Læknablaðið - 15.11.2013, Síða 39
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Þétt setinn bekkurinn er heilbrigðisráðherra ávarpaði aðalfundinn.
Neikvæð umræða orsök óánægju
Ráðherrann viðraði einnig þá skoðun sína
að neikvæð umræða um heilbrigðiskerfið,
og þá sérstaklega Landspítalann, hefði átt
sinn þátt i skapa það andrúmsloft óánægju
sem ríkti um stofnunina.
„Það hefur verið heldur stormasamt í
kringum heilbrigðismálin að undanförnu,
stóru orðin hafa ekki verið spöruð og
umræðan að mínu viti verið heldur laus-
beisluð á köflum. Ég geri ekki lítið úr þeim
vanda sem við er að fást en ég óska eftir
málefnalegri umfjöllun og legg áherslu á
að við tökumst á við þessi viðfangsefni af
skynsemi með lausnir að leiðarljósi."
Síðar sagði ráðherrann:
„Eins og ég sagði í upphafi
hafa mér þótt umræður um
heilbrigðismál og vanda
heilbrigðiskerfisins nokkuð
glannalegar á köflum og
það finnst mér ekki síst
þegar rætt er um landflótta
fagfólks og launamál. (...
) Það er ekkert nýtt að ís-
lenskir læknar starfi erlend-
is og við vitum að margir
sem fara í sérfræðinám
úti ílengjast þar - sem er í
sjálfu sér ekkert óeðlilegt.
Auðvitað viljum við halda í
lækna og annað fagfólk og
laða það til starfa og það tel
ég að við getum gert með
ýmsu móti."
Ekki var laust við að sumir fundar-
manna tækju brýningu ráðherrans um
ábyrgari umræðu óstinnt upp og töldu
þar jafnvel talað niður til sín þar sem
ábyrg afstaða lækna byggðist á því að lýsa
ófremdarástandi af hreinskilni og fag-
mennsku enda væri ekki hægt að bæta
ástand með jákvæðum lýsingarorðum, þar
þyrftu aðgerðir og auknar fjárveitingar að
koma til fremur en fögur orð.
Ráðherrann kallaði eftir samstarfi við
samtök lækna og kvaðst leggja mikið upp
úr sérþekkingu þeirra og kunnáttu. Var
gerður góður rómur að þeim orðum en í
inngangsávarpi Þorbjörns Jónssonar for-
manns Læknafélags íslands kom reyndar
glöggt fram að lítt hefur verið skeytt um
aðvaranir og ráðleggingar læknasam-
takanna undanfarin ár. Var margítrekað
af fundarmönnum að núverandi ástand
væri ekki nýtilkomið heldur vandi sem til
staðar hefur verið um allangt skeið. Sumir
tóku jafnvel svo djúpt í árinni að segja
ástandið mun verra en lýst hefur verið
og væri það vegna ábyrgðartilfinningar
lækna gagnvart almenningi svo ekki skap-
aðist ótti í samfélaginu. í þeim skilningi
væri umræðan jákvæðari en hún annars
væri, hefði ekkert verið dregið undan.
í svari við fyrirspurn um hvaða mögu-
leika ráðherrann sæi til
bættra kjara lækna, kvaðst
hann ekki vilja tjá sig um
það þar sem hann hefði
ekki aðkomu að samning-
um milli ríkisins og lækna
og kjarasamningar fram-
undan á nýju ári.
f ályktun aðalfundarins
um heilbrigðismál segir
meðal annars:
Aðalfundurinn lýsir yfir
miklum vonbrigðum með
fyrirliggjandi fjárlagafrum-
varp og þykir Ijóst að við
gerð þess Itefur eindregin
ósk þjóðarinnar um að setja
heilbrigðismálin íforgang
verið hunsuð. Fundurinn
lýsir skýlausri ábyrgð á vanda
heilbrigðiskerfisins á hendur
stjórnvöldum.
Snemma beygist krókurinn. ÓlöfBirna Margrétardóttirfulltrúi FAL í stjórn LÍásamt dóttur
sinni, Margréti Birtu Sigurðardóttur, sem æmti hvorki né skræmti mikið en ýmist svaf eða drakk
allan fundinn.
LÆKNAblaðió 2013/99 527