Læknablaðið - 15.01.2010, Side 3
JlœknaCíaiid áóficvt Ccöeiidum gícdiCega cvn acj
þaá/icvi ianiikiptin á Cídnu cvá
Breytingar í ritstjórn Læknablaðsins
í byrjun desember síðastliðnum urðu manna-
breytingar í ritstjórn Læknablaðsins, Þóra Stein-
grímsdóttir kvensjúkdómalæknir hætti en við tók
Anna Gunnarsdóttir barnaskurðlæknir.
Þóra hefur setið í ritstjórn blaðsins frá 1.
desember 2005 og um leið og henni eru færðar
góðar þakkir fyrir vel unnin störf í þágu blaðsins
þennan tíma býður Læknablaðið Önnu velkomna
til starfa.
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS
Málverkin á forsíðu Læknablaðsins eru eftir Erlu
Þórarinsdóttur (f. 1955). Þau kallast Different
Diamond Cuts (mismunandi demantsskurður) og
eru frá árinu 2009. Hvert verk er 180 cm á hæð og 80
cm á breidd, málað með olíulit á striga. Tilvísun Erlu í
demanta er af margræðum
toga, bæði er um að ræða
sérstakan náttúrulegan
efnivið og háþróað handverk
sem á sér langa sögu en
einnig tengingar við form- og
fagurfræði. Að auki vísar
litaval og málunartækni
listamannsins til markvissrar
samræðu við málverkið sem
miðil í sjálfu sér, sögu þess
og möguleika. Erla talar um
að verkin hafi sprottið fram
í þeirri óreiðu sem ríkt hefur
á íslandi og að í þeim felist
ákveðin þrá eftir fasta eða
kjarna. Málverkin voru til
sýnis í haust á sýningunni
Mandala í Gerðarsafni en
þar voru sýnd verk nokkurra íslenskra listamanna
sem hafa unnið með ólíkar birtingarmyndir hring- og
kristalformsins. Þar var gengið út frá þeirri hugmynd
að maðurinn leiti síendurtekið í samhverfuna því þar
felist birtingarmynd innra jafnvægis. Verk Erlu áttu vel
heima í því samhengi, því hún vinnur í sinni myndlist
með samband efnis og anda. ( þrívíðum verkum sýnir
Erla abstraktform sem þó kunna að hafa tengingu við
eitthvað lífrænt eða líkamlegt. Þetta eru oft á tíðum
granítskúlptúrar sem eru sýndir á gólfi. Málverk Erlu
byggjast á einföldum abstraktformum og hreinum
litum. Hún notar iðulega
blaðsilfur og nýtir sér
eiginleika málmsins til
að skapa áferð og dýpt
á flötu yfirborði. Þá nær
hún með þessari tækni að
kalla fram sérstaka birtu í
verkunum sem gæðir þau
dulúð og krafti. Það er
athyglisverð upplifun að
njóta þeirra í eigin persónu,
þau kallast í hlutföllum á
við mannslíkamann og
bregðast við hreyfingu
áhorfandans. Endurvarpið
breytist eftír því hvar maður
stendur og þau virkja
rýmið í kring á hljóðlátan
en spennandi máta. Erla
sem er búsett hér á landi hefur einnig dvalið töluvert í
Kína en menning Austurlanda fjær hefur heillað hana
um langa hríð og má greina áhrif þaðan leynt og Ijóst í
verkum hennar.
Markús Þór Andrésson
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICALIOURNAL
www. laeknabladid. is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104 - 564 4106
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Jóhannes Björnsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Anna Gunnarsdóttir
Bryndís Benediktsdóttir
Engilbert Sigurðsson
Gunnar Guðmundsson
Inga S. Þráinsdóttir
Tómas Guðbjartsson
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarþhéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og Ijósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1700
Áskrift
9.500,- m. vsk.
Lausasala
950,- m. vsk.
Prentun, bókband
og pökkun
Prentsmiðjan Oddi
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition og
Scopus.
The scientific contents of the
lcelandic Medical Journal are
indexed and abstracted in
Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition and
Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2010/96 3