Læknablaðið - 15.06.2012, Side 17
RANNSÓKN
Frammistaða Landspítala í forvörnum
gegn bláæðasegasjúkdómum;
þversniðsrannsókn á bráðadeildum
Hallgerður Lind Kristjánsdóttir' læknir, Guðný Stella Guðnadóttir1 læknir, Sigríður Bára Fjalldal1 læknir, Hulda Rósa Þórarinsdóttir2 læknir,
Agnar Bjarnason1 læknir, Óskar Einarsson1 læknir
ÁGRIP
Tilgangur: Bláæðasegasjúkdómar eru alvarlegir og geta verið banvænir
fylgikvillar sjúkrahúsinnlagna. Erlendar rannsóknir sýna að forvarnarmeð-
ferð gegn bláæðasegum er víða ábótavant. Markmið þessarar rannsóknar
var að meta frammistöðu Landspítala í forvörnum gegn bláæðasega-
sjúkdómum hjá inniliggjandi sjúklingum á bráðadeildum fullorðinna.
Efniviður og aðferðir: Þann 2. desember 2009 var farið yfir sjúkraskrár
allra inniliggjandi sjúklinga bráðadeilda Landspítala. Kannað var hvort við-
komandi fengi fyrirbyggjandi meðferð gegn bláæðasegasjúkdómum sam-
kvæmt leiðbeiningum American College of Chest Physicians frá 2008.
Niðurstöðurnar voru bornar saman við árangur annarra landa úr fjölþjóða-
rannsókninni Endorse frá 2008.
Niðurstöður: Inntökuskilyrði uppfyllti 251 sjúklingur. Inniliggjandi sjúk-
lingar á Landspítala höfðu í 47% tilfella ábendingu fyrir forvarnarmeðferð
gegn bláæðasegasjúkdómum. Af þessum áhættusjúklingum fengu 57%
forvörn, eða í 78% tilfella á skurðlækningadeildum og í 26% tilfella á
lyflækningadeildum.
Ályktanir: Árangur skurðlækningadeilda Landspítala var góður þegar
niðurstöður úr Endorse-rannsókninni voru hafðartil samanburðar.
Árangur lyflækningadeilda var hins vegar verri við hliðstæðan samanburð.
Niðurstöður okkar gefa til kynna að bæta mætti frammistöðu Landspítala
í forvörnum gegn bláæðasegasjúkdómum og auka þar með sjúklingaör-
yggi-
Inngangur
'Lyflækningasviöi,
2svæfinga- og
gjörgæsludeild Landspítala.
Fyrirspurnir:
Hallgeröur
Lind Kristjánsdóttir
hallgerdur. Iind@gmail. com
Greinin barst:
16. september 2011,
samþykkt til birtingar:
15. maí 2012.
Engin hagsmunatengsl
gefin upp.
Segamyndun í djúpum bláæðum (deep vein thrombosis)
og blóðsegarek til lungna eru algengir sjúkdómar. Sam-
eiginlega ganga þessir tveir sjúkdómar undir heitinu
bláæðasegasjúkdómar og hér verður eftirleiðis rætt um
þá sem eina heild. í Evrópusambandslöndum eru áætl-
uð yfir 1,5 milljón tilfelli árlega, út frá faraldsfræðilegu
líkani þar sem sjúklingar greinast með sjúkdóminn
í fyrsta sinn, fá endurtekna bláæðasegamyndun eða
látast af völdum þessara sjúkdóma.1 I sömu löndum
er áætlað að yfir 500.000 látist af völdum bláæðasega-
sjúkdóma á hverju ári. Samkvæmt þessu deyja fleiri
árlega af völdum bláæðasegasjúkdóma en af völdum
brjóstakrabbameins, blöðruhálskirtilskrabbameins,
alnæmis og umferðarslysa samanlagt.1-2 Blóðsegarek
til lungna veldur allt að 5-10% dauðsfalla inniliggjandi
sjúklinga.3'4 Minnka má hættuna á myndun bláæða-
sega með fyrirbyggjandi meðferð og er blóðsegarek til
lungna talið vera algengasta dánarorsökin innan spítala
sem hægt er að fyrirbyggja.3-5-7 Klínískar leiðbeiningar
um notkun fyrirbyggjandi meðferðar gegn bláæðasega
hafa verið til staðar í meira en 15 ár. Þrátt fyrir það
er notkun fyrirbyggjandi meðferðar hjá sjúklingum í
áhættu víða ábótavant.8-9 Á árunum 2007-2008 fór fram
alþjóðleg rannsókn (Endorse) þar sem metið var hversu
stór hluti inniliggjandi sjúklinga á bráðadeildum var í
hættu á að fá bláæðasegasjúkdóm samkvæmt klínísk-
um leiðbeiningum frá The American College of Chest
Physicians (ACCP).7-10 í Ijós kom að rúmlega helmingur
(51,8%) inniliggjandi sjúklinga bráðadeilda hafa ábend-
ingu fyrir fyrirbyggjandi meðferð gegn bláæðasega-
sjúkdómum. Af þeim fengu eingöngu 58,5% sjúklinga
á skurðlækningadeildum og 39,5% sjúklinga á lyflækn-
ingadeildum viðeigandi fyrirbyggjandi meðferð.10
Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hversu
margir sjúklingar lyflækninga-, gjörgæslu- og skurð-
lækningadeilda Landspítala hafa ábendingu fyrir að fá
fyrirbyggjandi meðferð gegn bláæðasegasjúkdómum.
Jafnframt var kannað hversu stór hluti þessa áhættu-
hóps fékk viðeigandi meðferð samkvæmt klínískum
leiðbeiningum ACCP.7 Niðurstöðurnar voru bornar
saman við niðurstöður úr Endorse-rannsókninni.10
Efniviður og aðferðir
Rannsóknin er þversniðsrannsókn framkvæmd á
einum degi á inniliggjandi sjúklingum á lyf- og skurð-
lækningadeildum og gjörgæsludeildum Landspítala.
Tilgangurinn var að kanna frammistöðu bráðadeilda
Landspítala í að veita fyrirbyggjandi meðferð gegn
bláæðasegasjúkdómum. Listi yfir inniliggjandi sjúk-
linga á viðkomandi deildum var fenginn klukkan 8 að
morgni þann 2. desember 2009 og sjúkraskrár þeirra
yfirfarnar. Upplýsingum var safnað um lýðfræðilegar
breytur, innlagnarástæðu, fjölda legudaga, áhættuþætti
fyrir bláæðasegasjúkdómum og frábendingar fyrir
fyrirbyggjandi meðferð gegn bláæðasega. Jafnframt var
kannað hvort viðkomandi væri á fyrirbyggjandi með-
ferð og hvort sú meðferð væri viðeigandi samkvæmt
ACCP-leiðbeiningum, líkt og gert var í Endorse-rann-
sókninni (sjá fylgiskjöl 1 og 2 á www.laeknabladid.is)710
Á skurðlækningadeildum voru þeir sjúklingar sem fóru
í stóra eða meðalstóra skurðaðgerð sem krafðist svæf-
LÆKNAblaðið 2012/98 341