Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.2010, Page 15

Læknablaðið - 15.01.2010, Page 15
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKN er þess vegna lítið þó að sértækið sé gott, 97% í þessari könnun ef miðað er við <20 pg/L. Mjög lágt ferritín bendir þannig eindregið til lítilla eða engra járnbirgða en eðlilegt eða hátt ferritín úti- lokar ekki járnleysi. CHr <23 pg er einnig mjög sértækur mælikvarði á járnleysi, 99%, og sTfR- ferritín-vísir >18 og Tómasartafla fylgir á eftir með 92% sértæki. Með því að nota aðrar forsendur mætti enn auka sértækið á kostnað næmis eða öfugt. Ef til dæmis væri miðað við forsendurnar S-Ferritín <12 pg/L, MCV <76 fL eða CHr <21 pg yrði sértæki þessara rannsókna 100% því að allir þátttakendur sem höfðu svo lágar niðurstöður reyndust járnlausir við smásjárskoðun. Næmið félli hins vegar undir 50%. Skilvirkni rannsókna segir til um hve oft þær segja rétt til um það atriði sem þeim er ætlað að skera úr um, í þessari könnun járnhag. Skil-virkni þeirra rannsókna, sem hér er fjallað um, reyndist 76-91% hjá öllum þátttakendum án tillits til bólgusvörunar miðað við forsend- urnar í töflu III. Ferritín <20 pg/L og CHr <23 pg reyndust skilvirkustu einstöku rannsóknirnar. Af reiknuðum mælikvörðum var sTfR-ferritín-vísir skilvirkastur. Ferritín reyndist skilvirkari mæli- kvarði á járnskort en sTfR í þessari könnun. í öðrum könnunum, þar sem þessar rannsóknir hafa verið bornar saman, hefur sTfR reynst betri en ferritín í sumum10-16-21-23 en ekki í öðrum,15-17-18 ef til vill vegna mismunandi þýðis. Kannað var hvort bólgusvörun hefði áhrif á notagildi rannsóknanna með því að athuga næmi, sértæki og skilvirkni þeirra við greiningu járn- skorts auk mælikvarða Youdens hjá þátttakendum með CRP annars vegar <6 mg/L og hins vegar >6 mg/L. f töflu III sést að sértæki allra rannsóknanna var mjög gott, 90-100%, hjá þeim sem höfðu CRP <6 mg/L en ekki eins gott hjá hinum. Næmi og skilvirkni rannsóknanna voru hins vegar síðri og áhrif bólgusvörunar á þá þætti mismunandi eftir rannsóknum. Munur á næmi, sértæki, skilvirkni eða mælikvarða Youdens milli þeirra sem höfðu CRP <6 og 26 mg/L var þó sjaldan tölfræðilega marktækur eins og kemur fram í töflu III. Mælikvarði Youdens (Youden index) segir til um notagildi rannsókna við greiningu sjúkdóms eða sjúklegs ástands.24 Hann hækkar með vax- andi notagildi og getur hæst orðið 1,00. Af þeim rannsóknum sem þessi könnun nær til reyndist Tómasartafla hafa mest notagildi samkvæmt mælikvarða Youdens, 0,75 í óskiptu þýði án tillits til CRP. Hún spáði fyrir um jámskort með 100% næmi hjá þátttakendum með CRP 26 mg/L og 100% sértæki hjá þeim sem vom með CRP <6 mg/L. Af því má álykta að óhætt sé að treysta niðurstöðum sem gefa til kynna járnskort hjá þeim sem hafa CRP <6 mg/L og sömuleiðis niðurstöðum sem benda ekki til járnskorts hjá þeim sem eru með CRP 26 mg/L þegar Tómasartafla er notuð. Tekið skal fram að enginn af þátttakendunum hafði merki um Miðjarðarhafsblóðleysi (thalassaemia) sem getur eins og járnskortur valdið blóðleysi með smáum rauðum blóðkornum. Næst að notagildi kom sTfR-ferritín-vísir sem reyndist aðeins síðri en Tómasartafla, bæði í óskiptu þýði og hjá þátt- takendum með CRP 26 mg/L. Hjá þátttakendum sem höfðu CRP <6 mg/L var sTfR-ferritín-vísir hins vegar aðeins betri mælikvarði á járnskort en Tómasartafla samkvæmt mælikvarða Youdens. Samkvæmt þessu gefur Tómasartafla haldbetri upplýsingar um járnhag en hinar rannsóknirnar. Mynd 4. Meðaltal sTfR- ferritín-vísis og 95% vikmörk eru sýnd fyrir hvert stig afjárnbirgðum í merg. Viðmiðunaríinur fyrir sTfR-ferritín-vísi 11 og 15 eru sýndar. Tölfræðilega marktækur munur (p <0,05) er á milli meðallals af sTfR-ferritín-vísi hjá þátttakendum með öll stig af járnbirgðum. Mynd 5. Meðaltal ferritíns og 95% vikmörk eru sýnd fyrir hvert stig af járnbirgðum í merg. Tölfræðilega marktækur munur (p <0,05) erá milli meðaltals ferritíns hjá þátttakendum með öll stig af járnbirgðum. LÆKNAblaðið 2010/96 1 5

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.