Læknablaðið - 15.03.2013, Síða 53
Læknaskólinn í Salernó.
Á frásögnum af lækningum Hrafns er nokkur helgisagnablær
enda segir í sögu hans: „Svo fylgdi hans lækningu mikill guðs
kraftur að margir gengu heilir frá hans fundi, þeir er banvænir
komu til hans fyrir vanheilsu sakir."
Ýmsar lækningar hans teldust ekki gjaldgengar nú enda hefur
fræðunum fleygt fram á 800 árum. Sú skurðaðgerð sem lýst er hér
í rammagrein sýnist standa nútímanum mun nær.
Þorvaldur - drápið
Fljótlega eftir að Hrafn kom heim úr förinni með Guðmundi góða
og hafði sest að búi sínu á Eyri skiptust þeir á heimboðum hann
og Þorvaldur goði Snorrason í Vatnsfirði og mæltust til vináttu
hvor af öðrum. Ekki leið þó á löngu áður en slettist á vinskapinn.
Þorvaldur var ófyrirleitinn og tók óhikað það sem hann taldi sér
Hrafn fjarlægir
þvagrásarsteina
„í sveit Hrafns var maður þrotráða ... Hann hafði steinsótt svo
að því mátti hann ei þurft sækja er steinninn féll fyrir getnað-
arliðu hans." Hrafn tók hann til sín og „létti hans meini með
mikilli íþrótt. Og svo sótti meinið að honum að hann varð
banvænn og lá bólginn sem naut." Þá leitaði Hrafn álits presta
sinna og fleiri viturra manna. Þeir töldu manninn banvænan
nema að væri gert. „En Hrafn sagði að hann mundi til taka
með guðs forsjá og þeirra atkvæði. Og þá fór hann höndum
um hann og kenndi steinsins í kviðinum og færði hann frá
í getnaðarliðinn svo sem hann mátti og batt síðan fyrir ofan
með hörþræði svo að eigi skyldi upp þoka steininn og öðrum
þræði batt hann fyrir framan steininn. Og þá bað hann að
allir skyldu syngja fimm pater noster, þeir er inni voru, áður
en hann veitti aðgerðina. Og síðan skar hann um endilangt
með knífi og tók í brott tvo steina. Síðan batt hann viðsmjör
við sárið og græddi hann svo að hann varð heill."
bera, oft ránshendi. Hrafn var friðsamur og sáttfús og vildi fara
að lögum og fékk Þorvald dæmdan fyrir yfirgang.
Óvild Þorvalds jókst og þar kom að hann reið til Eyrar og ætl-
aði að brenna Hrafn inni. Hrafni barst njósn af ferðum Þorvalds
og varð hann frá að hverfa er lið dreif að Hrafni. Lét Hrafn hlaða
grjótvirki kringum bæinn og þegar Vatnsfirðingur gerði næstu
atrennu var bærinn óárennilegri auk þess sem Hrafni barst enn
liðsauki. Þorvaldur þóttist fús til sátta sem Hrafn þáði en hlaut
ámæli fyrir að láta ekki drepa Þorvald meðan hann átti þess kost.
I sögu Hrafns er lýst fjölda fyrirboða um dauða hans.
Á lönguföstu, 4. mars 1013, reið Þorvaldur með lið sitt um
nótt, í illu veðri, yfir Glámu til Arnarfjarðar. Hann batt fólk á
öllum bæjum þar sem hann fór um, svo ekki bærist njósn. Þessa
nótt var í fyrsta skipti þann vetur enginn vörður í virkinu því
menn Hrafns töldu útilokað að nokkur sækti að bænum í óveðri á
föstu. Óvinirnir gátu því óáreittir lyft manni upp á virkisvegginn
og opnaði sá fyrir hinum. Þeir svældu síðan út heimilisfólkið.
Þorvaldur lét fóthöggva tvo menn Hrafns og hálshöggva hann
sjálfan. Varð hann karlmannlega við dauða sínum.
Tólf árum síðar hefndu synir Hrafns, Sveinbjörn og Krákur,
föður síns er þeir brenndu inni Þorvald Vatnsfirðing.
Heimildir
Bjarnason Ö. Kristinn heimur miðalda og Hrafn Sveinbjamarson. Læknablaðið 2004; 90:167-70.
Bjarnason Ö. Hrafn Sveinbjarnarson - líkn og lækningar. Læknablaðið 2004; 90: 253-7.
Hrafns saga Sveinbjamarsonar hin sérstaka. Sturlunga saga II. Ritstj. Thorsson Ö. Svart á hvítu,
Reykjavík 1988:883-931.
Blöndal LH, Jónsson V. Læknar á íslandi. Sögufélagið, Reykjavík, 1944.
Professor of Pathology,
specializing in digital pathology
Associated with employment as
chief physician/specialist at
University Hospital Linköping
This appointment is specifically directed toward
teaching in the MD program and also in devel-
oping the future MD programs. Furthermore,
the holder of this position is to actively intro-
duce digital pathology for research and routine
diagnostics in histopathology.
Further information www.liu.se/en/job
Last application day is March 22, 2013
^ Linköping University j
expanding reality 1
LÆKNAblaðið 2013/99 165