Læknablaðið - 15.03.2013, Blaðsíða 44
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Skrifaði læknir Fóstbræðrasögu?
Erindi af Læknadögum 2013
Óttar Guðmundsson
geðlæknir á Landspítala
oUarg@landspitali.is
íslenskir læknar hafa ekki verið afkasta-
miklir á ritvelli fagurbókmennta. Nokkrir
hafa verið liðtækir hagyrðingar, einhverjir
hafa gefið ljóðabækur, leikrit og skáldsögu
en lítið hefur verið um stórvirki andans
frá stéttinni.
Það var mér mikil ánægja þegar ég
uppgötvaði að sennilega hefur læknir
skrifað eitt mesta meistaraverk íslendinga-
sagna, sjálfa Fóstbræðrasögu. Sagan fjallar
um tvær söguhetjur: skáldið Þormóð
Bessason og kappann Þorgeir Hávarsson.
í fyrri hluta sögunnar er sagt frá þeim
fóstbræðrum báðum en síðan skilja leiðir
og Þorgeir fer utan í þjónustu konunga.
1 næstu köflum er greint frá þeim
hvorum í sínu lagi, annars vegar kvenna-
málum og vandræðagangi Þormóðar og
hins vegar vígaferlum Þorgeirs og falli
hans norður á Melrakkasléttu. Eftir það
fylgir sagan Þormóði þar til hann deyr
hetjudauða á Stiklastöðum með Ólafi
konungi digra.
Halldór Laxness studdist við Fóst-
bræðrasögu þegar hann skrifaði Gerplu
sem er eins konar skopstæling á bókinni.
Reyndar hafa sumir fræðimenn sagt að
Fóstbræðrasaga sé frá hendi höfundar síns
háðslegt skop um hetjudýrkun samtímans.
Er þá Gerpla skopstæling á skopstælingu?
Hvernig sem á það er litið er Fóstbræðra-
saga mjög skemmtileg bók og fyndin.
Það vekur athygli hversu vel höfundur-
inn er heima í læknisfræði samtíma síns
og veltir fyrir sér ýmsum kenningum og
almennum fróðleik. I sögunni er að finna
þennan texta: „en reiði hvers manns er í
galli, en líf í hjarta, minni í heila, metn-
aður í lungum, hlátur í milti, lystisemi í
lifur." Þarna koma fram helstu grunnatriði
í læknisfræði Hippókratesar um skiptingu
eðlislægra eiginleika eftir líffærum.
Menn vissu að hjartað var lífvöðvi
líkamans eða lífið sjálft, enda bjó sálin í
því. En hjartað var líka aðsetur hugrekkis
og hugleysis. í sögunni er stórt hjarta álitið
heyra blauðum til vegna þess að hræðslan
sé í réttu hlutfalli við blóðið í hjartanu.
Stórt hjarta rúmaði mikið blóð en hjarta
hins hugprúða lítið. Mikill hjartsláttur
gefur til kynna að maður sé hræddur.
Þessi trú á sambandið milli hjarta og
hugrekkis var reyndar grundvöllur þess
að menn drukku hjartablóð og borðuðu
hjartað eins og berserkir gerðu til að sigra
í orustum.
I sögunni er fjallað um hjartað í Þor-
geiri sem var smátt og blóðlítið. Þetta
skýrir óttaleysi og samviskuleysi kappans.
Höfundurinn lýsir því hvernig banamenn
hans krufðu líkið og undruðust hversu
lítið hjartað var. Hann klæðir þessar hug-
leiðingar sínar í trúarlegan búning því að
hann segir að þessa miklu hugprýði eigi
hann sjálfum höfuðsmiðnum að þakka.
Sagan færir þannig líffræðilega sönnun
á hugrekki Þorgeirs Hávarssonar fengna
með krufningu á hjarta hans. Höfundur-
inn slær fram ákveðinni kenningu sem
hann sannar síðan með vísindalegri rann-
sókn. Þorgeir var eiginlega hjartalaus og
gat því hvorki fundið til með fólki né held-
ur elskað aðra. Þetta var án efa skýringin
á sálarleysi hans, siðblindu og kynleysi
að mati höfundar. Þessar athugasemdir
Heimilislæknir -
heimilislæknastöðin Uppsalir
Laus er til umsóknar staða sérfræðings í heimilislækningum við Heimilislæknastöðina Upp-
sölum, Kringlunni. Staðan er laus frá 1. apríl 2013. Um fullt starf er að ræða. í fullu starfi fellst
að hafa að minnsta kosti 1500 sjúkratryggða á skrá.
Staðan fellur undir rammasamning Sjúkratrygginga íslands (SÍ) við heimilislækna sem starfa
utan heilsugæslustöðva. Um er að ræða stöðu sérfræðings í heimilislækningum skv. fyrr-
greindum samningi og er hún bundin við starfshópinn við Heimilislæknastöðina Uppsölum,
Kringlunni. Læknir sem ráðinn er í stöðuna þarf að vera í samstarfi við þann hóp heimilis-
lækna sem þar starfar, meðal annars vegna afleysinga.
Hæfniskröfur: Umsækjandi skal hafa sérfræðiviðurkenningu í heimilislækningum.
Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Skúlason eða Gunnar Baarregaard heimilislæknar við
Heimilislæknastöðina Uppsölum, Kringlunni, í síma 568 7770.
Greiðslur eru samkvæmt ofangreindum samningi við SÍ og um hlutdeild sjúkratryggðra
fer skv. reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu, nú nr.
1175/2011.
Umsóknarfrestur er til og með 17. mars 2013.
Umsókninni skulu fylgja vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf, reynslu af kennslu,
vísindavinnu og stjórnunarstörfum ásamt sérprentun eða Ijósriti af greinum sem umsækjandi
kann að hafa birt eða skrifað.
156 LÆKNAblaðið 2013/99