Læknablaðið - 15.11.2013, Page 40
UMFJOLLUN O G GREINAR
HcimiUslæknaniir Sigurbjörn Sveinsson og Katrín Fjeldsted ásamt Þórarni Guönasyni lijartalækni.
Friöbjörn Sigurðsson í ræðustóli.
Áður en ráðherrann hvarf á braut
afhenti Þorbjörn Jónsson honum yfir-
lýsingu 141 læknis búsettum erlendis, sem
ýmist eru í sérfræðinámi eða hafa lokið
því. Þar segir meðal annars: „Við óskum
eftir skýrum línum frá stjórnvöldum hvað
varðar þær aðgerðir sem þau hyggjast fara
í til bjargar Landspítalanum og íslenska
heilbrigðiskerfinu. Fyrir sérfræðilækna
er afar erfið tilhugsun að snúa heima í þá
óvissu sem nú ríkir."
Staðan fimm árum eftir hrun
Fyrri hluti föstudagsins var lagður undir
málþing um afmarkað efni að vanda og að
þessu sinni var yfirskriftin Læknarfimm
árum eftir hrun - hver er staðan og hvað er til
ráða?
Má segja að efni málþingsins hafi verið
í beinu framhaldi af umræðum við ráð-
herrann daginn áður og kom þar margt
fram í framsöguerindum og umræðum að
þeim loknum. Framsögumenn voru fimm
og ræddu efnið útfrá sínu sjónarhorni
og vinnuumhverfi. Friðbjörn R. Sigurðs-
son sérfræðingur á lyflækningasviði
Landspítalans gerði grein fyrir stöðu
lyflækningasviðsins sem mikið hefur verið
í umræðunni undanfarið og reifaði ýmsar
hugmyndir til úrbóta. Hrönn Ólafsdóttir
deildarlæknir á Landspítalanum ræddi
launamál, vinnuaðstöðu og vinnuálag sem
almennir læknir mættu þola og rifjaði upp
ýmislegt sem Félag almennra lækna hefði
lagt til á undanförnum mánuðum til úr-
bóta án þess að ná eyrum stjórnenda spít-
alans. Þórarinn Ingólfsson formaður félags
528 LÆKNAblaðið 2013/99
íslenskra heimilislækna fór yfir helstu
staðreyndir um vanda heilsugæslunnar,
meðal annars hversu margir íbúar höfuð-
borgarsvæðisins væru án heimilislæknis
og hversu marga heimilislækna vantaði til
að hægt væri að bæta úr því ástandi.
Eyjólfur Þorkelsson læknir á Heil-
brigðisstofnun Austurlands varpaði ljósi á
stöðu landsbyggðarinnar og benti á hvað
þyrfti til að laða unga lækna til starfa á
landsbyggðinni. Kristján Guðmundsson
sérfræðingur á Læknastöðinni og formað-
ur samninganefndar LR gerði hækkandi
meðalaldur starfandi lækna á íslandi að
umtalsefni en það væri ein birtingarmynd
þess að ungir læknar skiluðu sér ekki til
starfa nema að hluta að loknu sérnámi
erlendis.
Það vakti athygli að Magnús Karl
Magnússon prófessor og forseti lækna-
deildar kvaðst kinoka sér við að ræða
jákvæðar hliðar íslenskrar læknisfræði
á sviði rannsókna og vísinda. Það mætti
túlka sem óraunsæi við núverandi aðstæð-
ur en hann minnti á hversu stórkostlegir
möguleikar væru á íslandi til að skipa sér
í fremstu röð á sviði ýmissa rannsókna
ef hlúð væri að þeim þætti og gætt vel að
hlutverki Landspítalans sem rannsókna-
og háskólasjúkrahúsi.
Framtíð lækningaminjasafns
Að málþinginu loknu skiptust fundar-
menn upp í vinnuhópa sem gengu frá
ályktunartillögum sem í kjölfarið voru
bornar undir atkvæði fundarins. Gekk það
hratt fyrir sig og allar tillögur nær ein-
róma samþykktar þar til kom að ályktun
um framtíð Lækningaminjasafns í Nesi.
Þar hefur framhald byggingar og umsjár
safnsins verið í uppnámi frá því að Sel-
tjarnarnesbær sagði sig frá þríhliða sam-
komulagi við ríkið og læknafélögin um
byggingu og rekstur safnsins. í kjölfarið
spruttu upp hugmyndir meðal lækna um
nýtingu húsnæðisins og hlutverk lækna-
félaganna og var borin upp tillaga á aðal-
fundinum um að Læknafélag íslands hefði
forgöngu um að tryggja framtíð safnsins.
Stjórn Læknafélagsins taldi að með til-
lögunni væri verið að skuldbinda félagið
um of fjárhagslega og bar fram aðra tillögu
með almennara orðalagi og var hún sam-
þykkt með meirihluta atkvæða. Tillagan er
svohljóðandi:
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn
í Kópavogi 10.-11. október 2013,felur stjórn
félagsins að vinna áfram að málefnum
lækningaminjasafns í anda fyrri verka og sam-
þykkta félagsins en þannig að fjárhag félagsins
og uppbygging og rekstri safns verði með
engum hætti blandað saman.
Fyrirfram hafði verið búist við snarpari
umræðu um þessar tillögur en raunin
varð og þegar ofangreind tillaga hafði ver-
ið afgreidd var eftirleikurinn auðveldur.
Stjórn félagsins var endurkjörin einróma
og að því loknu sleit formaðurinn, Þor-
björn Jónsson, aðalfundinum með þeim
orðum að næsti aðalfundur yrði haldinn á
sama stað að ári.
Yfirlýsing lækna erlendis og ályktanir
aðalfundarins má sjá í heild sinni á heima-
síðu Læknafélags íslands www.lis.is
A