Læknablaðið - 15.10.2012, Side 7
RITSTJÓRNARGREIN
Fiskneysla og forvarnir
Margrét
Leósdóttir
hjarta- og lyflæknir við
hjartadeild Háskóiasjúkra-
hússins á Skáni, Malmö,
Svíþjóð
Margret.Leosdottir@med.lu.se
Nytsemi ómega-3 fitusýra hefur verið
töluvert í umræðunni síðustu misserin.
Nýlega var birt stór safngreining (meta-
analysis) 20 tvíblindra slembirannsókna
með nærri 70.000 þátttakendum þar sem
áhrif ómega-3 neyslu á tíðni hjarta- og
æðasjúkdóma var skoðuð.1 í yfirgnæfandi
meirihluta rannsóknanna var um ómega-3
fæðubótarefni að ræða. Niðurstöður grein-
ingarinnar sýndu engin verndandi áhrif af
ómega-3 fæðubótarefnum, hvorki á dánar-
tíðni né nýgengi hjarta- og æðasjúkdóma.
Staðfesting á gagnsemi fiskneyslu er hins
vegar vísindalega mun sterkari en ómega-3
fæðubótarefna. I nýendurskoðuðum ráð-
leggingum Evrópsku hjartasamtakanna er
sem fyrr mælt með að borða fisk að minnsta
kosti tvisvar í viku til að fyrirbyggja hjarta-
og æðasjúkdóma.2
Fiskur og lýsi hafa gegnum aldirnar
verið mikilvægur þáttur í mataræði ís-
lendinga. Margir hafa leitt líkur að því að
neysla þessara matvæla sé að minnsta kosti
að hluta til ástæða þess að tíðni hjarta- og
æðasjúkdóma hér á landi er tiltölulega lág
miðað við mörg grannlanda okkar. Þó ekki
skorti tröllatrúna á íslenska lýsinu eru áhrif
þess á hjarta- og æðasjúkdóma lítið þekkt
í vísindalegu samhengi. Flestar rannsóknir
sem gerðar hafa verið eru annaðhvort
dýratilraunir eða rannsóknir þar sem líf-
eðlisfræðilegir staðgengilsendapunktar eru
notaðir, svo sem mælikvarðar á bólgu, fitu-
sýrusamsetning í frumuhimnum eða við-
loðunarhæfni blóðflagna. Þess vegna ber
að fagna að í þessu tölublaði Læknablaðsins
birta Atli Arnarson og meðhöfundar grein
um tengsl lýsisneyslu og blóðþrýstings í
stóru úrtaki eldri íslendinga. Niðurstöð-
urnar sýna að lýsisneysla tengist lægri
blóðþrýstingi og má þannig álykta að hún
hafi jákvæð áhrif á heilsu.
Því miður hefur hinni íslensku hefð
fyrir ríkulegri fisk- og lýsisneyslu hnignað
með nýjum kynslóðum. Könnun á mat-
aræði íslendinga 2010-2011 sýndi, eins og
könnunin þar á undan frá 2002, að fisk-
neysla meðal ungs fólks (18-30 ára) er lítil,
eða helmingi minni en í elsta aldurshópn-
um (61-80 ára) miðað við magn (grömm) á
dag.3 Samkvæmt könnuninni borðuðu 41%
ungra karla og 45% ungra kvenna fisk ein-
ungis einu sinni í viku, sjaldnar eða aldrei,
meðan samsvarandi hlutföll í elsta aldurs-
hópnum voru 16% og 10%. Fiskneyslan
á Islandi er ívið meiri en í nágrannalandi
okkar Svíþjóð, þar sem könnun á mataræði
var einnig gerð 2010-2011.4 Munurinn skýr-
ist af meiri neyslu í eldri aldurshópunum
hérlendis en enginn munur var á fiskneyslu
ungs fólks á íslandi og í Svíþjóð. Sérstaða
Islands hvað varðar ríkulega fiskneyslu
virðist því vera að hverfa með komandi
kynslóðum. Gleðilegt er að lýsisneysla á
Islandi hefur aukist frá síðustu könnun.
Munurinn á lýsisneyslu ungra og gamalla
er þó enn meiri en á fiskneyslunni, en ungir
einstaklingar taka einungis þriðjung af því
magni lýsis sem eldra fólkið tekur (g/dag).
Lítil neysla á fiski og lýsi meðal ungs fólks
er áhyggjuefni, í samfélagi þar sem offita og
hreyfingarleysi eru einnig stór vandamál.
Fyrsta og annars stigs forvarnir eru
áhrifaríkasta leiðin til að lækka dánartíðni
hjarta- og æðasjúkdóma.5 Heilbrigðisþjón-
usta á að snúast jafn mikið um að fyrir-
byggja eins og að meðhöndla sjúkdóma.
Slíkt sparar peninga, þjáningar og líf til
langs tíma. Niðurskurður í heilbrigðisþjón-
ustu hefur skiljanlega þær afleiðingar að
lækningu sjúkra er forgangsraðað fram yfir
að viðhalda heilbrigði frískra eða minnka
líkur á að þeir sem hafa náð sér eftir áföll
veikist á ný. Lokun göngudeildar krans-
æðasjúklinga á Landspítala er dæmigerð
fyrir þessa forgangsröðun, en það er mun
„auðveldara" að skera burt slíka þjónustu
en til dæmis að hætta að gera kransæða-
víkkanir hjá þeim sem fá bráða kransæða-
stíflu, þó svo rannsóknir hafi sýnt fram á
að hið fyrrnefnda er mun áhrifaríkari leið
til að bjarga mannslífum til langs tíma.5
Læknar gegna stóru hlutverki í forvarnar-
starfi, ekki síst þegar kemur að því að miðla
upplýsingum til almennings og stjórnvalda
og hafa þannig áhrif á stefnumótun og
ákvarðanatöku um forgangsröðun í heil-
brigðiskerfinu. Ég hvet íslenska lækna til að
gleyma því ekki að axla þessa mikilvægu
ábyrgð á niðurskurðartímum.
Heimildir
1. Rizos EC, Ntzani EE, Bika E, Kostapanos MS, Elisaf MS.
Association between omega-3 fatty acid supplementation
and risk of major cardiovascular disease events: a sys-
tematic review and meta-analysis. JAMA 2012; 308: 1024-
33.
2. Perk J, De Backer G, Gohlke H, Graham I, Reiner Z,
Verschuren M, et al. European Guidelines on cardiovas-
cular disease prevention in clinical practice (version
2012). The Fifth Joint Task Force of the European Society
of Cardiology and Other Societies on Cardiovascular
Disease Prevention in Clinical Practice (constituted
by representatives of nine societies and by invited
experts). Developed with the special contribution of the
European Association for Cardiovascular Prevention &
Rehabilitation (EACPR). Eur Heart J 2012; 33:1635-701.
3. Þorgeirsdóttir H, Valgeirsdóttir H, Gunnarsdóttir I,
Gísladóttir E, Gunnarsdóttir BE, Inga Þórsdóttir I, et al.
Hvað borða íslendingar? Könnun á mataræði íslendinga
2010-2011. Embætti landlæknis, Matvælastofnun og
rannsóknastofa í næringarfræði við Háskóla íslands og
Landspítala-háskólasjúkrahús, Reykjavík, ísland, 2011.
4. Svenska Livsmedelsverket. Riksmaten - vuxna 2010-2011.
Livsmedels- och náringsintag bland vuxna i Sverige.
Livsmedelsverket, Uppsala, Sverige, 2012.
5. Aspelund T, Gudnason V, Magnusdottir BT, Andersen
K, Sigurdsson G, Thorsson B, et al. Analysing the large
decline in coronary heart disease mortality in the Icelandic
population aged 25-74 between the years 1981 and 2006.
PLoS One 2010; 5: e!3957.
Fish consumption and
cardiovascular disease prevention
Margrét Leósdóttir, PhD, cardiologist at the Department
of Coronary Heart Disease, Skáne University Hospital,
Malmö, Sweden
LÆKNAblaðið 2012/98 511