Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.2012, Page 12

Læknablaðið - 15.10.2012, Page 12
RANNSÓKN Tafla I. Meðalgildi, ± staðalfrávik, fyriraldur, líkamsþyngd (kg), hæð (cm), þyngdarstuðul (BMI, kg/m2), orkuneyslu (kcal/dagur), grunnorkuþörf (kcal/ dagur), og slag- og þanbilsþrýsting (mmHg) fyrir alla þátttakendur (n=236). Taflan sýnir einnig þann fjölda þátttakenda sem tók blóðþrýstingslækkandi lyf. Karlar Konur Aldur, ár 74,6 ± 5,9 72,8 ± 5,9 Þyngd, kg 93,9 ± 16,7 74,6 ±13,1 Hæð, cm 177,5 ±7,6 162,9 ±5,6 BMI, kg/m2 29,7 ±4,6 28,1 ± 4,9 Grunnorkuþörf, kcal/dag 1741,3 ±264,5 1329,6 ± 137,0 Slagbilsþrýstingur, mmHg 150,6 ±20,6 139,8 ±18,2 Þanbilsþrýstingur, mmHg 77,9 ± 10,1 74,8 ± 9,5 Notkun háþrýstingslyfja, n 60 64 2393) að láni. Niðurstöður fæðuskráningar voru færðar inn í vef- forrit, byggðu á íslenska gagnagrunninum um efnainnihald mat- væla (ÍSGEM), sem reiknaði út næringarefnainnihald þeirra mat- væla og drykkjarfanga sem skráð voru. Fæðuneysla og næringarefnainntaka var metin með sam- anburði við íslenskar og norrænar ráðleggingar4 um ráðlagðan dagsskammt, meðalþörf, lágmarksskammt, hámarksskammt, auk orkuprósentu fyrir orkugefandi næringarefni. Ráðlagður dags- skammtur af næringarefni uppfyllir næringarþörf langflestra fyrir viðkomandi efni, eða um 97-98% heilbrigðs fólks. Með nær- ingarþörf er átt við að næringarefnið geti sinnt hlutverki sínu fyrir starfsemi líkamans og auk þess viðhaldið eðlilegum birgðum hans. Meðalþörf ákveðins næringarefnis uppfyllir þörf 50% einstaklinga. Lágmarksskammtur segir til um minnsta magn sem kemur í veg fyrir skortseinkenni eða hörgulsjúkdóm. Sá hluti hópsins sem ney tir minna magns af næringarefni en lágmarksþörf segir til um, á þess vegna á hættu að skortseinkenni komi fram. Hámarksskammtur af næringarefni er örugg neysla fyrir langflesta, eða um það bil 97-98% fólks, án ofhleðslu eða eitrunareinkenna. Hluti hópsins sem neytir meira magns af tilteknu næringarefni en hámarks- þörf segir til um, getur fengið eitrunareinkenni ef neysla er lengi svo há.4 Orkuprósenta orkugefandi næringarefnis er skilgreind sem hlutfall orku úr tilteknu næringarefni af heildarorkuinn- töku. Mælingar á blóðþrýstingi Eftir 12 tíma föstu við upphaf rannsóknar var blóðþrýstingur mældur að morgni með sjálfvirkum blóðþrýstingsmæli fyrir upp- handlegg, Medisana S1000 (Medisana AG, Neuss, Þýskalandi). Allar mælingar á blóðþrýstingi voru framkvæmdar af hjúkrunar- fræðingi á meðan þátttakandi sat kyrr og afslappaður í uppréttri setu og hvíldi hægri upphandlegg á borðbrún með olnbogabót í hjartahæð. Tveir hjúkrunarfræðingar önnuðust mælingar í rann- sókninni. Tvær mælingar voru gerðar með tveggja mínútna milli- bili og meðaltal þeirra reiknað út. Ef munur á mælingunum tveim- ur var meiri en 10 mmHg, var þriðja mælingin framkvæmd og meðaltal þriggja mælinga notað. Fyrsta stigs háþrýstingur var skil- greindur sem slagbilsþrýstingur (SBÞ) &140 mmHg og/eða þanbils- þrýstingur (ÞBÞ) a90 mmHg. Einangraður slagbilsháþrýstingur var skilgreindur sem SBÞ al40 mmHg og ÞBÞ <90 mmHg, og einangr- aður þanbilsháþrýstingur sem SBÞ <140 og ÞBÞ a90.5-6 Þátttakendur Tafla II. Meðalneysla, ± staðalfrávik, valinna næringarefna, vitamína, steinefna og fæðuflokka (n=160). Orkuprósenta orkugefandi næringarefna (E%) er einnig sýnd. Karlar Konur Næringarefni D vítamín, gg/dag 11,3 ± 11,3 15,2 ± 18,6 C vitamín, mg/dag 87,6 ±51,0 89,2 ± 56,2 B6 vitamín, mg/dag 1,9 ±0,8 1,5 ±0,6 Fólasín, gg/dag 269,2 ± 125,5 233,6 ± 95,5 Kalk, mg/dag 946,0 ± 375,2 814,8 ±220,7 Magnesíum, mg/dag 290,5 ± 73,0 252,2 ± 56,4 Joð, gg/dag 211,7 ± 135,0 170,5 ± 123,9 Járn, mg/dag 11,0 ±5,9 8,7 ± 4,2 Salt, g/dag 6,9 ± 2,0 5,7 ±1,6 Alkóhól, g/dag 6,9 ±12,0 3,2 ± 5,4 Þrótein, g/kg/dag 1,0 ± 0,2 1,0 ±0,2 Þrótein, E% 18,8 ±3,8 18,0 ±3,1 Fita, E% 37,0 ± 7,0 37,3 ± 5,8 Kolvetni, E% 40,1 ± 6,2 41,5 ±5,3 Unninn sykur, E% 6,9 ± 3,6 7,1 ±3,8 Trefjar, E% 1,8 ±0,5 2,0 ± 0,6 Langar ómega-3 fitusýrur, g/dag 1,3 ±1,2 1,5 ±1,8 Fæðuflokkar og matvæli, g/dag Mjólkurvörur 308,7 ±219,7 270,0 ± 150,5 Ostar 31,9 ±25,7 31,3 ±24,7 Fiskur 98,0 ±71,0 71,9 ±47,5 Lýsi 3,77 ± 4,62 4,82 ± 5,45 Ávextir og grænmeti 207,8 ± 168,6 230,0 ±145,2 Ávextir 107,0 ± 115,0 127,3 ±115,2 Grænmeti 100,8 ±83,6 102,7 ±71,7 voru fastandi og höfðu ekki tekið inn blóðþrýstingslækkandi lyf fyrir mælinguna. Blóðþrýstingslækkandi lyf voru skilgreind sem lyf í ATC-flokkum C02-C04 og C07-C09. Vanskráning Til þess að minnka skekkjur voru þeir sem vanskráðu mataræði ekki hafðir með í útreikningum. Vanskráning var metin út frá orkuinntöku, grunnorkuþörf og hreyfistuðli (physical activity level) með því að nota formúlu sem nefnd hefur verið Goldberg-stýfing tvö (Goldberg cut-off2)7'9 Formúlan gefur það hlutfall orkuinntöku og orkuþarfar sem talið er lágmark til að viðhalda eðlilegu lífi. Þátttakendur sem voru fyrir neðan þetta hlutfall eða stýfingarmark (cut-off limit) voru taldir hafa vanskráð mataræðið. Hreyfistuðullinn 1,58 var fenginn út frá viðmiðunargildum fyrir sama aldurshóp sem byggð eru á efnaskiptarannsóknum sem notast hafa við tvímerkt vatn.8 Grunnorkuþörf var reiknuð út með Harris-Benedict-jöfnunni.10 Leiðrétt var fyrir fitumassa með því að nota 50% leiðréttingarþátt hjá offeitum einstaklingum (þyngdar- stuðull a30 kg/m2). Við leiðréttingu var eftirfarandi formúla notuð til þess að reikna út þyngd sem síðan var sett í Harris-Benedict- 516 LÆKNAblaðið 2012/98 J

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.