Læknablaðið - 15.06.2012, Blaðsíða 50
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Hreyfingin verður að
vera skemmtileg reynsla
segir breskur heimilislæknir
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
William Bird er heimilislæknir í Ox-
fordshire á Bretlandi sem vakið hefur
heimsathygli á undanförnum áratug
fyrir árangursríkar aðferðir sínar við að
bæta heilsu sjúklinga sinna með því að
ráðleggja hreyfingu. Hugmyndir hans
beinast einkum að hreyfingu utandyra
en jákvæð áhrif gróðurs og náttúrulegs
umhverfis á heilsufar manna er honum
ofarlega í huga.
Bird var gestur og aðalfyrirlesari á mál-
þingi á vegum landlæknisembættisins og
Umhverfistofnunar þann 16. maí, er haidið
var undir yfirskriftinni Er hægt að auka úti-
veru íslendinga? Hann hefur haft forgöngu
um ráðgjafarvinnu fyrir Natural England,
samtök sem eru að þróa nokkurs konar
náttúrulega heilbrigðisþjónustu sem nýtir
hið náttúrulega umhverfi sem uppsprettu
betri heilsu.
Hreyfing er bólgueyðandi
„Það er einkum þrennt sem ákvarðar
heilsufar fólks," segir Bird. „í fyrsta lagi
eru það félagslegar aðstæður, en allar
rannsóknir hafa staðfest að þeir sem eru
vel staddir félagslega með góð tengslanet
fjölskyldu og vina eru yfirleitt betri til
heilsunnar en þeir sem ekki njóta þessa. I
öðru lagi er það hversu góðan aðgang fólk
hefur að grænum náttúrulegum svæðum
til að njóta útivistar í leik og starfi. í þriðja
lagi er það tilgangur en það er mikilvægt
að fólk finni tilgang með því að hreyfa
sig, annaðhvort með því að vinnutengja
hreyfinguna eða tengja hana við leik eða
skemmtun. Við höfum séð af rannsóknum
að fólk sem ekki hefur aðgang að grænum
náttúrulegum svæðum þjáist fremur
en aðrir af krónískri streitu. Krónísk
streita hefur mikil áhrif á hormóna- og
efnabúskap líkamans og ýtir undir bólgur
sem eru nú taldar vera ein af orsökum
margra langvinnra sjúkdóma einsog Als-
heimer, gigtar, hjartasjúkdóma, sykursýki
og offitu. Það er einnig að koma sifellt
betur í ljós að hreyfing og útivera dregur
úr krónískri streitu og er bólgueyðandi.
Það er hins vegar ekki nóg að skipuleggja
græn svæði í borgum. Fólk verður að finna
einhvern tilgang með hreyfingunni. Gott
dæmi um skýran tilgang er ef fólk hefur
tök á að ganga til og frá vinnu um grænt
og fallegt svæði. Ef á hinn bóginn læknir
segir sjúklingi að fara í ræktina og ganga
rösklega í hálftíma á göngubretti þá er
mjög líklegt að það renni út í sandinn á
nokkrum vikum, þar sem tilgangurinn er
óljós og umhverfið lítið hvetjandi."
Jákvæð upplifun er lykilatriði
Bird leggur mikla áherslu á að hreyfingin
hafi samskipti við aðra í för með sér. „Það
verður að fylgja hreyfingunni jákvæð
upplifun. Ef tilgangurinn er einungis að
bæta heilsuna en upplifunin er neikvæð,
brestur flesta úthaldið á nokkrum vikum.
Þá sjáum við flesta falla í gamla farið aftur
þar sem skammtímavellíðan er fengin
með þeim meðulum sem valda streitu
og versnandi heilsu. Reykingar, ofát og
áfengisneysla. Þarna er vítahringur sem
verður að rjúfa og og beina fólki í aðra átt í
leit að vellíðan og streitulosun.
Stærsta vandamálið er þó hreyfingar-
leysi. Ég segi hiklaust að ef við ætlum að
gera aðeins einn hlut til að bæta heilsu
samfélagsins þá er það ekki að draga úr
offitu, sykursýki, kólesteróli og blóðþrýst-
ingi, heldur fá fólk til að hreyfa sig meira.
Hreyfingarleysi skorar hæst sem orsök
fyrrgreindra sjúkdóma. Áður töldum við
að hreyfingin væri góð af því að hún hefði
jákvæð áhrif á lungu, hjarta og æðakerfi.
Það er alveg rétt en mikilvægi hreyfingar
til að halda jafnvægi í efnabúskap frumn-
anna í líkamanum er enn meira."
Bird segir að það teljist hreyfingarleysi
ef einstaklingur hreyfir sig minna en 30
mínútur á viku. „Það hljómar ótrúlega
en í sumum hverfum Lundúna á þetta
við um allt að 40% íbúanna. Þetta er fólk
sem hreyfir sig einungis við að fara inn
og útúr bíl, og inn og útum dyr á heimili
og vinnustað. Það kemur á óvart hversu
margir láta sér þessa hreyfingu nægja."
Rannsóknir hafa sýnt að græn svæði í
borgum nálægt heimilum fólks ýti undir
hreyfingu og útiveru að sögn Birds. „Það
hefur lengi verið vitað að græn svæði hafa
góð áhrif á andlega líðan fólks og draga
úr streitu. Áhrifin eru keðjuverkandi því
fleiri bætast í hópinn eftir því sem fleiri
sjást á ferli. Mjög gott dæmi um slíkt er
einmitt átakið Hjólað í vinnuna hér á ís-
landi. En þá verður líka að tryggja öruggt
umhverfi til hjólreiða, því öryggið til að
stunda útiveru er mjög mikilvægt. Al-
menningsgarðar þar sem hægt er að
stunda alls kyns hreyfingu eru lykilatriði í
því að fá almenning til að hreyfa sig."
Hreyfing sem hluti af daglegu lífi
Ekki er þó allt unnið með því að hreyfa sig
reglulega úti undir beru lofti segir Bird.
Hreyfingin verður að vera hluti af dagsins
önn. „Það er ekki hægt að bæta sér upp
heillar viku hreyfingarleysi við skrifborðið
og framan við sjónvarpið með því að fara
í fjallgöngu á laugardögum. Það er að vísu
betra en ekkert en miklu betra er að ganga
eða hjóla daglega til og frá vinnu, ganga
upp og niður alla stiga sem á vegi manns
verða, og standa upp frá skrifborðinu og
teygja úr sér reglulega yfir daginn. Stað-
374 LÆKNAblaðið 2012/98