Læknablaðið - 15.11.2013, Blaðsíða 19
RANNSÓKN
Tafla I. Meðaltöl (M) og staðalfrávik (SF) fyrir og eftir ósértæka HAM-hópmeðferð á sjúklingum heilsugæslunnar með Becks-þunglyndiskvarða, BDI-II, og Becks-
kviðakvarða, BAI.
BDI-II Ekki umrædd lyf* (N=176) Benzólyf/z lyf (N=29) SSRI/SNRI lyf (N=108) Benzó/z + SSRI/SNRI (N=42)
M Sf M Sf M Sf M Sf
Upphaf 23,43 9,57 18,35 8,66 25,97 10,34 24,87 10,19
Lok 17,58 11,92 12,68 8,95 16,27 11,63 20,03 12,16
BAI Ekki umrædd lyf* (N=175) Benzólyf/z lyf (N=28) SSRI/SNRI lyf (N=106) Benzó/z + SSRI/SNRI (N=41)
M Sf M Sf M Sf M Sf
Upphaf 18,84 11,49 16,76 8,85 20,74 11,99 22,87 12,39
Lok 13,47 10,82 13,37 9,33 13,97 10,01 16,77 13,21
* Ekki á benzólyfjum, z-svefnlyfjum, SSRI/SNRI-lyfjum
þessa var ekki hægt að notast við heildarskor listans við úrvinnslu
á BAI-niðurstöðum þeirra. Tveir af þessum 5 einstaklingum sem
skiluðu ekki inn fullgildum BAI-listum voru á SSRI/SNRI-þung-
lyndislyfi, einn á benzó- og/eða z-lyfi, einn einstaklingur var á
SSRI/SNRI-þunglyndislyfi og einnig á benzódíazepínlyfi og/eða
z-lyfi og einn tók ekki lyf úr þessum flokkum (tafla I).
Notast var við fervikagreiningu/marghliða dreifigreiningu
(ANOVA/ANCOVA) og Gabriels eftir-á próf (post hoc test) við úr-
vinnslu gagnanna, þar sem breyting var mæld á meðaltalsskori í
upphafi meðferðar og við eftirfylgd milli ofangreindra hópa. Töl-
fræðilegt marktæki tvískotta (two-tailed) p-gilda var sett við <0,05.
Allir útreikningar voru gerðir í tölfræðiforritinu SPSS, útgáfu 12.1.
Niðurstöður
A því þriggja ára tímabili sem gögnunum var safnað tóku 557 ein-
staklingar þátt í 5 vikna HAM-námskeiðum í heilsugæslunni. Af
þeim skiluðu 355 einstaklingar BDI-II kvarða og 350 einstaklingar
BAI-kvarða tvisvar eða oftar. Tölulegar niðurstöður rannsóknar-
innar eru dregnar saman í töflu I. Þar má finna meðaltalsskor
hinna fjögurra undirflokka úrtaksins á BDI-II og BAI-kvörðunum
í upphafi meðferðar og við síðustu mælingu.
Þunglyndiseinkenni (BDI-11)
Munur var á upphafskorum á BDI-II milli hópa (F(3,351)=4,19,
p>0,05). Niðurstöður Gabriels eftir-á prófs (post hoc test) sýndu
að þunglyndiseinkenni þeirra sem voru á benzódíazepínlyfi og/
eða z-lyfi voru marktækt lægri við upphaf meðferðar heldur en
þeirra sem voru á SSRI/SNRI-þunglyndislyfi (p=0,002) og þeirra
sem ekki tóku lyf úr þessum algengu lyfjaflokkum (p=0,045). Ekki
var munur á þunglyndiseinkennum í upphafi meðferðar milli
annarra hópa (p>0,05). Megináhrif HAM-meðferðar í námskeiðs-
formi voru marktæk (F(l,351)=92,96, p<0,001), skor allra þátttak-
enda á BDI-II þunglyndiskvarðanum voru marktækt lægri í lok
meðferðar en við upphaf hennar.
Skoðað var hvort samvirkni væri milli árangurs meðferðar og
lyfjaflokka. Marktæk samvirkni reyndist til staðar milli minnk-
unar á þunglyndiseinkennum frá upphafsmælingu á BDI-II til
lokamælingar og undirhópa (F(3,351)=4,22, p<0,05). Árangur
meðferðarinnar var því ekki hinn sami í öllum hópunum. Gert
var Gabriel-eftir-á-próf til að greina á milli hvaða hópamunur væri
á árangri. Niðurstöður prófsins sýndu að árangur þunglyndis-
meðferðarinnar var marktækt betri hjá þátttakendum sem tóku
SSRI/SNRI-þunglyndislyf en þeim sem voru ekki á slíkum lyfjum
(p=0,01). Einnig var marktækt meiri árangur hjá þeim sem voru á
SSRI/SRNI þunglyndislyfi en hjá hinum sem einnig voru á SSRI/
SRNI-lyfi en jafnframt á benzó- og/eða z-svefnlyfi (p=0,037). Ekki
reyndist marktækur munur á árangri milli annarra hópa. Taka
verður fram að hópur þeirra sem tók benzó- og/eða z-lyf en ekki
SSRI/SNRI-lyf var langfámennastur og kann ástæða þess að ekki
fannst munur á breytingaskori þess hóps og þeirra sem taka SSRI/
SNRI-lyf að vera að styrkur prófsins sé ekki nægur vegna fárra
þátttakenda í fyrrnefnda hópnum.
Mynd 1 sýnir brey tingar á BDI-II skori fyrir og eftir hópmeðferð.
Á myndinni má sjá að meðaltalslækkun skors þeirra sem voru á
SSRI/SNRI-þunglyndislyfi en ekki á benzólyfi eða z-svefnlyfi var
tæplega tvöfalt meiri en lækkun skora þeirra sem voru í öðrum
flokkum úrtaksins. Af niðurstöðunum má því álykta að HAM-
meðferð í námskeiðsformi skili árangri en ef til vill meiri árangri
hjá fólki sem er einnig á SSRI/SNRI-þunglyndislyfi samanborið
við þá sem ekki eru á umræddum lyfjum eða eru á SSRI/SNRI-lyfi
en taka jafnframt benzó- og/eða z-svefnlyf. Ekki er hægt að álykta
að meðferðin skili þeim sem eru ekki á SSRI/SNRI-lyfjum betri
árangri en þeim sem eru á benzó- og/eða z-lyfi, hvort sem SSRI/
SNRI-lyf eru tekin samhliða benzó- og/eða z-lyfi eða ekki.
Þunglyndiseinkenni
Upphaf Lok
♦ Lyfjalaus
“•■Benzód./Z
-★-SSRI/SNRI
—Bemód./Z og SSRI/SNRI
Mynd 1. Skor ó BDl-llfyrir og eftir meðferð, greint eftir undirhópum.
LÆKNAblaðið 2013/99 507