Læknablaðið - 15.06.2012, Page 12
RANNSÓKN
Tafla I. Modified Response Evaluation Críteria in Solid Tumors (mRECtST).
Alger svörun Engin upphleðsla skuggaefnis í æxlum
Hlutasvörun Að lágmarki 30% minnkun á þvermáli lífvænlegs krabbameinsvefs (sem tekur upp skuggaefni) miðað við samanlagt þvermál fyrir meðferð
Stöðugur sjúkdómur Fellur ekki undir hlutasvörun eða versnun á sjúkdómnum
Versnun sjúkdóms Að lágmarki 20% aukning á þvermáli lífvænlegs krabbameinsvefs (sem tekur upp skuggaefni) miðað við samanlagt þvermál fyrir meðferð. Nýtt æxli er sjálfkrafa skilgreint sem versnun sjúkdóms
að meta árangur niðurstigunar á krabbameininu til lifrarígræðslu
var miðað við hvort sjúklingar kæmust á lifrarígræðslulistann
á Sahlgrenska-sjúkrahúsinu í Svíþjóð (sem framkvæmir þessar
aðgerðir fyrir íslendinga) en hjá þeirri stofnun er miðað við San
Francisco-viðmiðin (tafla II) til að velja sjúklinga í lifrarígræðslu.13
Fylgikvillum var skipt í meiriháttar og minniháttar fylgikvilla.
Ef sjúklingur lá inni lengur en tvær nætur í kjölfar inngrips eða
þurfti að leggjast aftur inn eftir útskrift voru ástæður þess skoð-
aðar. Ef ástæðan fyrir lengdri innlögn var æðastíflunarheilkenni
(post-embolization syndrome), blæðingar á stungustað eða annað
minniháttar vandamál tengt inngripinu, var það skilgreint sem
minniháttar fylgikvilli. Hins vegar ef ástæðan var lifrarkýli, gall-
blöðrubólga, blóðsýking, varanleg lifrarbilun, lifrarnýrna-heil-
Tafla II. San Fransisco-viðmið til lifrarígræðslu.
Eitt æxli aö hámarki 6,5 cm í þvermál eða
Að hámarki þrjú æxli, öll minni en 4,5 cm og samtals minni en 8 cm í þvermál
Að auki er hægt að framkvæma IKSS og/eða rafbrennslu til að minnka
krabbameinsvefinn svo sjúklingur falli undir viðmiðin
kenni (hepatorenal syndromé), æðastíflun í lungum eða heila eða
annað sem krafðist skurðaðgerðar vegna inngripsins, var það skil-
greint sem meiriháttar fylgikvilli. Jafnframt var andlát innan 30
daga frá inngripi skilgreint sem meiriháttar fylgikvilli, án tillits
til orsaka.
Niðurstöður
Lifrarfrumukrabbamein
Gerðar hafa verið 16 IKSS, tvær slagæðastíflanir og tvær innæða-
krabbameinslyfjagjafir til að meðhöndla 9 sjúklinga, þar af 7 karla,
með lifrarfrumukrabbamein. Af þeim var einn sjúklingur með
sambland af lifrarfrumu- og gallvegakrabbameini (tafla III, sjúk-
lingur nr. 7). Sjúklingarnir voru á aldrinum 49-86 ára við grein-
ingu og meðalaldur 66 ár. Af 9 sjúklingum voru 5 með skorpulifur.
Tveir sjúklingar höfðu sögu um ofnotkun áfengis, tveir voru með
langvinna lifrarbólgu C sýkingu, einn var með járngeymdarkvilla
Tafla III. Lýðfræði og ástand sjúklinga.
Sjúklingur nr. 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12
Kyn KK KK KK KVK KK KK KVK KK KK KVK KK KK
Aldur 53 58 76 75 59 49 72 86 66 58 54 62
Krabbamein HCC HCC HCC HCC HCC HCC cHCC-CC HCC HCC Krabbalíki Krabbalíki Krabbalíki
Áhættuþættir HCV Áfengi Engir PBC Áfengi HCV Engir Engir Járngeymdar- kvilli Á.e.v. Á.e.v. Á.e.v.
Skorpulifur Nei Já Nei Já Já Já Nei Nei Já Nei Nei Nei
IKSS 4 3 1 1 3 3 1 0 0 1 1 0
Slagæðastíflun 0 0 0 0 0 0 1 1 0 0 2 2
Svæðisbundin krabbameinslyfjameðferð 0 0 0 0 0 0 0 0 2 0 0 0
CLIP 1 1 1 2 2 2 0 2 2 Á.e.v. Á.e.v. Á.e.v.
Child's A A A A B B A A A Á.e.v. Á.e.v. Á.e.v.
MELD 7 10 8 9 10 16 7 9 7 Á.e.v. Á.e.v. Á.e.v.
Portæðaháþrýstingur Nei Já Nei Nei Já Já Nei Nei Nei Nei Nei Nei
Heildarstærð æxlis* 8,5 8,5 5,3 8,1 5,9 12,4 10 20 7,5 18,7 ÓM 22,6
Stærsta æxli* 7 5 3,7 6,2 5,1 7,4 10 15 3,5 5,7 4,4 14,2
Fjöldi æxla 3 2 2 2 2 2 1 >10 4 6 >10 4
Meinvörp Nei Nei Nei I eitla Nei Nei Nei Nei Nei Á.e.v. Á.e.v. Á.e.v.
Æðaíferð Nei Nei Nei Já Nei Nei Nei Nei Nei Á.e.v. Á.e.v. Á.e.v.
IKSS = Innæðakrabbameinslyfjameðferð með slagæðastíflun, CLIP = Cancer of the Liver Italian Program Classification,
MELD = Model for End-stage Liver Disease, KK = Karl, KVK = Kona, HCC = Lifrarfrumukrabbamein,
cHCC-CC = Sambland lifrarfrumu- og gallvegakrabbameins, HCV = Lifrarbólga C, PBC = Gallskorpukvilli, Á.e.v. = Á ekki við,
ÓM = Ómælanlegt
•pvermál mælt i cm
J
336 LÆKNAblaðið 2012/98