Læknablaðið - 15.03.2013, Síða 52
ÖLDUNGADEILD
800 ár frá vígi Hrafns
Sveinbjarnarsonar
Páll Ásmundsson
Hinn 4. mars 2013 eru 800 ár síðan einn mætasti íslendingur
sögunnar var tekinn af lífi, Hrafn Sveinbjarnarson goðorðsmaður
og læknir. Að því fólskuverki stóð Þorvaldur Snorrason Vatns-
firðingur nágrannagoði Hrafns.
Uppruni og lýsing Hrafns
Hrafn Sveinbjarnarson var fæddur 1166 (?). Hann var af læknum
kominn. Atli Höskuldsson langafi hans var í liði Magnúsar góða
Noregskonungs er hann barðist við Vindur á Hlýrskógsheiði
syðst á Jótlandi árið 1043. Var Atli einn 12 manna er konungur
valdi til að binda sár manna eftir bardagann, „en enginn þeirra
hafði fyrr sár bundið, en allir þessir urðu hinir mestu læknar."
Sonur Atla var Bárður svarti í Selárdal og hans sonur Sveinbjörn
faðir Hrafns.
„Sveinbjörn var goðorðsmaður og vitur og mikill atferðarmað-
ur, læknir góður." Hann bjó að Eyri í Arnarfirði með konu sinni
Steinunni Þórðardóttur. Þau áttu fimm börn og var Hrafn hinn
yngri tveggja sona. Markús sterki, eldri bróðirinn, var prestvígður
en dó þrítugur af slysförum og stóð Hrafn þá til arfs og goðorðs.
í Hrafnssögu er hann sagður „mikill maður og réttleitur í
andliti, svartur á hárslit." Þá var hann atgervismaður, völundur
að hagleik, skáld, læknir sem ýmsir þeir frændur, vel lærður, lög-
spakur, vel máli farinn og að öllu fróður.
Um hann var sagt eftir að hann tók við búi og goðorði: „Svo var
bú Hrafns gagnauðigt að öllum mönnum var þar heimill matur,
þeim er til sóttu og erinda sinna fóru hvort sem þeir vildu setið
hafa lengur eða skemur. Alla menn lét hann flytja yfir Arnarfjörð,
þá er fara vildu. Hann átti og skip á Barðaströnd. Það höfðu allir
þeir er þurftu yfir Breiðafjörð. Og af slíkri rausn Hrafns var sem
brú væri á hvorumtveggja firðinum fyrir hverjum er fara vildi."
Hrafn kvæntist Hallkötlu Einarsdóttur og áttu þau 9 börn. Af þeim
er kominn mikill ættbogi.
Utanfarir
Hrafn fór þrívegis utan. Fyrstu ferðina fór hann líklega vart tví-
tugur til Noregs þar sem hann dvaldist veturlangt hjá tignarfólki
og var mikils virtur sakir íþrótta. í þessari för heimsótti hann
Orkneyjabiskup er sendi Hrafni síðar veglegar gjafir.
Næsta ferð og hans lengsta var farin til að efna heit á dýrlinginn
Tómas Becket sem heitið var á við rostungsveiði. Fór hann fyrst til
Noregs en þaðan til Kantaraborgar og færði dýrlingnum tennur
rostungsins. Síðan fór hann til Santiago di Compostela á Spáni
(leiðin ekki ljós). Þá hélt hann um norðurströnd Spánar til St. Gilles
eða ílansborgar sem sögð er stofnuð af heilögum Egediusi. Þaðan
fór Hrafn til Rómar og „fal líf sitt á hendi guðs postulum og öðrum
helgum mönnum". Frá Róm hélt hann heimleiðis um Norðurlönd.
Þriðju ferðina fór Hrafn sem ráðgjafi og leiðsögumaður með Guð-
mundi Arasyni biskupsefni er hann fór til Noregs til vígslu.
Lækningar
Hrafn nam læknislist af föður sínum sem aftur hafði hana frá
afa sínum. Ekkert liggur fyrir um hvernig námi hans var háttað,
hvort stuðst var við bækur eða hvort um var að ræða munnlega
kennslu og handleiðslu. Handlækningar hafa legið vel fyrir svo
handlögnum manni.
í ílansborg voru höfuðstöðvar líknar- og lækningareglunnar
sem kennd er við Jóhannes skírara og þykja læknisverk Hrafns
minna á störf hennar:
„Til engis var honum svo títt, hvorki til svefns né til matar, ef
sjúkir menn komu á fund hans að ei mundi hann þeim fyrst nokk-
ura miskunn veita. Aldrei mat hann fjár lækning sína. Við mörgum
mönnum vanheilum og félausum tók hann, þeim er þrotráða voru,
og hafði með sér á sínum kostnaði þangað til er þeir voru heilir."
Þá þykja lækningar Hrafns minna á læknisfræði Salernóskólans
á Ítalíu sem er skammt sunnan Rómaborgar. Gæla menn við þá
hugmynd að Hrafn hafi stundað þar nám í suðurför sinni. Altént
er líklegt að hann hafi kynnt sér nýjungar í lækningum í ferð sinni.
0ldungadeild
Læknafélaas íslands
Stjórn Öldungadeildar: Öldungaráð Umsjón siðu: Páll Ásmundsson
Sigurður E. Þorvaldsson formaður, Jón Hilmar Hörður Þorleifsson, Jóhann Gunnar
Alfreðsson ritari, Tryggvi Ásmundsson gjaldkeri, Þorbergsson, Höskuldur Baldursson, Kristín Vefsíða:
Bjarni Hannesson, Guðmundur Oddsson Guttormsson, Leifur Jónsson, Páll Ásmundsson http://innri.lis.is/oldungadeild-li
164 LÆKNAblaðið 2013/99