Læknablaðið - 15.06.2012, Side 13
RANNSÓKN
Tafla IV. Lifrarstarfsemi og lýsing á æxlum fyrir inngrip.
Fjöldi sjúklinga Child's A 7
Fjöldi sjúklinga Child's B 2
Meðaltal MELD 9,2 (6-40)
Meðaltal fjölda æxla 3
Meðaltal heildarþvermáls æxla 9,6 cm
MELD =Model for End-stage Liver Disease
og einn með frumkominn gallskorpukvilla (primary biliary cirrhos-
is, PBC). Þrír sjúklinganna höfðu ekki sögu um áhættuþætti fyrir
lifrarfrumukrabbameini. Heildarstærð krabbameinsæxlisins var á
bilinu 5,3-20 cm í þvermál. Að meðaltali var heildarstærð æxla 9,6
cm í þvermál og miðgildi var 8,5 cm í þvermál. Meðalfjöldi æxla
voru þrjú og miðgildi tvö (tafla IV). Einn sjúklingur var með svo
mörg æxli að ekki var unnt að telja þau. í því tilviki var fjöldi æxla
skilgreindur sem fleiri en 10.
Lifun sjúklinga var á bilinu 5-28 mánuðir og var meðallifun
15,2 mánuðir og miðgildi lifunar 15 mánuðir. A rannsóknartíma-
bilinu létust tveir sjúklingar. Annar sjúklingurinn hafði gengist
undir eina IKSS en hinn undir eina slagæðarstíflun. Þannig voru
7 sjúklingar með lifrarfrumukrabbamein, sem gengist hafa undir
inngripin, á lífi 1. mars 2011. Tími án versnunar sjúkdóms var á
bilinu 0-28 mánuðir og að meðaltali 11,4 mánuðir og miðgildi 10
mánuðir. Af 7 sjúklingum hafa tveir sýnt merki um versnun á
sjúkdómnum.
Tvisvar varð alger svörun samkvæmt mRECIST og fjórum
sinnum varð svörun að hluta til. Sjúkdómurinn hélst stöðugur í 9
tilvikum en í tveimur tilvikum hélt sjúkdómurinn áfram að versna
eftir inngrip (tafla V). Sumir sjúklingar eru taldir tvisvar í þessum
gögnum þar sem þeir fengu bæði svörun eftir meðferð og síðar
meir átti sér stað versnun á sjúkdómnun. Að meðaltali minnkaði
þvermál æxlanna um 1,2 cm.
Child s-flokkunin hélst óbreytt, annaðhvort sem A eða B, í 15
tilfellum. í eitt skipti mældist lifrarstarfsemi betri þegar sjúkling-
ur fór úr Child's-flokki B í flokk A í kjölfar IKSS. í einu tilviki
versnaði lifrarstarfsemin úr Child's-flokki A í flokk B í kjölfar IKSS
og rafbrennslu. Óvíst er hvort um var að ræða varanlega versnun á
lifrarstarfsemi þar sem sjúklingurinn fór í lifrarígræðslu tveimur
vikum eftir blóðsýnatöku. Child's-skorið var óþekkt í þremur til-
vikum. MELD-skorið breyttist lítið og var meðaltal og miðgildi
þess 8 eftir inngripin. Það var á bilinu 6-9 eftir 11 inngrip og í
kjölfar 6 inngripa var MELD-skorið á bilinu 10-13. MELD-skorið
var óþekkt í þremur tilvikum.
Meinvörp frá krabbalíki
Á rannsóknartímabilinu voru gerðar tvær IKSS og fjórar slagæðar-
stíflanir til að meðhöndla þrjá sjúklinga með meinvörp í lifur frá
krabbalíki, þar af tvo karla (tafla III, sjúklingar nr. 10-12). Aldur
sjúklinga var 54, 58 og 62 ár. Lifun sjúklinganna sem undirgeng-
ust IKSS var 61,156 og 180 mánuðir. í töflu VI er yfirlit yfir æxlis-
svörun krabbalíkismeinvarpanna. Einn sjúklingur með krabbalíki
lést á rannsóknartímabilinu vegna hjartabilunar. Allir sjúklingar
með meinvörp í lifur frá krabbalíki voru á sómatóstatín-hliðstæðu
til að meðhöndla einkenni vegna krabbalíkisheilkennis. Einn
sjúklingur hafði áður verið meðhöndlaður í Svíþjóð með geisla-
virkri sómatóstatín-hliðstæðu. Helsta markmið inngripanna var
að draga úr krabbalíkisheilkenni. Samkvæmt sjúkraskrám dró úr
einkennum krabbalíkisheilkennis í kjölfar 5 af 6 inngripum.
Fylgikvillar
Miðgildi innlagnartíma voru tvær nætur. I 6 tilvikum lá sjúk-
lingur lengur en tvær nætur inni á Landspítala. í einu tilviki var
það vegna tímabundinnar versnunar á krabbalíkisheilkenni og í
5 tilvikum vegna æðastíflunarheilkennis. Að auki var í einu til-
viki valhjartaþræðing ástæða fyrir lengdri innlögn og það er ekki
skilgreint sem fylgikvilli. Auk þess lagðist einn sjúklingur aftur
inn vegna æðastíflunarheilkennis eftir að hafa verið útskrifaður.
Af 26 inngripum hafa minniháttar fylgikvillar átt sér stað í 6 til-
vikum, þar af varð einn sjúklingur tvisvar fyrir minniháttar fylgi-
kvilla. Einn sjúklingur lést 15 dögum eftir að hafa gengist undir
Tafla V. Æxlissvörun og árangur. Lifrarfrumukrabbamein.
Sjúklingur 1. inngrip 2. inngrip 3. inngrip 4. inngrip Lifun* PFS* Á lífi Niðurstigun Lifrarigræðsla Athugasemdir
1 HS EM AS VS 15 10 Já Já Nei VS í eftirfylgni 6 mán. eftir 3. inngrip
2 HS SD AS - 10 10 Já Já Já Rafbrennsla samfara 3. inngripi
3 HS - - - 23 23 Já Nei Nei HS í eftirfylgni einu ári eftir 1. inngrip
4 VS - - - 10 0 Nei Nei Nei Lést 9 mán. eftir 1. inngrip
5 SS SS SS - 15 15 Já Á.e.v. Já Á lifrarígræðslulista fyrir inngrip
6 EM HS ss - 6 6 Já Nei Nei
7 SS' SS - - 25 11 Já Nei Nei VS í eftirfylgni 9 mán. eftir 1. inngrip VS í eftirfylgni einu ári eftir 2. inngrip
8 EE' - - - 5 0 Nei Nei Nei Lést 4 mán. eftir 1. inngrip
9 SD2 SD2 - - 28 28 Já Já Já
PFS = Tími án versnunar sjúkdóms, AS = alger svörun, HS = hlutasvörun, SS = stöðugur sjúkdómur, VS = versnun sjúkdóms, EM = ekki myndgreint milli inngripa, EE = engin eftirfylgni
Á.e.v. = Á ekki við
‘Mánuðir, ’Slagæðastíflun, 2lnnæðakrabbameinslyfjagjöf
LÆKNAblaðið 2012/98 337