Þjóðlíf - 01.03.1986, Side 4
JLlMilf
Nú þegar 2. tbl. ÞJÓÐLÍFS kemur fyrir augu lesenda
er rétt aö byrja á aö þakka ágætar viðtökur viö hinu
fyrsta. Þær viðtökur hafa sannfært okkur um að ÞJÓÐLÍF
eigi erindi á tímaritamarkaðnum.
Þetta tölublað er nokkur breytt frá hinu fyrsta. Þótt við
höldum fast við þá ritstjórnarstefnu sem við.höfum kynnt
bjóðum við nú upp áfjölbreyttara efni. Síðastatölublað var
nokkuð í þyngra lagi, þótt það hafi komið á daginn að
lesendur hafa ekki látið það aftra sér frá því að kynna sér
efni þess. Nokkur blaðaskrif spunnust út frá einstökum
greinum. Grein Hans Kr. Guðmundssonar um geim-
varnaráætlun Bandaríkjanna vakti mikla athygli. Þá hefur
mikil umræða spunnist í kerfinu vegna viðtalsins við
Þorgils Axelsson tæknifræðing um svokallaða Bókun A-
188. Við teljum okkur því hafa náð þeim tilgangi okkar að
hreyfa við málum og vekja umræður.
Af efni þessa heftis vekjum við fyrst athygli á grein dr.
Svans Kristjánssonar um valdakerfi Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík. Þá er fjallað um hinn siðferðilega vanda sem
læknar, hjúkrunarstéttirog aðstandendursjúklingastanda
frammi fyrir þegar taka þarf afstöðu til þess hvort nýta eigi
alla hugsanlega tækni til að halda lífi í dauðvona
sjúklingum. Skyggnst er á bak við deilurnar um Lánasjóð
íslenskra námsmanna og fjallað er um undirbúning undir
forsetakosningarnar í Bandaríkjunum, en kandidatar eru
þegar farnir að hugsa sér til hreyfings þótt tæp þrjú ár séu
til kosninganna. Bókmenntir, tónlist og leikhús fá einnig sitt
pláss.
Breytingar hafa orðið á ritstjórn blaðsins. ÞJÓÐLÍFI
bættist starfskraftur í lok janúar er Auður Styrkársdóttir
stjórnmálafræðingur kom til starfa sem annar tveggja
ritstjóra tímaritsins. Auður hefur starfað sem blaðakona
við Þjóðviljann og síðar fulltrúi ritstjóra við tímaritið
Mannlíf, en auk þess hefur hún stundað þýðingar og
fræðistörf á sviði félags- og stjórnmálafræði. Við bjóðum
hana velkomna til starfa.
Jón Guðni Kristjánsson.
TfMARITIÐ ÞJÓÐLÍF, 1. tbl. 2. árg. Mars 1986.
Útgefandi: Félagsútgáfan hf., Laugavegi 18A,
pósthólf 1752, 121 Reykjavík, sími 62 18 80.
Framkvæmdastjóri: Ólafur Ólafsson. Ritstjórar:
Auður Styrkársdótlir (sími: 79017) og Jón
Guðni Kristjánsson (sími: 38105). Auglýsinga-
stjóri: Áslaug Jóhannesdóttir. Hönnun og útlit:
Björn Br. Björnsson. Ljósmyndir: Einar Gari-
baldi, Gunnar Elísson og Oddur Ólafsson. Film-
uvinna: Prentmyndastofan hf. Prentun og bók-
band: Prentsmiðjan Oddi hf. Forsfðumynd:
Gunnar Elísson, snyrting: Ólöf Ingóifsdóttir.
SÉRFRÆÐILEGIR RÁÐUNAUTAR:
Efnahagsmál, stjórnmál, sagnfræði, siðfræði:
Birgir Árnason, Gísli Gunnarsson, Helgi Skúli
Kjartansson, Magnús Ólafsson, Svanur Krist-
jánsson, Vilhjálmur Árnason. Orku- og iðnað-
armál: Finnbogi Jónsson. Húsnæðismál: Guðni
Jóhannesson, Ingi Valur Jóhannesson. Líf-
fræði, líftækni: Jakob Kristinsson, Úllar Antons-
son. Eðlisfræði, efnistækni: Hans Kr. Guð-
mundsson. Jarðfræði: Sigurður Steinþórsson.
Læknisfræði, heilbrigðismál: Helgi Kristbjarnar-
son, Helgi Valdimarsson. Tóniist: Aagot Ósk-
arsdóttir, Andrea Jónsdóttir, Tómas R. Einars-
son. Bókmenntir: Árni Sigurjónsson, Þorvaldur
Kristinsson. Leikhús: Hlín Agnarsdóttir.
Ráðunautarnir bera enga ábyrgð á efni og
framsetningu nema sérstaklega sé til þeirra vitn-
að eða þeir skrifi undir nafni.
TÍMARITIÐ ÞJÓÐLlF kemur út sex sinnum á
ári. Áskriftarverð fyrir hálft ár: 490,- kr. Verð í
lausasölu: 198.- kr.
Tvær snjallar
frá BRAUN
Þetta er litla rafhlöðurakvélin frá BRAUN, vélin sem þú
getur sett í hanskahólfið á bílnum, skrifborðsskúffuna og
jaínvel skyrtuvasann. Ótrúlega góð vél miðað við stærð
og verð.
,,System t-2-3“ er nýjasta gerðin frá BRAUN. „Elegant"
rafmagnsrakvél, sem er hljóðlátari og kröftugri en aðrar
gerðir. Bartskerinn og rakhnífurinn geta unnið saman
þegar þú ert með langa skeggbrodda, eða „óþekk" hár.
Aðalumboð: Verslunin Borgartúni 20