Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2013, Blaðsíða 36

Læknablaðið - 15.11.2013, Blaðsíða 36
UMFJÖLLUN O G GREINAR í Læknablaðið að þessi tungumálaáhugi kviknaði fyrir alvöru og blómstraði. Ég sá reyndar eftir á að ég hafði alltaf lagt áherslu á gott íslenskt mál við kennslu mína í háskólanum og gætt vel að málfari í því kennsluefni sem ég tók saman fyrir nemendur. Ég vildi líka að málnotkunin væri samkvæm sjálfri sér, annaðhvort væru notuð ensk heiti á réttan hátt eða ís- lensk, ekki slettur." Því hefur löngum verið haldið fram að íslendingar skeri sig úr hvað þýðingar og nýyrðasmíð varðar og aðrar þjóðir taki meira og minna gagnrýnislaust upp ensk fræði- og fagorð. Jóhann Heiðar segir þetta ekki alls kostar rétt og mikið starf fari nú fram meðal nágrannaþjóðanna í þessu efni. „Það er rétt að í sumum tungumálum er tekið meira upp af alþjóðlegum heitum en við gerum, en það er engu að síður til- hneiging í þá átt að varðveita tungumálið og nota eigin orð ef þau eru til staðar. Ég sat í fyrra ráðstefnu fulltrúa orðabanka og orðabóka víða að úr Evrópu og það er verið að leggja fram mikla vinnu á þessu sviði víðar en hjá okkur. En það má gjarn- an koma fram að við vorum langt á undan hinum Norðurlandaþjóðunum með útgáfu íðorðasafns lækna á eigin tungumáli." Jóhann Heiðar segir engan vafa leika á - í sínum huga - mikilvægi þess að eiga þjál og gagnsæ íslensk orð um flest það er læknisfræðin fæst við. „Læknarnir kæm- ust eflaust af án þess í samskiptum sínum innbyrðis, en ef engin væru íslensku orðin myndu þeir einnig nota erlend fræðiheiti í samskiptum sínum við sjúklinga og þá skapast vandi. Ég heyri reyndar stundum kvartað undan því að læknar tali óskiljan- legt „læknamál" við sjúklinga sína og gæti sagt ýmsar sögur, misskondnar, af slíku. Þá komum við reyndar að máli sem tals- vert er í umræðunni í dag og snýst um hvort flytja eigi hingað erlenda lækna til starfa í íslenska heilbrigðiskerfinu og hvort gera eigi til þeirra þá kröfu að þeir tali ís- lensku. Mér finnst algjörlega fráleitt að svo viðkvæm samskipti sem snúast um líðan sjúklings, hugsanlega alvarleg veikindi og erfiða meðferð, fari fram á tungumáli sem jafnvel hvorugur hefur full tök á. Það er verulegt áhyggjuefni og engin spurning í mínum huga að slík samskipti eigi að fara fram á íslensku, eða móðurmáli sjúklings- ins. Möguleikar sjúklingsins til að skilja boðskap læknisins hljóta að vera meiri ef notuð eru íslensk orð og orðstofnar. Dæmi er hið fallega og gagnsæja orð „ofnæmi". Þetta er orð sem allir skilja þó ofnæmis- sjúkdómar séu bæði fjölmargir, flóknir og ekki auðskiljanlegir. Orðið nær engu að síður vel utan um grunnmerkinguna. Önnur orð verður fólk einfaldlega að læra eins og til dæmis krabbamein eða æxli. Annað er nýyrði en hitt er gamalt orð sem fengið hefur nýtt hlutverk, einsog svo mörg önnur gömul og góð íslensk orð." I Orðabankanum er íslenska læknis- fræðiorðasafnið geymt, um 35.000 orð, og er langstærsta fag- og fræðiorðasafnið sem þar er inni að sögn Jóhanns Heiðars. „Ég hef átt mér þann draum lengi að endurskoða safnið en þar er talsvert af þýðingum sem mættu betur fara. Sum orðanna eru löng og flókin og hugsanlega mætti finna betri lausn á þýðingum þeirra. Við megum þó ekki gleyma því að oft eru orðin löng og flókin á erlenda málinu en kröfur okkar til einfaldleika og gagnsæis íslenskunnar eru samt mjög miklar. Við viljum helst að íslensku heitin séu stutt, lipur, gagnsæ og auðskiljanleg. Ég var búinn að gera nokkrar tilraunir til að hefja þessa endurskoðun án þess að það tækist, svo haustið 2010 tók ég mér þriggja mán- aða frí frá vinnu til að gera lokatilraun til að hrinda þessu úr vör. Ég vann að þessu hér í húsnæði Stofnunar Árna Magnús- sonar í þrjá mánuði og fannst þetta þá loks vera að takast. í framhaldi af því ræddi ég við formann Læknafélagsins um að endur- vekja orðanefndina og það má segja að það sé sagan á bakvið veru mína hér á þessari skrifstofu." Umfangsmikil endurskoðun iðorðasafnsins Endurskoðun íðorðasafnsins felst meðal annars í því, að sögn Jóhanns, að auka notkunarmöguleika þess og nýta sér möguleika nútíma tölvuleitar betur. „Orðasafnið er að nokkru leyti barn síns tíma og það þrengir alla möguleika þess að ekki er auðvelt að leita í því út frá orð- stofnum, viðskeytum og forskeytum. Það er þó ekki sett upp í stafrófsröð eins og prentaða útgáfan var á sínum tíma. Leita má að hvaða íslensku, ensku eða latnesku orði sem er. Þetta er alltof stórt safn til að hægt sé með fjárhagslegu öryggi að gefa það út í heild sinni á prenti og því er mikilvægt að gera það sem aðgengilegast á vefnum." Auk þessa stóra verkefnis sem heildar- endurskoðun orðasafnsins felur í sér, hefur Jóhann í sumar ásamt orðanefnd- inni unnið að nýju orðasafni um stoðkerfi líkamans sem nú hillir undir útgáfu á. Þetta er ætlað fyrir kennslu í líffærafræði og draumurinn er að gefa út fleiri hefti af sama tagi eftir því sem tilefni eru til. Orðabanki íslenskrar málstöðvar er ekki tengdur stóru leitarvélunum á netinu eins og Google og Yahoo og stafar það að sögn Jóhanns Heiðars af því að forritið sem geymir orðabankann er ekki talið ráða við þá umferð sem tenging við stóru leitarvélarnar myndi skapa. „Það er auðvitað framtíðarverkefni að koma þessu í nútímalegra horf og tengja orðabankann við þau tæki og tól sem fólk er að nota í daglegu lífi sínu í dag. Ég vildi gjarnan sjá þetta efni aðgengilegt í gegnum snjallsíma og spjaldtölvur en það er ekki sjálfstætt verkefni okkar hjá orða- nefnd Læknafélagsins, heldur verður mál- ræktarsvið Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum að hafa forgöngu um það." Er ráðstefna framundan? Alhliða skipulagning ráðstefna og funda Engjateigur 5 1105 Reykjavík | 585-3900 | congress@congress.is | www.congress.is conqress ^REYKJAVÍK 524 LÆKNAblaðið 2013/99
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.