Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2012, Blaðsíða 44

Læknablaðið - 15.06.2012, Blaðsíða 44
UMFJOLLUN OG GREINAR Niðurstaðan er afgerandi og ótvíræð ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Álit Persónuverndar um heimildir lýtalækna og þar með lækna almennt til að láta af hendi persónugreinanlegar upplýsingar um sjúklinga sína er afgerandi og ótvírætt. Þeim er það ekki heimilt nema til komi mjög þrýnir almannahagsmunir sem Persónuvernd álítur að hafi ekki verið til staðar í tilfelli lýtalækna í hinu svokallaða „brjóstapúðamáli" í vetur. Læknablaðið bað um álit nokkurra einstaklinga á niðurstöðunni. Huga vel að ramma stjórnarskrárinnar Sigrún Jóhannesdóttir forstjóri Persónuverndar Aðspurð um yfirlýsingar ákveðinna þing- manna um að nauðsynlegt sé að breyta lögum til að tryggja landlæknisembættinu aðgang að persónugreinanlegum upp- lýsingum telji embættið þörf á slíku, segir Sigrún Jóhannesdóttir forstjóri Persónu- verndar mikilvægt að menn fari varlega. „Það er rétt að löggjafinn hugi vel að ramma stjórnarskrárinnar og þeirri kröfu sem þar er um að einkalíf manna verði ekki skert með lögum nema brýna nauð- syn beri til. Þá er þagnarskylda og trún- aður milli læknis og sjúklings mikilvæg meginregla. Það svar sem Persónuvernd gaf Læknafélaginu byggðist á þessu. Einn- ig því að hvorki varð séð að landlæknir hefði lagaheimild til að safna persónuupp- lýsingum um nöfn og kennitölur allra kvenna með brjóstapúða né hefði hann sýnt fram á að hann þyrfti nauðsynlega að fá þessar upplýsingar. Okkar niðurstaða byggðist ekki á því hvort PlP-púðarnir sem slíkir eru skaðleg vara og hvort þeim konum sem fengu PlP-púðana setta í sig stafaði heilsufarsleg hætta af þeim. Slíkt læknisfræðilegt mat er ekki okkar hlut- verk. Við veittum leiðbeinandi álit í ljósi 368 LÆKNAblaðið 2012/98 laga um þagnarskyldu og um meðferð persónuupplýsinga. Þá bentum við á að finna má svör við mörgum þeirra álitaefna sem risið hafa með gerð hefðbundinnar rannsóknar. Einnig að landlæknir hefur, sem eftirlitsaðili, rík úrræði sem hann getur notað við rannsókn einstakra mála svo sem ef sjúklingar kvarta til hans. Það er fullur skilningur á því að land- læknisembættið þurfti að átta sig á fjölda aðgerða, tegundum og þess háttar, til að geta mótað stefnu og gefið leiðbeiningar, en ekki hvers vegna hann þarf nú að vita um nöfn og kennitölur þessa tiltekna sjúklingahóps. Það er mikilvægt að sjúk- lingar, bæði þeir sem leita til lýtalækna og annarra, fái næga fræðslu. Fræða þarf þá um rétt sinn. Einnig um hugsanlega fylgikvilla og eftir atvikum þarf að halda utan um sjúklinginn eftir að hann útskrif- ast. Þær konur sem hingað hafa leitað hafa vakið máls á þessu. Ein þeirra hafði á orði að hún fengi reglulega sms-skilaboð um að koma með köttinn sinn í bólusetningu en hún hefði aldrei heyrt frá sínum lýtalækni þó 12 ár væru liðin frá því brjóstapúðar voru settir í hana. Hún hefði aðeins heyrt í fjölmiðlum að nauðsynlegt væri að láta fylgjast með þeim. Maður veltir því fyrir sér hvort ekki sé nauðsynlegt að sjálfstætt starfandi læknar, og þá sérstaklega lýta- læknar, haldi betur utan um sjúklinga sína en þeir virðast hafa gert," segir Sigrún Jó- hannesdóttir forstjóri Persónuverndar. J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.