Læknablaðið - 15.01.2010, Qupperneq 45
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR
STOFNFRUMURANNSÓKNIR
WMA ályktar um rannsóknir
með stofnfrumum
Hávar
Sigurjónsson
Alþjóðasamtök lækna, WMA, samþykktu ályktun
varðandi stofnfrumurannsóknir á aðalfundi sam-
takanna í Nýju Delhi á Indlandi í október
síðastliðnum. Alyktunin sætir tíðindum af tveimur
ástæðum, annars vegar hefur WMA aldrei sent
frá sér ályktun fyrr um þetta efni og hins vegar
kom frumkvæði að ályktuninni frá siðfræðiráði
Læknafélags íslands. Jón G. Snædal, formaður
siðfræðiráðs LÍ og fyrrverandi forseti WMA, lagði
drögin að ályktuninni eins og hún kom upphaflega
fram og fylgdi henni síðan eftir á aðalfundi WMA
í Delhi.
„Alyktunin er eins almenn og hægt er að hugsa
sér þar sem skoðanir innan WMA um þetta mál
eru mjög skiptar og lagaumhverfi mjög ólíkt milli
landa hvað þetta varðar," segir Jón í samtali við
Læknablaðið.
„Við teljum það töluverðan árangur í sjálfu sér
að WMA skuli hafa ályktað um þetta umdeilda
málefni og þó ályktunin sé almenns eðlis þá felst í
henni stórt skref. Við erum ennfremur mjög ánægð
með að frumkvæðið skuli hafa komið frá íslensku
læknasamtökunum."
I ályktuninni segir að ávallt skuli leitast við
að nota stofnfrumur til rannsókna sem eru
ekki úr fósturvísum, heldur naflastrengsblóði
eða úr vefjum. Jón segir að þessar frumur hafi
takmarkaðra rannsóknargildi en stofnfrumur úr
fósturvísum. „Stofnfrumur úr til dæmis merg geta
einungis orðið að blóðfrumum og ýmis tæknileg
vandamál fylgja því að nota stofnfrumur úr
naflastrengsblóði. Stofnfrumur úr fósturvísum er
auðveldast að meðhöndla og þær geta eðlis síns
vegna breyst í hvaða frumur sem er. Þar eru hins
vegar skoðanir mjög skiptar og verður að taka tillit
til lagalegra, siðferðilegra og ekki síst trúarlegra
sjónarmiða."
I ályktuninni er hvatt til þess að siðferðileg
sjónarmið skuli eftir föngum fylgja alþjóðlegum
„ Við erum mjög ánægð með að frumkvœðið skuli hafa komið
frá islensku lœknasamtökunum, “ segir Jón G. Snœdal
samþykktum. Viðurkennt er að ólíkir hópar hafi
margvíslegar skoðanir á notkun stofnfrumna,
sérstaklega úr fósturvísum, og hvatt er til þess
að notkun þeirra skuli ávallt taka mið af gildandi
reglum um rannsóknir á hverju svæði fyrir sig.
Þá er að lokum kveðið skýrt á um að engar
rannsóknir með fósturvísa skuli fara fram án
skriflegs samþykkis beggja gefenda erfðaefnisins
sem skapaði fósturvísinn.
„Eitt lykilhugtakanna í þessari umræðu er
virðing," segir Jón. „Virðing fyrir mannlegu
fóstri og þeir sem eru hvað mest á móti notkun
stofnfrumna úr fósturvísum til rannsókna beita
þessum rökum. Við tókum upp þennan þráð
og bentum á að þegar um er að ræða fósturvísa
sem ræktaðir eru á rannsóknarstofu, og eru
kannski ekki notaðir við að setja upp í leg, heldur
geymdir í frysti um óákveðinn tíma þar til þeim
er fargað felst í því viss óvirðing. Meiri virðing
er fólgin í því að nýta fósturvísana í gagnlegum
vísindalegum tilgangi."
LÆKNAblaðiö 2010/96 45