Læknablaðið - 15.06.2012, Síða 52
Læknablaðið 1915; 1: 100-1.
OLDUNGADEILD
Úr fórum Steingríms
Matthíassonar
Konan mjólkar,
kýrin slcikir kálf-
inn, (ensk mynd
frá 13. öld).
Steingrímur Matthíasson (1876-1948) var merkur lækn-
ir á sinni tíð. Hann varð cand. med. frá Hafnarháskóla
1902 og bætti þar við sig þekkingu í kvensjúkdóma-
lækningum. Hann var skipaður héraðslæknir í Akur-
eyrarhéraði og gegndi því í 30 ár en vann jafnframt á
sjúkrahúsinu á Akureyri. Síðustu æviárin sinnti hann
læknisstörfum í Danmörku, lengst af í Nexo. Stein-
grímur tileinkaði sér óhræddur nýjungar í læknisfræði
eftir því hann hafði tök á. Hann var ötull við að auka
þekkingu sína í námsferðum víða um heim og deildi
vitneskju sinni gjarnan í ferðasögum í Læknablaðinu.
Ekki er að undra að syni þjóðskáldsins Matthíasar
Jochumsonar veittist létt að skrifa. Eftir hann liggur
mikið efni, bæði bækur og greinar sem margar voru
birtar í Læknablaðinu. Skrif hans einkennast af létt-
leika og eru skemmtileg aflestrar. Sumum læknum
þótti víst nóg um kímnina sem oft brýst fram í
skrifum hans.
Graviditas prolongata
Það er, að eg held, algeng trú meðal
alþýðu, að kona geti haft fram yfir svo
vikum skifti. Og einu sinni var mín leitað
til konu, sem hélt því fram, að hún væri
búin að hafa næstum heilt ár fram yfir
tímann, en að fóstrið væri löngu dautt.
Þetta sýndi sig nú að vera cystoma ovarii
en engin barns þykt. Hvað eftir annað
heyri eg konur halda því mjög fast fram,
að þær hafi töluvert fram yfir, og algengt
að yfirsetukonur kenna því um, að fæð-
ingin sé erfið, kollurinn svo stór o. s. frv.
Hvað er nú satt í þessu?
Próf. Leopold Meyer kendi okkur, að
takmörk eðlilegs meðgöngutíma geti
verið breytileg frá 260 og upp í 304 daga
eða meira. Og mér skildist að hann, eins
og aðrir höfundar nútímans, sem eg hefi
lesið, væri vantrúaður á að konur hefðu
fram yfir í þeim skilningi, að fóstrið yrði
meir en fullburða, og þar af leiðandi
gæti valdið fæðingarerfiðleikum. I þeim
bókum, sem eg hefi aðgang að, hefi eg
ekki getað fundið neitt ítarlegt um þetta
efni, og þætti vænt um, ef einhver vildi
benda mér á eitthvað þar að lútandi.
En mér er nær að halda, að alþýða hafi
í þessu, sem mörgu öðru, rétt fyrir sér,
hvað sem vísindamenn segja, og það sem
styrkir mig í þeirri trú er það, að um dýr,
einkum kýr, er það furðu algengt, að þær
hafi þetta mánuð og jafnvel stöku sinnum
2-3 mánuði fram yfir, og kálfarnir eru þá
stærri og fæðingarnar erfiðari en ella.
Um daginn skeði nú sá merkisviðburð-
ur, að kýr fæddi kálf og hafði gengið með
hann 4Ví - fjóran og hálfan - mánuð fram
yfir tímann, eða í 13% mánuð. Reyndar
fæddi hún ekki hjálparlaust, heldur varð
Sigurður dýralæknir fyrst með lyfjum og
síðan með verkfærum að koma skriði á
kálfinn út úr beljunni (og Sigurður bölvaði
mikið yfir þeim erfiðleikum). Eg fór að
skoða kálfinn eins og hálfur bærinn, því
sagan gekk að fæddur væri veturgamall
griðungur. Hann var mesta flykki, nokkuð
yfir 100 pund (en það er stór kálfur, sem
er 75 pund). Einkum voru klaufirnar fer-
legar og hausinn. Annars var hann allur
á lengdina. - Nú vildu margir efast um,
að tímatalið væri rétt, þrátt fyrir það þó
áreiðanlegur maður, eigandi kýrinnar,
fullyrti, að ómögulegt væri að kýrin hefði
haft mök við annan tarf en þann eina
vissa á tilteknum tíma. Hvað sem því líð-
ur, þá tek eg Sigurð dýralækni trúanlegan
um, að kýrin hafi haft eins feykilega fram
yfir og fyr er getið, því um það er hann
í engum vafa. Hann segir kúna vera af
vissu kyni, sem er ættað úr Hörgárdal og
sem illræmt er orðið fyrir þann óvana, að
hafa ætíð langt fram yfir. - Kálfurinn stóri
var lifandi áður en honum var hjálpað
fram og enginn veit, hve lengi hann hefði
dúsað í kúnni, hefði hann fengið að vera
í friði, en eins og eðlilegt er, var mönnum
farið að lengja eftir honum og kúnni farið
að líða illa.
Við vitum að kýrnar og konurnar hafa
svipaðan meðgöngutíma „fjörutíu (þ. e.
vikur) konan og kýrin", eins og stendur í
vísunni. Getur þá ekki líka verið svipað
um konur og kýr, að hvortveggja hafi
stundum fram yfir og að það geti valdið
fæðingarörðugleikum, eins og fólkið segir.
Eg spyr.
Akureyri 12. apríl 1915.
Steingr. Matthíasson
Fyrstu keisaraskurðir á íslandi
Jón Hjaltalín landlæknir gerði fyrsta keisaraskurðinn hér á
landi 24. júní 1865. Móðirin, mjög smávaxinn krypplingur, dó af
völdum aðgerðarinnar og barnið "komst ekki til aldurs".
Hinn 29. ágúst 1910 gerði Matthías Einarsson keisaraskurð
á St. Jósepsspítala í Reykjavík og farnaðist móður og barni vel.
Drengurinn sem fæddist var Júlíus Steingrímsson síðar rafveitu-
stjóri í Keflavík.
Hinn 2. júlí 1911 gerði Steingrímur Matthíasson velheppnaðan
keisaraskurð á Akureyri. Barnið sem þá kom í heiminn var Stein-
grímur J. Þorsteinsson prófessor, og var skírður í höfuðið á líf-
gjafa sínum.
Frá þessu greinir Vilmundur Jónsson landlæknir
í samnefndri grein i Læknablaðinu 1954; 38:113-8.
(gjnldungadeild
A-' Læknafélags íslands
Stjórn Öldungadeildar: Öldungaráð Umsjón síðu: Páll Ásmundsson
Sigurður E. Þorvaldsson formaður, Jón Hilmar Hörður Þorleifsson, Jóhann Gunnar
Alfreðsson ritari, Tryggvi Ásmundsson gjaldkeri, Þorbergsson, Höskuldur Baldursson, Kristín
Bjarni Hannesson, Guðmundur Oddsson Guttormsson, Leifur Jónsson, Páll Ásmundsson
376 LÆKNAblaðið 2012/98