Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.2012, Side 36

Læknablaðið - 15.10.2012, Side 36
UMFJOLLUN O G GREINAR Góður árangur af rannsóknum á brjóstakrabbameini ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Samtökin Göngum saman stóðu fyrir málþingi þann 13. september um brjóstakrabbamein og þar flutti Helga Ögmundsdóttir prófessor við læknadeild Háskóla íslands erindi er nefndist Hverju hafa rannsóknir á brjóstakrabba- meini á Islandi skilað? „Ég var beðin um að fjalla um þetta efni af skipuleggjendum málþingsins og byggði erindi mitt á þeirri staðhæfingu sem oft er haldið á lofti, að ísland sé einstaklega vel fallið til læknisfræðilegra rannsókna vegna þess hvað sjúkdómar eru nákvæm- lega skráðir, læknisfræðilegar upplýsingar eru áreiðanlegar og ná til heillar þjóðar sem er hæfilega stór fyrir faraldsfræðilegar rannsóknir. Hér eru til vönduð sýnasöfn og síðast en ekki síst áreiðanlegar ætt- fræðilegar upplýsingar sem ná langt aftur í aldir. Þetta er nánast orðið að hálfgerðri klisju og mér lék einfaldlega hugur á að kanna hvort hún stæðist nánari skoðun og niðurstaða mín er sú að þetta er rétt; ofan- talin atriði standast öll hvað rannsóknir á brjóstakrabbameini varðar," segir Helga. Þungi rannsóknanna beinist að islensku stökkbreytingunni „Sagan sem ég sagði snerist fyrst og fremst um áhættugenin BRCAl og BRCA2 og ég kannaði einnig hversu margir titlar fyndust á Pubmed með leitarorðunum ísland og brjóstakrabbamein. Þar komu upp 234 titlar og af þeim eru tæplega 50 með BRCA2 í titlinum. Það er því greinilegt að þar liggur meginþungi þess sem ís- lenskir vísindamenn hafa fram að færa á alþjóðlegum vettvangi í rannsóknum á brjóstakrabbameini, og rannsóknir hafa fengið mjög aukið vægi eftir að íslenska stökkbreytingin á BRCA2-geninu fannst um miðjan 10. áratug síðustu aldar." Helga gerir snöggan samanburð við nágrannalöndin og segir að sams konar leit gefi 1000 titla frá írlandi, 2000 frá Finn- landi og tæplega 3000 frá Svíþjóð. „Ef við notum höfðatöluna sem viðmiðun þá stöndum við okkur sýnu best. íslenska stökkbreytingin í BRCA2-geninu er talin hafa verið landlæg um aldir og stundum kölluð landnemastökkbreytingin. Megin- þunginn í íslensku rannsóknunum er eins og búast mátti við á íslensku stökk- breytinguna í BRCA2-geninu og ég kemst að þeirri einföldu niðurstöðu að rann- sóknir á brjóstakrabbameini á íslandi hafi skilað miklu. Ég myndi reyndar aldrei láta nemendur mína komast upp með svona ónákvæmt orðalag, því hversu mikið er mikið?" segir Helga og brosir. Hún heldur áfram og segir að skoða megi þessar niðurstöður útfrá öðru sjónarhorni þar sem leitað er eftir greinum þar sem höfundar eru bæði íslenskir og erlendir. „Þetta gefur hugmynd um tengsl íslenskra vísindamanna við alþjóðlega fræðasamfélagið og það er augljóst að ís- lendingar hafa verið mjög virkir í fjölþjóð- legum rannsóknum á brjóstakrabbameini. Það er í rauninni ekkert sjálfsagt að lítil þjóð eigi svo mikið samstarf á alþjóðavett- vangi en þetta sýnir að við erum talin hafa eitthvað fram að færa og oftar en ekki leita erlendir vísindamenn samstarfs við okkur. Þetta rennir enn frekari stoðum undir þá fullyrðingu að rannsóknirnar hafi skilað árangri." Aðspurð um Iæknisfræðilegan árangur af rannsóknunum segir Helga að það sé vissulega ein af lykilspurningunum. „Þegar íslenska stökkbreytingin fannst þurfti að staldra við og spyrja hvað gera skyldi við þessa nýju þekkingu. Aukið eftirlit og meiri forvarnir var eitt af því, en þetta var samt ekki alveg augljóst í upp- hafi. En það er liðin tíð og nú er þetta í föstum skorðum og konur með stökkbreyt- inguna fá mjög góða ráðgjöf og meðferð, eins og reyndar allar konur sem greinast með sjúkdóminn. Vert er að hafa í huga að einungis 6% af þeim 200 konum sem greinast árlega með brjóstakrabbamein eru með stökkbreytinguna, en með því að þekkja stökkbreytinguna í BRCA2 og 540 LÆKNAblaðið 2012/98

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.