Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.2010, Page 41

Læknablaðið - 15.01.2010, Page 41
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKN Takmarkanir á rannsókninni Fyrir kom að atriði voru ekki skráð í mæðraskrá kvenna, svo sem hæð eða þyngd og að upp- lýsingar vantaði til dæmis um áætlað blóðtap í aðgerð, gildi á blóðrauða fyrir eða eftir aðgerð og hvernig fylgjan var fjarlægð. Þar sem rannsóknin er afturvirk er mögulegt að upplýsingar hafi að einhverju leyti verið vanskráðar, svo sem að kona hafi fengið sýklalyf í aðgerð en það ekki skráð og að leg hafi verið tekið út í aðgerð en það ekki skráð. Nákvæmari niðurstöður fyrir gjöf sýklalyfja og einnig á meðhöndlun legs mætti vissulega nálgast betur með framsýnni rannsókn en því var ekki við komið að þessu sinni. Gildi á blóðrauða eftir aðgerð var ekki alltaf mælt á sama tíma eftir aðgerð. Hjá flestum var það mælt um sólarhring eftir aðgerð, en tíminn gat verið frá hálfum til tveimur sólarhringum eftir aðgerð. Einnig var mismunandi hversu löngu fyrir aðgerð blóðrauði var mældur, yfirleitt nokkrum klukkustundum fyrr. Rannsóknin var námsverkefni eins höfimdarins (HV) sem þá var læknanemi við læknadeild Háskóla Islands. Niðurlag Keisaraskurður er algeng aðgerð sem almennt er talin hættulítil bæði af heilbrigðisstarfsfólki og almenningi. Tíðni fylgikvilla er þó umtalsverð þar sem um þriðjungur kvenna fær einhvern fylgikvilla í tengslum við keisaraskurð og eru meiri líkur á fylgikvilla ef um bráðaaðgerð er að ræða. Ekki er einungis hætta á fylgikvillum í tengslum við aðgerðina sjálfa heldur eru seinni tíma vandamál einnig aukin. Þannig er til dæmis talin vera aukin hætta á andvana fæðingu hjá þeim konum sem hafa áður fætt með keisaraskurði. Skýringar á því mætti hugsanlega rekja til verra æðakerfis í legi vegna örmyndunar, meiri hættu á óeðlilegri staðsetningu fylgju og verri þroskun totuæðakerfis (villous tree) í fylgju.19 Þá eru auknar líkur á inngróinni fylgju (placenta acreta) sem getur valdið stjómlausri og lífshættulegri blæðingu við fæðingu auk þess sem líkur á legnámi við næstu fæðingu eru auknar. Keisaraskurðir eru heldur ekki hættulausir fyrir barnið því auknar líkur eru á öndunarerfiðleikum ef valkeisaraskurður er gerður fyrir 39 vikur.20 Fyrir kemur að skorið er í húð barns þegar legskurður er framkvæmdur.21 Keisaraskurður er með algengustu aðgerðum sem framkvæmdar eru á Landspítala í dag. Þótt öryggi þeirra sé sífellt að aukast þarf þó ávallt að hafa í huga að engin aðgerð er án fylgikvilla og mikilvægt að ígrunda vel ábendingu fyrir aðgerð. Þakkir Þakkir fá Anna Haarde, skrifstofustjóri kvenna- sviðs Landspítala, Anna Björg Jónsdóttir, fyrrver- andi skrifstofustjóri kvennasviðs Landspítala og Guðrún Garðarsdóttir, ritari Fæðingarskrár. Heimildir 1. Skýrslur frá Fæðingarskráningu fyrir árin 1950, 1960, 1970, 1980, 1985, 1997-2004. Kvennadeild og vökudeild Bamaspítala Hringsins, Landspítala - Háskólasjúkrahúsi, 101 Reykjavík, 1950,1997-2006. 2. Wagner M. Choosing caesarean section. Lancet 2000; 356: 1677-80. 3. Holler, Karin. l.stk. kejsersnit, tak! En undersogelse af "Maternal Request" som socio-kulturelt fænomen inden for obstetrikken i Danmark. Mastersritgerð við Gynækologisk- Obstetrisk Afd. D, Odense Universitets Hospital; 2004. 4. Creasy RK, Resnik R, Iams JD. Matemal-fetal medicine: principles and practice. 5 ed. Saunders. Philadelphia 2004. 5. Háger RM, Daltveit AK, Hofoss D, et al. Complications of cesarean deliveries: rates and risk factors. Am J Obstet Gynecol 2004; 190: 428-34. 6. Zelop C, Heffner LJ. The downside of cesarean delivery: short- and long-term complications. Clin Obstet Gynecol 2004; 47: 386-93. 7. Edi-Osagie EC, Hopkins RE, Ogbo V, et al. Uterine exteriorisation at caesarean section: influence on matemal morbidity. Br J Obstet Gynaecol 1998; 105:1070-8. 8. Tran TS, Jamulitrat S, Chongsuvivatwong V, Geater A. Risk factors for postcesarean surgical site infection. Obstet Gynecol 2000; 95: 367-71. 9. Myles TD, Gooch J, Santolaya J. Obesity as an independent risk factor for infectious morbidity in patients who undergo cesarean delivery. Obstet Gynecol 2002; 100: 959-64. 10. Martens MG, Kolrud BL, Faro S, Maccato M, Hammill H. Development of wound infection or separation after cesarean delivery. Prospective evaluation of 2,431 cases. J Reprod Med 1995; 40:171-5. 11. Vermillion ST, Lamoutte C, Soper DE, Verdeja A. Wound infection after cesarean: effect of subcutaneous tissue thickness. Obstet Gynecol 2000; 95: 923-6. 12. Bergholt T, Stenderup JK, Vedsted-Jakobsen A, Helm P, Lenstrup C. Intraoperative surgical complication during cesarean section: an observational study of the incidence and risk factors. Acta Obstet Gynecol Scand 2003; 82: 251-6. 13. Krebs L, Langhoff-Roos J. Elective cesarean delivery for term breech. Obstet Gynecol 2003; 101: 690-6. 14. Chisaka H, Utsunomiya H, Okamura K, Yaegashi N. Pulmonary thromboembolism following gynecologic surgery and cesarean section. Int J Gynaecol Obstet 2004; 84: 47-53. 15. Boyle JG, Gabbe SG. T and J vertical extensions in low transverse cesarean births. Obstet Gynecol 1996; 87: 238-43. 16. National institute for clinical excellence. Clinical guideline: caesarean section. www.nice.org.uk/pdf/ CG013NICEguideline.pdf / apríl 2004. 17. Loverro G, Greco P, Vimercati A, Nicolardi V, Varcaccio- Garofalo G, Selvaggi L. Matemal complications associated with cesariean section. J Perinatal Med 2001; 29: 322-6. 18. Ramadani, H. Cesarean section intraooperative blood loss and mode of placental separation. Int J Gynecol Obstet 2004; 87:114-8. 19. Smith GSC, Pell JP, Dobbie R. Caesarean section and risk of unexplained stillbirth in subsequent pregnancy. Lancet 2003; 362:1779-84. 20. Dónaldsson SF, Dagbjartsson A, Bergsteinsson H, Harðar- dóttir H, Haraldsson Á, Þórkelsson Þ. Öndunarörðugleikar hjá nýbumm sem fæðast með valkeisaraskurði. Lækna- blaðið 2007; 93: 675-9. 21. Smith JF, Hernandez C, Wax JR. Fetal laceration injury at cesarean delivery. Obstet Gynecol 1997; 90: 344-6. LÆKNAblaðið 2010/96 41

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.