Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2010, Síða 24

Læknablaðið - 15.01.2010, Síða 24
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKN að bera saman nýgengi milli sýslna, kjördæma eða minni eininga. Borið var saman nýgengi milli höfuðborgarsvæðisins (14,3 af 100.000) og landsbyggðarinnar (14,6 af 100.000) og reyndist sá munur ekki marktækur. Tíu meðferðartengd tilvik greindust á rann- sóknartímabilinu. Tvö af þeim voru bráðamerg- frumuhvítblæði, tvö MDS, tvö stjarnfrumna- æxli af gráðu 4 (glioblastoma multiforme), tvö beinsarkmein, eitt sarkmein í mjúkvef og eitt bráðahvítablæði af óskilgreindum uppruna. Tvö af meðferðartengdu tilvikunum greindust hjá sama einstaklingnum, MDS og síðar bráða- mergfrumuhvítblæði. Að meðferðartengdu tilvikunum frádregnum voru 10 börn með þekkta áhættuþætti fyrir krabbameinum, sex með taugatrefjaæxlager, tvö með Downs-heilkenni og tvær stúlkur með XY-litningagerð og pure gonadal dys- genesis. Börnin með Downs-heilkenni greind- ust með bráða eitilfrumuhvítblæði og bráða mergfrumuhvítblæði en stúlkurnar með XY litningagerðina greindust báðar með kyn- kirtilskímfrumnaæxli (gonadoblastoma) í eggja- stokkum með illkynja frumubreytingum. Af þeim sex sem voru með taugatrefjaæxlager voru tvö með sjóntaugaræxli (optic glioma) og önnur æxli í heilavef (other glioma), eitt með sjóntaugaræxli og stjamfrumnaæxli, eitt með æxli í heilavef, eitt með stjamfrumnaæxli og eitt með aftanskinu taugatrefjasarkmein (retroperitoneal neurofibrosarcoma). Umræða í þessari rartnsókn var leitast við að varpa ljósi á nýgengi krabbameina hjá bömum á Islandi. Er þetta fyrsta rannsóknin sem birtist hér á landi um þetta efni. Aldursstaðlað nýgengi krabbameina hjá börnum á íslandi á rannsóknartímabilinu var 14,5 af 100.000 börnum <18 ára og hefur það haldist nokkuð óbreytt frá árinu 1981. í sjaldgæfum sjúkdómum eins og krabbameinum hjá börnum geta verið miklar tilviljanasveiflur á nýgengi milli ára. Sérstaklega á það við þegar þýðið er fámennt eins og á íslandi. Því ber að taka með varúð breytileika í nýgengistölum milli ára. Langt rannsóknartímabil eins og í þessari rannsókn minnkar þó áhrif tilviljana á nýgengisútreikninga. Erlendis er hefð fyrir því að skilgreina krabba- mein á aldursbilinu 0-14 ára sem krabbamein hjá börnum (childhood cancer) en krabbamein á aldursbilinu 15-19 ára sem krabbamein hjá unglingum (adolescent cancer). í okkar rannsókn var hins vegar miðað við aldursbilið 0-18 ára sem er sá aldurshópur sem meðhöndlaður er af barnalæknum á íslandi, oftast á Barnaspítala Hringsins og í norrænu samstarfi. Ef heildar- nýgengi krabbameina hjá börnum 0-14 ára á íslandi (13,6 af 100.000) er borið saman við nágrannaþjóðirnar er það sambærilegt við niðurstöður frá Evrópu (13,1 af 100.000)3 og Bandaríkjunum (15,3 af 100.000).2 Rannsókn þessi var lýðgrunduð og að auki voru allar sjúkraskrár sjúklinga yfirfarnar. Af þeim sökum eru faraldsfræðilegu upplýsingarnar mjög áreiðanlegar í rannsókninni og að öllum líkindum nákvæmari en upplýsingar í rannsóknum um faraldsfræði krabbameina í börnum hjá ná- grannaþjóðum okkar. Árið 1981 hófu Norður- löndin samstarf um flokkun, skráningu og meðferð krabbameina hjá börnum með stofnun Nordic Society of Pediatric Hematology and Oncology (NOPHO). Hefur þessi samvinna meðal annars auðveldað rannsóknir á árangri meðferðar og samanburð á milli Norðurlandanna. Þær upplýsingar sem sendar hafa verið til NOPHO hafa verið í höndum barnalækna Landspítala þannig að börn með staðbundin sortuæxli sem fjarlægð voru utan spítala og unglingar sem meðhöndlaðir voru á fullorðinsdeildum í upphafi rannsóknartímabilsins voru ekki öll tilkynnt til NOPHO. Á undanförnum árum hafa langflest krabbameinstilvik hjá börnum sem þurfa meðferð komið til meðhöndlunar á Bamaspítala Hringsins. Krabbameinsskrá íslands skráir öll illkynja mein auk góðkynja meina í miðtaugakerfi og góðkynja mein í kynkirtlum og beinum. Flokkunarkerfi ICCC-3 tekur ekki með góðkynja æxli í kynkirtlum og beinum. Alls voru því 24 tilvik undanskilin frá rannsókninni með slík mein. Að auki voru tvö meðferðartengd MDS tilvik ekki tilkynnt til Krabbameinsskrár íslands en MDS er sjúkdómshópur sem krabbameinsskrár hafa átt erfitt með að afla upplýsinga um og henda reiður á. Ekki reyndist vera marktækur munur á nýgengi drengja og stúlkna. Þrátt fyrir það er vel þekkt að drengir eru almennt í meiri hættu á að fá krabbamein heldur en stúlkur.5' 15 Áhugavert var hversu mikið oftar drengir fá eitilfrumukrabbamein en stúlkur. Ástæður þess að drengir greinast oftar með krabbamein en stúlkur eru óþekktar. Eins og búist var við var aldursdreifing krabbameina í bernsku sú sama og sýnt hefur verið fram á í erlendum rannsóknum. Algengust eru þau hjá börnum 1-2 ára og 16-17 ára. Yngstu börnin fá fyrst og fremst hvítblæði og æxli upprunnin frá óþroskuðum forstigsfrumum sem 24 LÆKNAblaðið 2010/96

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.