Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.2012, Page 38

Læknablaðið - 15.06.2012, Page 38
UMFJÖLLUN O G GREINAR Matur er mannsins megin segir heiðursvísindamaður ársins á Landspítala ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Inga Þórsdóttir doktor í næringarfræði var á dögunum útnefnd Heiðursvísinda- maður ársins á Landspítala fyrir rann- sóknir sínar í næringarfræði og ötult starf á því sviði undanfarna tvo áratugi. „Matvælaiðnaðurinn er stærsti iðnaður í heiminum. Framleiðslan á matvælunum, úrvinnsla þeirra, sala og framreiðsla eru tengd miklum og flóknum hagsmunum og margir sem telja sig vera með lausnir á reiðum höndum. Oft eru það viðskipta- hagsmunir sem ráða ferðinni í þeim efnum en ekki næringarfræðilegir. Matur tengist bæði menningu þjóða og trúar- brögðum svo það er ekki auðvelt að breyta venjum sem mótast hafa í aldanna rás, þó nýjar upplýsingar um hollustu komi fram. Þá eru oft háværar raddir fólks sem vinnur ekki á vísindalegum grunni, fólks sem skoðar ekki kerfisbundið gæði rannsókna og niðurstöður þeirra og setur þær ekki í samhengi við heildarmataræði þar sem tekið er tillit til allra þeirra næringarefna sem mannslíkaminn þarfnast. Með því eru skoðanir byggðar á niðurstöðum einnar rannsóknar í stað margra, og tiltekinni vöru er hampað sem heildarlausn á öllum næringarvanda, til megrunar, þjálf- unar, bætts útlits og svo framvegis. Þetta þekkjum við öll sem einkenni á almennri umræðu um næringu og mataræði og til okkar leitar fólk sem hefur orðið illa úti í samskiptum við postula einstrengings- legs mataræðis eða sölufólk ákveðinnar vöru," segir Inga og bætir því við að vísindamenn séu oft tregir til að setja fram fullyrðingar nema að mjög vel rannsökuðu máli en verða fyrir vikið stundum undir í almennri umræðu þar sem aðrir hika ekki við að halda fram staðhæfingum sem oft eru byggðar á veikum vísindalegum grunni. Fyrst og fremst viljum við styðjast við gagnreynda þekkingu í faginu með ítar- legum og fjölþættum rannsóknum og byggja ráðleggingar okkar til stjórnvalda og almennings á traustum niðurstöðum." Inga er fædd og uppalin í Reykjavík, dóttir hjónanna Ragnhildar Helgadóttur og Þórs Vilhjálmssonar, sem bæði eru þekkt af störfum sínum á sviði stjórn- mála og lögfræði. Eftir stúdentspróf frá Menntaskólanum við Hamrahlíð hóf Inga nám í hjúkrun við Háskóla Islands og lauk því 1980. Þá hélt hún til Svíþjóðar ásamt eiginmanni sínum, Stefáni Einarsyni efna- fræðingi, og tveggja ára dóttur og settist fjölskyldan að í Gautaborg þar sem hjónin luku doktorsprófum frá Gautaborgarhá- skóla. Heim sneru þau 9 árum síðar með fjölþætta reynslu og þekkingu í farteskinu. „í doktorsnáminu lagði ég áherslu á klíníska næringarfræði og rannsóknar- verkefni mín snérust um beinar klínískar tilraunir á fólki, glúkósasvar, insúlínbú- skap, hormónabúskap, magatæmingar- hraða, og þegar ég kom heim 1989 var fyrsta hugsunin að setja upp svipaða rannsóknarvinnu. Eg naut liðsinnis Hall- gríms Guðjónssonar meltingarfærasér- fræðings en þrátt fyrir góðan vilja tókst ekki að koma þessu á koppinn. Hér voru ekki stundaðar klínískar rannsóknir í næringarfræði og það þurfti lengri tíma til að undirbúa jarðveginn. Það reyndi talsvert á bjartsýni og seiglu að venjast hinu íslenska umhverfi eftir dvölina í Svíþjóð. Ég hóf störf við Landspítalann sem næringarráðgjafi eldhússins og varð 362 LÆKNAblaðiö 2012/98 síðan yfirmaður eldhússins um tíma og ásamt Valgerði Hildibrandsdóttur og Kol- brúnu Einarsdóttur næringarráðgjöfum töluvæddum við eldhúsið og bjuggum til næringarútreiknaða matseðla. Þær kunnu þetta, Valgerður og Kolbrún, og með þessu sparaðist stórfé við rekstur eldhússins. Síðan var næringarstofa spítalans, sem ég veiti forstöðu, sett á laggirnar en hún hefur heyrt undir ýmis svið spítalans í gegnum árin. Núna höfum við 8 stöðu- gildi sem er í rauninni alltof lítið miðað við eftirspurnina eftir þjónustu okkar. Við vinnum eftir beiðnum frá deildum spítal- ans með næringarráðgjöf fyrir sjúklinga, á göngudeild og legudeildum. Næringarráð- gjafarnir hafa hver sitt sérsvið og ég starfa með þeim en einnig veiti ég forstöðu rannsóknarstofu í næringarfræði þannig að samtals eru hér starfandi um 30 manns við rannsóknir og ráðgjöf í næringar- fræðum. Það er nánast sami fjöldi og var starfandi við Landspítala og Borgarspítala árið 1989 og þörfin fyrir rannsóknir og ráðgjöf hefur margfaldast, svo full ástæða er til að fjölga stöðugildum. Við erum eina einingin í landinu sem rannsakar skipu- lega næringarástand viðkvæmra hópa, eins og ungbarna, skólabarna og unglinga, aldraðra og veikra. Rannsóknarstarfið er að miklu leyti fjármagnað með ótryggum styrkjum til einstakra verkefna og löngu tímabært að renna styrkari stoðum undir starfsemina með föstum fjárveitingum. Við erum nánast eina landið í heiminum þar sem ekki eru tryggðar fjárveitingar til rannsókna á næringu ungbarna. Það er óviðunandi." Fyrstu árin eftir heimkomuna varð nokkurt hlé á rannsóknarstarfi Ingu. „Að- J

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.