Læknablaðið - 15.07.2011, Síða 36
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Apótekin gætu tekið virkari þátt í eftirliti
Mikil umræða um misnotkun lyfja
á undanförnum vikum hefur komið
lyfjaávísunum lækna í kastljós
fjölmiðla. Upp hafa komið spurningar
um aðgengi lækna að upplýsingum
um lyfjanotkun sjúklinga sinna, hvort
læknar fari frjálslega með ávísunarrétt
sinn og hvemig hægt sé að nálgast lyf
með svikum og prettum.
Lyfseðla má gefa út á nokkra
mismunandi vegu segir Ólafur Adolfsson
lyfjafræðingur í Apóteki Vesturlands.
„Algengast í dag er að lyfseðill sé
sendur rafrænt í gegnum lyfjagáttina
en hann getur verið handskrifaður,
útprentaður með undirskrift og
staðfestingu læknisins, hann getur verið
sendur í gegnum síma, þó er ekki
heimilt að símsenda ávana- og fíknilyf.
Loks er hægt að senda lyfseðil með
myndsendi, en þó má ekki myndsenda
eftirritunarskyld lyf."
Ólafur segir nokkra veikleika fylgja
myndsendum lyfseðlum. „Apótekið
þarf að staðfesta uppruna viðkomandi
seðils ef hann er myndsendur þar sem
einfalt er að að svindla á upprunanum
og senda svo lyfseðilinn í fleiri en
eitt apótek. Af þessum sökum eru
myndsendir lyfseðlar oftast teknir
með mikilli varúð í apótekum og þeir
skoðaðir vandlega. Það er einnig hægt
að breyta handskrifuðum lyfseðlum ef
læknir gætir ekki að því að fylla hann
út vandlega með því að skrifa ávallt
magn ávana- og fíknilyfja bæði með
tölustöfum og bókstöfum. Læknar í
dag eru hins vegar almennt meðvitaðir
um þessa hættu á fölsunum og fylla
lyfseðlana út af varkárni. Rafræna
lyfseðla er ekki hægt að falsa en þeir
sem eru að reyna að svíkja út lyf verða
sífellt frumlegri í viðleitni sinni. Hvaða
læknir þekkir ekki þá stöðu að vera
beðinn um að endurnýja lyfseðil fyrir
sjúkling sem hann hefur aldrei séð en er
nú orðinn að rödd í símanum sem kann
nafn sitt, kennitölu og jafnvel slitrur úr
sjúkrasögu sinni. Margir góðkunningjar
hafa orðið uppvísir að því að hringja
í lækna og villa á sér heimildir og fá
þannig rafrænan lyfseðil í apótek. Við
þekkjum auðvitað til margra þeirra
einstaklinga sem eru fíklar og gætum
okkar sérstaklega þegar þeir birtast en
fíklar beita öllum ráðum til að verða sér
úti um lyf svo þetta er stöðug barátta,"
segir Ólafur.
Persónuvernd og samkeppnissjónarmiö
Rafræna kerfið má bæta verulega að
mati Ólafs og undir það taka allir
læknar sem Læknablaðið hefur rætt
við og birtist í sjónarmiðum Viðars
Eðvarðssonar barnalæknis sem rætt
er við hér í blaðinu. „Jafn fráleitt og
það hljómar, þá sjá læknar ekki hvaða
lyfjum aðrir læknar hafa ávísað á sama
MediCarrera
Atvinnutækifæri fyrir sérhæfða
lækna og hjúkrunarfræðinga í
Svíþjóð og Noregi
Laus störf innan geðlækninga, barna og unglinga-
geðlækninga, lyfiækninga, skurðlækninga og
heimilislækninga ásamt innan annarra sérgreina
Með markvissu tungumálanámskeiði
Við bjóðum:
■ Varanlega samninga við almenningssjúkrahús eða heilsugæslu
■ Möguleika á að sameina starf og rannsóknir eóa sérhæfingu
■ Hjálp við aó finna húsnæði, skóla og leikskóla
■ Aðstoð við tilfærslu og flutningskostnað
■ Markvisst tungumálanámskeið áður en starf hefst
Fyrir frekari upplýsingar:
Vinsamlega sendið CV til info@medicarrera.com
eða hafið samband með frekari spurningar í tölvupósti
eða síma +34 933 173 715.
www.medicarrera.com
MediCarrera sl, Balmes 191 - 6° la, 08006 Barcelona, Spain
85
432 LÆKNAblaðiö 2011/97