Læknablaðið - 15.03.2013, Page 25
Y F I R L I T
Skurðmeðferð lungnameinvarpa
- yfirlitsgrein um ábendingar og árangur meðferðar
Halla Viðarsdóttir1 læknir, Páll Helgi Möller2 4 læknir, Tómas Guðbjartsson3 '1 læknir
ÁGRIP
Á Islandi greinist þriðji hver einstaklingur með krabbamein á lífsleiðinni.
Illkynja sjúkdómar um fjórðungur dánarmeina og eingöngu hjarta- og
æðasjúkdómar eru algengari dánarorsök. Um þriðjungur krabbameins-
sjúklinga greinist með meinvörp í lungum sem er ein algengasta stað-
setning meinvarpa. Hjá sumum þessara sjúklinga getur komið til greina
að fjarlægja meinvörpin með skurðaðgerð í þeim tilgangi að bæta
lifun. ( þessari yfirlitsgrein er farið yfir helstu ábendingar fyrir brottnámi
lungnameinvarpa, rannsóknir fyrir aðgerð og árangur aðgerða. Greinin
er ætluð breiðum hópi lækna og er byggt á nýjustu þekkingu og vísað til
íslenskra rannsókna.
’Skurðdeild Sjúkrahússins
í Helsingborg, Svíþjóð,
2skurðlækningadeild,
3hjarta- og
lungnaskurðdeild
Landspítala,
“læknadeild Háskóla
íslands.
Fyrirspurnir:
Halla Viðarsdóttir
halla. vidarsdottir@
skane.se
Greinin barst
28. september 2012,
samþykkt til birtingar
20. febrúar 2013.
Engin hagsmunatengsl
gefin upp.
Aðferðafræði
Leitað var að heimildum í PubMed-gagnagrunninum undir leitarorðunum pulmonary
metastasectomy, pulmonary resection og pulmonary metastases. Einungis var stuðst við vís-
indagreinar á ensku. Engar framskyggnar slembivalsrannsóknir fundust en sérstaklega
var stuðst við greinabálk um skurðmeðferð lungnameinvarpa sem birtist í Journal of
Thoracic Oncology 2010 og var samstarfsverkefni á vegum European Society of Thoracic
Surgeons.
Ábendingar og val sjúklinga fyrir aðgerð
Brottnám lungnameinvarpa hefur verið reynt við
ýmis krabbamein en þó aðallega við lungnameinvörp
sarkmeina, ristil- og endaþarmskrabbameins, nýrna-
frumukrabbameins og kímfrumuæxla (germ cell tumo-
urs). Framan af var árangur þessara aðgerða lítið rann-
sakaður en á síðustu árum hefur fjöldi rannsókna sýnt
fram á góðan árangur, eða á bilinu 30 til 70% 5 ára
lifun fyrir hinar ýmsu gerðir æxla.1 Fyrsta rannsókn á
árangri skurðmeðferðar við lungnameinvörpum birtist
árið 1947, en þar var jafnframt getið um hvaða sjúklingar
gætu hugsanlega haft gagn af henni.2 Árið 1965 birtu
Thomford og Clagett endurbættar ábendingar fyrir
skurðmeðferð sem enn eru í fullu gildi með lítilsháttar
breytingum.3 Samkvæmt þeim á skurðaðgerð við þegar:
a) frumæxli er skurðtækt, b) meinvörp eru ekki til staðar
utan lungna (undantekning eru skurðtæk lifrarmein-
vörp ristil- og endaþarmskrabbameins), c) það er tækni-
lega framkvæmanlegt að fjarlægja lungnameinvörpin, d)
áhætta tengd aðgerð er ásættanleg fyrir sjúklinginn og
e) önnur læknandi meðferð er ekki í boði.3
Tíðni og greining
Lungu eru ásamt lifur, beinum og heila þau líffæri sem
krabbamein dreifa sér oftast til. Eins og sést í töflu I er
tíðni lungnameinvarpa mismunandi eftir krabbamein-
um og er hún hæst fyrir sarkmein, eistnakrabbamein og
sortuæxli.4 Líkur á því að hnútur í lunga sé meinvarp
fer eftir tegund frumæxlis. Ef upprunalega æxlið er
sarkmein eða sortuæxli er tífalt líklegra að um sé að
ræða meinvarp en lungnakrabbamein og um helmings-
líkur ef frumæxlið er ristil- eða endaþarmskrabbamein.5
Lungnameinvörp geta valdið einkennum eins og hósta
og brjóstverk. Mun algengara er þó að sjúklingar séu
án einkenna og greinist við eftirlit í kjölfar meðferðar á
frumæxli eða þegar gerðar eru myndrannsóknir vegna
óskyldra sjúkdóma. í íslenskri rannsókn á 81 sjúklingi
sem gekkst undir brottnám á lungnameinvörpum
á árunum 1984 til 2008 voru 81,5% án einkenna, og
greindust langflestir þeirra við krabbameinseftirlit þar
sem gerðar voru tölvusneiðmyndir (TS) eða röntgen-
myndir af lungum.6
Tafla I. Tíðni (%) lungnameinvarpa fyrirhelstu æxlistegundir.4
Beinsarkmein 75
Eistnakrabbamein 70-80
Sortuæxli 60-80
Brjóstakrabbamein 60
Nýrnakrabbamein 50-75
Ristil- og endaþarmskrabbamein 20-43
Þvagblöðrukrabbamein 25-30
Lungnakrabbamein 20-30
Höfuð-og hálskrabbamein 13-40
LÆKNAblaðið 2013/99 137