Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2012, Blaðsíða 39

Læknablaðið - 15.06.2012, Blaðsíða 39
UMFJÖLLUN O G GREINAR „Þörfinfyrir almenna fræðslu lil þjóíarinnar um að lioll næring sé hvorki dýrari en önnur, né kalli á sérstakt ogflókið mataræði er mjög knýjandi," segir Itiga Þórsdóttir prófessor í næringarfræði og heiðursvísindamaður Landspítala 2012. stæður buðu ekki uppá það og segja má að ég hafi ekki komist á skrið aftur fyrr en ég setti upp rannsókn á næringu ungbarna og fékk til þess styrk frá Rannís 1995-96." A þessum árum sat Inga þó ekki auðum höndum, hún byggði upp kennslu í nær- ingarfræðum við Háskóla íslands og 1997 varð hún prófessor við raunvísindadeild matvæla- og næringarfræðiskorar sem nú heyrir undir heilbrigðisvísindasvið. „Við hjónin eignuðumst líka tvo drengi á þessum árum, fædda 1992 og 1994. En með háskólakennslunni og handleiðslu meistara- og doktorsnema komst skriður á rannsóknirnar og fyrsti doktorsneminn minn útskrifaðist 2002. Ahugi fyrir námi í næringarfræði hefur aukist verulega og frá 2008 hefur verið boðið upp á grunnnám í næringarfræði, auk meistara- og doktors- náms. Upphaflega var rannsóknastofa í næringarfræði heiti sem ég og nemendur mínir settu á rannsóknarvinnu okkar en 2005 var gerður samningur milli Land- spítala og Háskóla Islands um rann- sóknarstofu í næringarfræðum, og þá var þetta starf okkar formlega fest í sessi. Nú eru einir 7 nemar í doktorsnámi í nær- ingarfræðum, þannig að þetta er talsverð umsetning hjá okkur og í þessu er vinna mín að miklu leyti fólgin, að útvega styrki í þessi rannsóknarverkefni og reka rann- sóknastofuna einsog lítið fyrirtæki innan spítalans. Fyrir utan það að stýra verkefn- unum, söfnun rannsóknargagna og úr- vinnslu þeirra, skrifa sjálf og með öðrum, og leiðbeina sem háskólaprófessor." Meðal rannsókna sem Inga hefur tekið þátt í og stýrt eru rannsókn á áhrifum mataræðis til lengri tíma, hvernig fólki reiðir af og hvaða svörun líkaminn gefur við ákveðnu mataræði. „Við höfum skoðað áhrif neyslu á ýmsum fisktegundum, laxi og þorski, áhrifum fiskiolíu ómega-3 og borið saman við kjötneyslu. Þetta er mjög stór rannsókn sem er styrkt af 6. rammaáætlun Evrópusambandsins og niðurstöður hafa birst víða í alþjóðlegum vísindaritum. I þessari rannsókn höfum við skoðað áhrif fiskneyslu á þyngdar- stjórnun, sykurbúskap, blóðfitu, andoxun og fleira. Niðurstöður landskönnunar 2002 sýndu að dregið hafði úr fiskneyslu sem er mjög miður, og síðasta landskönnun sýnir að neyslan hefur staðið í stað, ekki minnkað meira en því miður ekki aukist heldur. Þarna hefur verðlagning á fiski eflaust sterk áhrif en ég held að almenn- ingur geri sér alveg grein fyrir hollustu fisksins. Þá stýrði ég rannsókn á norrænu mataræði með áherslu á nærumhverfið. Þetta er svokallað Öndvegisverkefni og mjög áhugavert." Ein helsta niðurstaðan úr stóru ung- barnarannsókninni sem Inga stýrði 1995- 1997 sýndi fram á mjög lélegan járnbúskap hjá stórum hluta íslenskra barna á aldr- inum 6-12 mánaða. „Við gátum tengt þetta við mikla kúamjólkurneyslu barnanna á fyrsta ári en hún er ekki besta næringin fyrir börnin á þessu aldurskeiði vegna mikils prótíninnihalds. í kjölfar þessa var búin til íslensk stoðmjólk sem inniheldur minna magna kúamjólkurprótína og við- bætt járn. Við vildum nota íslenska kúa- mjólk fremur en flytja inn erlenda stoð- mjólk þar sem íslenska kúamjólkin býr yfir ákveðnum prótín- og fitugæðum vegna minni kynbóta á íslenska kúastofninum. LÆKNAblaðið 2012/98 363
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.