Læknablaðið - 15.06.2012, Blaðsíða 18
RANNSOKN
öldrunardeild (nema B4-bráðadeild öldrunar) og sjúklingar á
kvennadeild sem tilheyrðu fæðingardeild voru ekki teknir með í
rannsóknina.
Tölfræði og leyfi
Notast var við einfalda lýsandi tölfræði. Megindlegar breytur
voru settar fram sem miðgildi, fjórðungsbil og fjöldi sjúklinga.
Flokkunargögn voru sett fram sem fjöldi einstaklinga og hlutfall
af hópnum. Gögnum var safnað fyrst á sérútbúin eyðublöð og upp-
lýsingar þá færðar inn í File-Maker Pro 8.0v2 gagnagrunn. Við töl-
fræðiútreikninga var notast við tölfræðiforritið SPSS 19. Tilskilin
leyfi voru veitt frá siðanefnd Landspítala (37-2009) og Persónu-
vernd (2009/654). Engum persónugreinanlegum upplýsingum var
safnað í rannsókninni.
Mynd 1. Val á rannsóknarþýði og orsakir útilokunar.
ingar eða utanbastdeyfingar í meira en 45 mínútur metnir eiga á
hættu á að fá bláæðasegasjúkdóma. A lyflækningadeildum voru
þeir taldir í áhættuhóp sem lögðust inn vegna eða fengu í legu:
1) alvarlega hjartabilun (NYHA-flokkur III/IV) eða alvarlegan
lungnasjúkdóm (SpO2<90% eða pO2<60 mmHg), 2) sjúklingar
sem voru rúmliggjandi eða með skerta fótaferð, auk fyrri sögu um
bláæðasegasjúkdóm, með virkt krabbamein eða í krabbameins-
meðferð, með brátt kransæðaheilkenni, með virkan gigtar- eða
bólgusjúkdóm, með sýkingu eða heilaáfall og 3) sjúklingar sem
lagst höfðu á gjörgæslu í legunni. Þá bárum við árangur Land-
spítala saman við árangur annarra landa úr Endorse-rannsókn-
inni. Afstæðar frábendingar fyrir fyrirbyggjandi meðferð gegn
bláæðasegasjúkdómum með blóðþynnandi lyfjum voru heila-
blæðing, blæðing sem þarfnaðist krossprófunar, blæðandi maga-
eða skeifugarnarsár innan fjögurra vikna, sýking í hjartalokum,
nýrnabilun með gaukulsíunarhraða minni en 30 ml/mín/l,73m2
og blóðflögur færri en 100 þús/pL.
Sjúklingahópur
Sjúklingar 18 ára eða eldri innlagðir á skurðlækninga-, lyflækn-
inga- og gjörgæsludeild voru með í rannsókninni. Útilokaðir voru
þeir sem lögðust inn vegna bláæðasegasjúkdóms, voru á fullum
skömmtum af léttheparíni (low molecular iveight lieparin) eða warf-
aríni, innlagðir til rannsókna, hlutu lífslokameðferð, fóru í aðgerð
þar sem svæfingartími var minni en 45 mínútur eða þar sem
skráning var ófullnægjandi. Sjúklingar á barnadeild, háls-, nef- og
eyrnadeild, húðdeild, geðdeild, líknardeild, endurhæfingardeild,
Niðurstöður
Þann 2. desember 2009 lágu 301 sjúklingur á ofangreindum
deildum. Af þeim uppfylltu 251 inntökuskilyrði og 119 uppfylltu
skilyrði fyrir að fá forvarnarmeðferð gegn bláæðasegasjúkdómum.
Skipting þeirra á deildir má sjá á mynd 1. Aldur, þyngd og lengd
spítaladvalar má sjá í töflu I og innlagnarástæður sjúklinga má
sjá í töflu II. Sjúklingar sem höfðu ábendingu fyrir forvörn gegn
bláæðasega voru eldri og höfðu dvalið lengur á spítala samanborið
við aðra. Skráningu á hæð og þyngd var ábótavant svo einungis
var hægt að reikna líkamsþyngdarstuðul (Body Mass Index, BMI)
hjá hluta sjúklinga. Á lyflækningadeildum voru 14% (n=21) sjúk-
linga með skráða bæði hæð og þyngd en 54% (n=52) á skurðlækn-
ingadeildum og 50% sjúklinga (n=3) á gjörgæsludeildum.
Á lyflækningadeildum voru 47 sjúklingar með ábendingu fyrir
forvarnarmeðferð. Af þeim fengu 26% sjúklinga fyrirbyggjandi
meðferð. Algengasta ábending sjúklinga sem fengu viðeigandi
forvörn var rúmlega og að minnsta kosti einn áhættuþáttur, en
algengasta ábending sjúklinga sem vantaði viðeigandi vörn var
alvarlegur lungnasjúkdómur (tafla III). Á skurðlækningadeildum
voru 67 sjúklingar með ábendingu fyrir fyrirbyggjandi meðferð.
Af þeim fengu 78% forvörn. Hjá þeim sem vantaði viðeigandi for-
vörn var algengara að þeir væru með aðra ábendingu en aðgerð-
ina sjálfa (tafla III). Á gjörgæslu voru 5 sjúklingar með ábendingu
fyrir fyrirbyggjandi meðferð og af þeim fengu fjórir forvörn. Allir
gjörgæslusjúklingar höfðu aðgerð sem ábendingu fyrir fyrirbyggj-
andi meðferð, tveir voru rúmliggjandi og með að minnsta kosti
einn áhættuþátt. Sá sjúklingur sem fékk ekki bláæðasegavörn
var rúmliggjandi með einn áhættuþátt. Hlutlægar frábendingar
Tafla I. Samanburðurá lýðfræðilegum breytum sjúkiinga, háð þvíhvort þeir eiga eða eiga ekki að vera á forvörn gegn bláæðasegasjúkdómum. Gögn eru settfram sem
fjöldi og prósentuhlutfall nema annað sé tekið fram.
Sjúklingar á lyflækningadeild Sjúklingar á skurðlækningadeild Sjúklingar á gjörgæsludeild
Eiga að vera á blóðsegavörn (n=47) Eiga ekki að vera á blóðsegavörn (n=102) Eiga að vera á blóðsegavörn (n=67) Eiga ekki að vera á blóðsegavörn (n=29) Eiga að vera á blóðsegavörn (n=5) Eiga ekki að vera á blóðsegavörn (n=1)
Kyn (konur) 21 (62%) 55 (54%) 37 (55%) 13(45%) 2 (40%) 1 (100%)
Aldur (ár)‘ 78 (63-83) 69 (56-80) 67 (54-77) 57 (39-76) 41 (40-61) 61
Lengd spítala- dvalar (dagar)* 8(2-14) 5 (2-9) 6 (2-9) 2(1-4) 2(1-10) 1
BMI (kg/m2)‘* 23 (19-29) (n=3) 27 (24-31) (n=18) 27 (23-29) (n=39) 26 (24-27) (n=12) 28 (28-37) (n=3) Óþekkt
Þyngd (kg)“* 71 (63-80) (n=24) 78 (62-90) (n=41) 73 (65-87) (n=60) 80 (72-89) (n=17) 89 (75-115) (n=4) 81 (n=1)
'Miðgildi (interquartile range); "BMI=Líkamsþyngdarstuðull, reiknast ekki ef ekki lágu fyrir upplýsingar um bæði hæð og þyngd; "'Þyngd var ekki mæld hjá öllum sjúklingum
342 LÆKNAblaðið 2012/98
J