Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.07.2011, Page 26

Læknablaðið - 15.07.2011, Page 26
Ú R SÖGU LÆKNISFRÆÐINNAR Stadfeldt: danskur og kannski „íslenskur" Reynir Tómas Geirsson reynirg@landspitali.is Læknir, kvenna- og barnasviði Landspítala Hringbraut, 101 Reykjavik. Prófessor í fæðinga- og kvensjúkdómafræði við læknadeild HÍ. (Ritað í dvöl í Jónshúsi og fræðimannsíbúð Alþingis, Kaupmannahöfn, apríl-júní 2011). Maðurinn á myndinni gæti hæglega verið íslenskur og nöfnin gátu, að einu frátöldu, ekki verið öllu íslenskari, Asger Snebjorn Nicolai Stadfeldt. Danskur prófessor í fæðingarhjálp og kvensjúkdómafræðum á 19. öld, frumkvöðull í sínu fagi (mynd 1 og 2). Ekkert sagt í danskri grein um rætur frá Fróni.1 Hvernig gat danskur maður haft þessi nöfn og þetta útlit og ekki tengst íslandi? Sagan hefst 1775. Ekki gat talist skemmtiför að sigla með haustskipi frá íslandi til Danmerkur það árið fremur en önnur. Leiðin var löng, veður rysjótt, farkosturinn lítið og hægfara seglskip, með litlum þægindum. Búast mátti við tveggja vikna ferð ef mjög vel gekk, en mánuður eða tveir voru líklegri. I huga íslensks stúdents, sem hafði komið úr fásinninu í Steingrímsfirði á Ströndum og þaðan úr vondum húsakynnum Skálholtsskóla, hlýtur ferðin þó að hafa verið fyllt spenningi fyrir því sem verða vildi. Snæbjörn Ásgeirsson, prófastssonur frá Stað í Steingrímsfirði, var að loknu stúdentsprófi að halda til Kaupmannahafnarháskóla til náms í lögfræði. Þessi ungi Islendingur tók með tímanum að kalla sig að dönskum sið Asgeirsen Stadfeldt eftir Staðarfjalli ofan við bæinn þar sem hann ólst upp. Allan sinn aldur var hann erlendis, þar sem hann tók hið meira lagapróf (candidatus juris) 1781 með góðri einkunn, varð embættismaður í rentukammerinu (fjármálaráðuneytinu), eftir það embættismaður í Vébjörgum (Viborg) og bæjarfógeti og herdómari í Randers. Hann tók doktorspróf frá Göttingenháskóla í Þýskalandi árið 1801 og varð borgarstjóri í Randers 1804. Til er góð lýsing og úttekt hans á Randersbæ frá 1804. Hann varð dómstjóri (justitsráð) 1809 og lést þar í bæ 1840, orðinn 87 ára að aldri. Sennilega kom hann aldrei aftur til fslands.1-2 Hann hlýtur að hafa verið með best menntuðu lögfræðingum í Danaveldi í þann tíð, virtur áhrifamaður, en kemur ekki við sögu íslands. Snæbjörn var tvígiftur og virðist ekki hafa átt böm með skammlífri fyrri konunni, en með þeirri seinni, Sidsel (eða Cecilie) Margarethe Bay, kaupmannsdóttur frá Randers, átti hann fjögur börn. Hann var kannski ekki afkomendalaus á íslandi heldur, því getið er laundóttur með Margréti Bogadóttur Benediktssonar í Hrappsey (síðar gift síra Jóni Þorlákssyni skáldi á Bægisá). Stúlkan hét Þrúður og var fædd 1772 eða 1773.2 Á öðrum stað er faðir hennar þó kallaður Magnús. Fjórða barn Snæbjarnar var sonurinn Andreas Bay Stadfeldt, heitinn eftir móðurafa sínum, fæddur 1795. Sá varð einnig löglærður, giftist danskri konu og varð borgarstjóri í Rípum (Ribe) 1824-1830, en fluttist þá til Kaupmannahafnar þar sem hann hlaut dómaraembætti í landsyfirréttinum.3 í Rípum fæddist þeim sonur 21. mars 1830 sem fékk hin íslensku nöfn Asger Snebjarn eftir langafa og afa sínum, þó hann væri aðeins íslendingur að einum fjórða hluta. Að auki kom nafnið Nicolai. Þessi fjórðungs íslendingur varð einn af merkustu fæðinga- og kvensjúkdómalæknum Dana. Asger virðist hafa tekið stúdentspróf hjá einkakennara, en settist svo í læknadeild Hafnarháskóla árið 1847. Hann tók eitt ár að eigin ósk til að gegna herþjónustu í fyrra stríði Dana við Prússa vegna Slésvíkur árið 1848 og öðru ári, 1853, varði hann sem kólerulæknir í faraldri í þeirri óheilbrigðu borg sem Kaupmannahöfn var þá. Hann lauk loks læknaprófi 1854.3 Um það leyti var Ignaz Semmelweiss suður í Austurríki-Ungverjalandi að vekja athygli á smitandi orsökum barnsfarasóttar,4 sem kunnugt er með litlum árangri og honum tókst ekki að birta grein sem vakti víðtæka athygli fyrr en 1861. Læknakandídatinn Stadfeldt fékk árið 1863 stöðu sem aðstoðarfæðingalæknir (underaccoucheur) á hinum 350 rúma Friðriksspítala í Breiðgötu, sem þá hafði verið til í 111 ár (stofnaður 1752). Fæðingadeild var á spítalanum allt frá árunum 1756-1759 og þar hafði ekkjudrottning Friðriks V, Júlíane Maríe frá Brúnsvík-Lúneburg-Wolfenbúttel (1729 -1796), gefið á árunum 1782-1785 byggingu og fé til einnar fyrstu spítaladeildar í heiminum til að vista fátækar konur sem ekki höfðu efni á að leita til ljósmóður, heldur dóu sjálfar eða yfirgáfu eða jafnvel deyddu börn sín af því þær gátu ekki séð þeim farborða. Þetta var „Den Kongelige Fedelse Stifelse" í Amalíugötu, rétt hjá Amalíuborg (mynd 3).5'9 Ekkjudrottningin Júlíana vildi bjarga börnunum og kvenna- og barnasvið Ríkisspítalans í Kaupmannahöfn heitir nú eftir henni (Juliane Marie Centret). Víðfrægir húsameistarar, Niels Eigtvedt og Laurits de Thurah, teiknuðu byggingar fæðingastofnunarinnar á árunum um 1782, en Amalíuborg og Viðeyjarstofa eru líka verk Eigtvedts. Asger Stadfeldt tók doktorspróf 1857 og hét ritgerðin „Nogle iagttagelser om glykosurien". Að því búnu fór hann, eins og algengt var með þá sem höfðu efni og ætluðu sér frama, í árslanga námsferð suður um Evrópu, þar sem hann lagði sig sérstaklega eftir fæðingahjálp. Ástandið hvað varðar barnsfarasótt var eins og víðar skelfilegt á þessari fæðingadeild sem sinnti nú fleiri konum en fátækum einstæðum mæðrum Kaupmannahafnar. Fjórtán prósent kvenna sem þar fæddu dóu. Stadfeldt var fljótlega gerður það sem nú mætti kalla deildarlæknir á fæðingastofnuninni og um leið ritstjóri spítalablaðsins. Um þetta leyti fór hann að leggja sig eftir vísindavinnu og kennslu í faginu. Þegar prófessorinn Carl Levy lést 1866 (sem trúði 422 LÆKNAblaðið 2011/97

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.