Læknablaðið - 15.03.2013, Page 7
RITSTJÓRNARGREIN
Langvinnir lífsstílssjúkdómar
- mesta ógn nútímans við heilbrigði
Hannes
Hrafnkelsson
heilsugæslulæknir á Sel-
tjarnarnesi, situr í ritstjórn
Læknablaðsins - og tók
doktorspróf í læknisfræði
í desember síðastliðnum
fráHl
Hannes. Hrafnkelsson@heilsugaeslan.is
Langvinnir lífsstílssjúkdómar valda nú
þegar 86% af öllum dauðsföllum í Evrópu,
eins og fram kemur í ágætum yfirlits-
greinum í nóvemberblaði og í þessu blaði.
Beinþynning er þó ekki talin meðal þess-
ara langvinnu lífsstílssjúkdóma en 40%
einstaklinga geta búist við að beinbrotna
vegna beinþynningar á lífsleiðinni og veru-
leg áhrif má hafa á sjúkdóminn með lífsstíl.
Þessir sjúkdómar valda því að stór hiuti líf-
eyrisþega mun ekki lifa við heilbrigði síð-
ustu áratugi lífsins, heldur lifa með einum
eða fleiri langvinnum sjúkdómi. Þetta
veldur gífurlegri skerðingu á lífsgæðum
ásamt miklum kostnaði, bæði fyrir einstak-
lingana og samfélagið. En einnig kemur
fram að þessari þróun má snúa við og að
80% lækkun á dánartíðni hjartasjúkdóma
á síðustu 25 árum hjá körlum og konum
yngri en 75 ára má að langmestu leyti rekja
til breytinga á lífsstí 1, þar sem minnkandi
reykingar og breytt mataræði vega mest
en lyfjameðferð og tækniframfarir útskýra
einungis lítinn hluta. Það er því ljóst að þótt
við fáum nýjan spítala, betri greiningartæki
og lyf sem virka betur og hafa færri auka-
verkanir, mun það hafa lítil áhrif á tíðni og
nýgengi langvinnra sjúkdóma. Ef fækka á
langvinnum sjúkdómum og bæta lífsgæði
verður að ráðast að orsökunum. Þannig er
hægt að vinna stóru sigrana. Nú þegar hef-
ur mikill árangur náðst á vissum sviðum
og má þar nefna að stöðugt færri reykja og í
dag sjáum við jafnvel fram á að Island verði
reyklaust innan 20 ára. Einnig hefur matar-
og nestismenning í grunnskólum batnað.
Það er engin önnur leið til að verjast lang-
vinnum sjúkdómum en að breyta um lífsstíl
þar sem reykleysi, bætt mataræði, hæfileg
hreyfing og aukið þol skipta mestu máli.
Enginn skyldi treysta á að lyf og tækni geti
komið í stað hollra lífshátta.
Langvinnir lífsstílssjúkdómar eiga það
sameiginlegt að þeir eru oft áratugi að
þróast. Rannsóknir sýna að börn og ungt
fólk er oft á tíðum komið með breytingar
á kransæðum og að líkurnar á breytingum
aukast eftir því sem áhættuþáttum fjölgar.1
Rannsóknir á íslenskum 9 ára börnum sýna
að þau sem hafa betra þol hafa að meðaltali
marktækt hærra HDL, lægri þríglýseríða
og lægra fastandi insúlín - allt þetta getur
mögulega dregið úr áhættu á langvinnum
sjúkdómum í framtíðinni. Auk þess hafa
þau börn sem hafa betra þol marktækt
hærri beinþéttni.2
Á heimasíðu Embættis landlæknis
koma fram ráðleggingar um heilsu og líðan
allt frá meðgöngu til elli. Þar koma meðal
annars fram bestu ráðleggingar byggðar á
vitneskju nútímans um hreyfingu og fæðu
barna. Meginráðleggingin er að börn hreyfi
sig rösklega í minnst 60 mínútur daglega.
Enn er langt í land að meirihluti 9 ára barna
nái þeirri ráðleggingu samkvæmt íslenskri
rannsókn.3 Einnig tekur lítill hluti 9 ára
barna lýsi og D-vítamínskortur er algengur
meðal íslenskra barna svo eitthvað sé nefnt.
I raun er undarlegt að foreldrar og yfirvöld
leggi ekki meiri áherslu á að leiðbeiningum
frá Embætti landlæknis sé fylgt. Allt bendir
til að ef það væri gert, bætti það líðan og
minnkaði verulega líkur á sjúkdómum,
bæði til skemmri og lengri tíma. Því miður
kemur það hins vegar ekki á óvart að á
meðan 800 milljónir eru lagðar í að skipta
út úreltum tækjum á Landspítalanum,
minnist enginn á að það þurfi meira fjár-
magn til að bæta lífsstíl barna. Með sömu
upphæð mætti sennilega bæta líðan og
minnka líkur á langvinnum sjúkdómum
hjá mun fleirum en ný tæki geta gert.
Eins og fram kemur í greininni um lang-
vinna lífsstílssjúkdóma hefur European
Chronic Diease Alliance sett sér mælanleg
markmið um fækkun langvinnra sjúkdóma.
íslendingar ættu að eiga auðvelt með að ná
öllum þeim markmiðum sem nefnd eru, sé
rétt á málum haldið. Einnig ætti að stefna
að fleiri markmiðum sem auðvelt væri
að ná, svo sem að fækka í þeim hópi sem
hreyfir sig minnst og er með lélegast þol
og bæta D-vítamíninntöku hjá þeim mikla
fjölda sem fær minna en ráðlagðan skammt
af D-vítamíni, svo eitthvað sé nefnt.
Öll viljum við eiga gott sjúkrahús með
góðum tækjabúnaði og miklum mannauði.
Það má hins vegar ekki gleymast að ekki er
síður mikilvægt að fjárfesta í hollu líferni
þeirra sem nú vaxa úr grasi, með áherslu
á reykleysi, ráðlagða hreyfingu, hollan mat,
umhyggju og samveru. Takist okkur vel
á þeirri leið minnkum við líkurnar á að
sú kynslóð þurfi að þjást af langvinnum
sjúkdómum og aukum líkur á að hún lifi
heilbrigð fram eftir aldri. Er hægt að hugsa
sér betri gjöf fyrir börnin okkar?
Heimildir
1. Berenson GS, Srinivasan SR, Bao W, Newman WP 3rd,
Tracy RE, Wattigney WA. Association between multiple
cardiovascular risk factors and atherosclerosis in children
and young adults. The Bogalusa Heart Study. N Engl J
Med 1998; 338:1650-6.
2. Hrafnkelsson H, Sigurdsson G, Magnusson KT, Sigurdsson
EL, Johannsson E. Fat mass increase in 7-year-old children:
More Bone Area but lower Bone Mineral Density. J Bone
Miner Metab 2013. [Epub ahead of print]
3. Magnusson KTh, Amgrimsson S A, Sveinsson Th, J ohanns-
son E. Líkamshreyfing 9 og 15 ára íslenskra barna í ljósi
lýðheilsumarkmiða. Læknablaðið 2011; 97: 75-81.
Chronic non-communicable diseases:
- The greatest threat to modern health
Hannes Hrafnkelsson MD, PhD
General Practitioner
Seltjarnarnes Health Care Center, Seltjarnarnes, lceland
LÆKNAblaðið 2013/99 119