Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.01.2010, Qupperneq 46

Læknablaðið - 15.01.2010, Qupperneq 46
■ UMRÆÐUR O G FRÉTTIR LANDSPÍTALINN Tryggja verður gæðin og öryggið Það kemur varla nokkrum manni á óvart að skera þurfi niður kostnað og þjónustu á Landspítala á komandi ári. Niðurskurður hefur verið viðvarandi og að sögn forstjórans Bjöms Zoega hefur gengið vel að ná settum markmiðum þó enn sé uppi krafa af hálfu stjórnvalda að lengra verði gengið í sparnaði og niðurskurði. Lykilorð í umræðunni em einmitt spamaður og niðurskurður. Sumir kjósa að nota fyrra orðið, það er óneitanlegra jákvæðara en „niðurskurður" sem hefur neikvæðan hljóm, felur í sér atvinnumissi og skerðingu á þjónustu. Með spamaði er sýnd ráðdeild og hagsýni, ónauðsynleg útgjöld eru skorin niður og allir hafa það í rauninni jafngott þó dregið sé úr munaði og jafnvel bruðli. Björn Zoéga, forstjóri Landspítala, segir að vissulega hafi spítalinn verið rekinn með ströngu aðhaldi undanfarin ár og mikill árangur náðst í að draga úr kostnaði. „Það hefur verið sparað." Spurningin er hvort lengra verði gengið í meintum spamaði án þess að skerða þjónustu, lækka laun og fækka starfsfólki. Hefja niðurskurð. Svar Bjöms er einfaldlega nei. Það verður ekki gengið lengra án beins niðurskurðar og reyndar er spítalinn þegar kominn út á þá braut því dregið hefur úr þjónustu, laun hafa lækkað, rúmum verið fækkað og framundan eru uppsagnir starfsfólks. Hvort það kemur niður á gæðum þjónustunnar eða skertu öryggi sjúklinga er annað mál að mati Bjöms og hann leggur mesta áherslu að halda í þessa tvo þætti, gæðin og öryggið, þrátt fyrir að óhjákvæmilegt sé að draga úr umsvifum spítalans á flestum sviðum. Tölumar sem Bjöm nefnir í þessu samhengi em háar. Skyldi kannski engan undra þegar um stærsta einstaka vinnustað landsins er að ræða með um fimm þúsund starfsmenn. „A þessu ári höfum við dregið úr kostnaði um 2600 milljónir. Á næsta ári eigum við að spara um 3200 milljónir til viðbótar. Rekstrarvandinn felst að töluverðu Hávar ieyti í gengistapi á árinu upp á 900 milljónir og Sigurjónsson skuldahala frá fyrri árum upp á 1600 milljónir. Við munum því að óbreyttu hefja árið 2010 með neikvæðan höfuðstól upp á 2800 milljónir sem þýðir kostnað í dráttarvöxtum upp á að minnsta kosti 450 milljónir." Spítalinn er að minnka Bjöm segir að ekki sé öll von úti um að ríkissjóður komi til aðstoðar með skuldahalann en hann virðist þó ekki nema hæfilega vongóður um lausn. Svo dráttarvaxtagreiðslurnar séu settar í raunverulegt samhengi er það nær sexföld sú upphæð sem þarf til að ljúka framkvæmdum við kvennadeild spítalans. Nýlega voru stofnuð samtökin Líf til stuðnings kvennadeildinni og fyrsta verkefni samtakanna verður að safna fé til að ljúka endurnýjun deildarinnar. „Það væri óneitanlega betra ef dráttarvaxtagreiðslur stofnxmarinnar gætu nýst við slík verkefni," segir Bjöm. Starfsmenn hafa fundið fyrir niðurskurðinum í launaumslaginu því markvisst hefur verið dregið úr yfirvinnu um kvöld og helgar, fækkað hefur verið á vöktum og reynt að beina meginstraumi sjúklinga inn á dagvinnutíma virkra daga. „Laun allra starfsmanna hafa lækkað nema þeirra allra lægst launuðu," segir Björn. „Það hefur ekki enn komið til beinna uppsagna starfsfólks en við höfum nýtt starfsmannaveltuna til að fækka starfsmönnum. Engir nýir eru ráðnir í stað þeirra sem hætta. Starfsmenn eru jafnmargir nú og fyrir ári síðan. Nú er spítalinn fullmannaður en á næsta ári gerum við ráð fyrir að fækka enn frekar um 200 manns. Það hefur hægt á starfsmannaveltunni í kjölfar hrunsins svo búast má við að til að ná þessari fækkun verði að segja upp um 100 manns á næsta ári." Bjöm dregur enga dul á að með þessum aðgerðum sé spítalinn að minnka. „Það segir sig sjálft. Rúmum er að fækka og starfsfólkinu líka. Þjónustan dregst saman." Ekki er allt svo slæmt að hvergi sjái til sólar. Björn bendir á nýlega könnun Sigurðar Böðvarssonar krabbameinslæknis er hann gerði sem meistaraverkefni við háskólann á Bifröst, en 46 LÆKNAblaðið 2010/96
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.