf lagðist af á staðnum (7). Leitað að rústum klaustursins Löngum var talið að Skriðuklaustur hefði staðið á gamla bæjarstæðinu á Skriðu og að göng hefðu legið frá því að kirkjunni sem staðsett var á Kirkjutúninu. Þó ekki hafi verið vitað með vissu hvar byggingar klaustursins stóðu, hafa fáir dregið tilvist þess í efa. Forkönnun var því gerð á Skriðuklaustri sumarið 2000 í þeim tilgangi að Útlínur uppgrafuma rústa Skriðuklausturs. Læknablaðið 2006/92 545

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.