Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.2013, Page 3

Læknablaðið - 15.03.2013, Page 3
Helgafellsspítali viðgatnamól Vesturiandsvegar og Þingvallavegar árið 1942. Hvar á nýr Landspítali að rísa? Þessi mynd er tekin vorið 1942 af Helgafellsspítala sem breski og ameríski herinn reisti við gatnamót Vesturlandsvegar og Þingvallaafleggjara við Köldukvísl, og var starfræktur þar til í júní 1944. Þar má enn sjá nokkur ummerki um starfsemi og sagan segir að reimleikar séu þarna í holtinu, bresk hjúkrunar- kona með kappa og hitamæli lætur víst stundum á sér kræla. Spítalinn var vel búinn af lækningatækjum og 660 manna starfsliði, og þar voru um 1000 sjúkrarými í stórum sjúkrastofum með 40 til 40 rúmum. Spítalinn var í 160 bröggum sem voru tengdir með göngum svo fólk kæmist á milli bragganna hratt og örugglega án tillits til veðurs og færðar. Heitt vatn var leitt frá Suður-Reykjum og þótti mikill munaður að hafa óþrjótandi sjóðheitt baðvatn fyrir sjúklinga og starfsmenn. Helgafellsspítali var einskonar landspítali ameríska hersins hér á landi og veitti fullkomnustu spítala- þjónustuna. Ekki er annað hægt að segja en að staðsetningin sé miðsvæðis á Stór-Reykjavíkursvæðinu. í blaðinu núna er viðtal við Friðþór Eydal um herspítalana á íslandi á stríðsárunum, bls. 150-4. LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS Verk Daníels Karls Björnssonar (f. 1974) ber ekki sér- stakt heiti en það var kynnt á sýningu sem var kölluð Endurskin frá garði í febrúar 2013. Það samanstendur af ýmsum þáttum en burðarrásinn er stór og mikil trekt smíðuð úr timbri. Hún er full af stórum rauðum eplum sem glampar á því þau eru sykurhúðuð eins og þau sem maður getur stundum keypt á mörkuðum eða götuhátíðum. Undir trektinni er bakki þar sem rauðleitur vökvi rennur saman eftir því sem eplin hrörna og gerjast á meðan á sýningunni stendur. Verkið tekur sem sagt breytingum frá opnunardegi og til lokunar, frá því að vera aðlaðandi yfir í eitthvað síður girnilegt. Aðrir þættir verksins felast í gerðarlegri krukku sem er full af vökva; maður getur sér þess til að þar sé á ferð síróp frá fyrri sam- bærilegum tilraunum listamannsins með sama efni. Þá er lítil teikning nálægt sem sýnir sporbaug jarðar í kringum sólu undir yfirskriftinni Progress. Teikningin gerir grein fyrir því þegar jörð og sól eru næst og fjærst hvort öðru. Loks leikur lýsing stórt hlutverk, en verkinu er komið fyrir við glugga þar sem dagsbirtan flæðir inn. í kring er síðan komið fyrir rafljósum sem varpa annars vegar útfjólubláu Ijósi á verkið og hins vegar innrauðu. Þegar degi hallar sést verkið að utan í gegnum rúðuna, baðað hinu sérstaka Ijósi. Daníel Karl endurspeglar í verki sínu áhuga á óstöðugleika efnis og aðstæðna. Verkið felur í sér ýmsar andstæður, eða gagn- stæðar hliðar á sama peningi. Hann bendir á hina viðvarandi undiröldu breytinga og ummyndana allt í kringum okkur þar sem efnisheimurinn er ýmist í vexti eða niðurbroti, tekur stöðugt á sig nýja mynd í mislangvinnu ferli og verður að einhverju allt öðru. Eins sjáum við hlutina sifellt í nýju Ijósi, allt eftir sjónarhól, stund og stað þar sem ótal þættir hafa áhrif á upplifun okkar og skilning. Raflýsingin í kringum verkið er á öndverðum mörkum sýnilegs Ijóss og undirstrikar loks þá staðreynd að skynjun okkar eru takmörk sett og að ekki er allt sem sýnist. Markús Þór Andrésson Læknablaðið THE ICELANDIC MEDICAL jOURNAL www. laeknabladid. is Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi 564 4104-564 4106 Útgefandi Læknafélag íslands Læknafélag Reykjavíkur Ritstjórn Engilbert Sigurðsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Anna Gunnarsdóttir Gylfi Óskarsson Hannes Hrafnkelsson Sigurbergur Kárason Tómas Guðbjartsson Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir Þórunn Jónsdóttir Tölfræðilegur ráðgjafi Thor Aspelund Ritstjórnarfulltrúi Védís Skarphéðinsdóttir vedis@lis.is Blaðamaður og Ijósmyndari Hávar Sigurjónsson havar@iis.is Auglýsingastjóri og ritari Dögg Árnadóttir dogg@iis.is Umbrot Sævar Guðbjörnsson saevar@iis.is Upplag 1700 Áskrift 12.400,- m. vsk. Lausasala 1240,- m. vsk. Prentun, bókband og pökkun Oddi, umhverfisvottuð prentsmiðja Höfðabakka 3-7 110 Reykjavík © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild, án leyfis. Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfundar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna: Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Science Edition og Scopus. The scientific contents of the lcelandic Medical Journal are indexed and abst- racted in Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/ Science Edition and Scopus. ISSN: 0023-7213 LÆKNAblaðið 2013/99 115

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.