Þjóðlíf - 01.03.1986, Blaðsíða 14
auk þess að hafa meirihluta í
fulltrúadeildinni sé staða dem-
ókrata sterk í fylkisstjórnum og
borgarstjórnum um öll Bandarík-
in. Þá er þess að gæta, að repú-
blikanar töpuðu 26 þingsætum í
kosningunum 1982, þráttfyrir
miklar vinsældir Reagans
forseta. „Demókratar þurfa ekki
að etja kappi við Reagan aftur,
og 1988 . . . þarf frambjóðandi
repúblikana að horfast í augu við
þá staðreynd að repúblikanar
hafa haldið um stjórnartauminn í
samfellt átta ár,“ sagði Wicker.
Síðustu forsetakosningar
kunna samt sem áður að vera
boðberi vissra breytinga á því
hvernig kjósendur greiða at-
kvæði. Tímaritið National Jour-
nal gerði könnun fyrir nokkru
sem sýndi að repúblikanar hafa
unnið fylgi hjá öllum þeim hóp-
um, sem fram að þessu hafa
stutt demókrata. í fyrsta sinn síð-
an kosningaaldur var lækkaður í
18 ár studdu fleiri ungir kjósend-
ur repúblikana en demókrata.
Þrátt fyrir að fjölmiðlar beindu
athyglinni að kynjamismun, sem
Reagan-stjórnin hefur látið við-
gangast, tapaði Mondale 64
prósentum af atkvæðum hvítra
kvennatil forsetans. Eini launa-
hópurinn sem studdi Mondale af
einurð voru kjósendur er hafa
lægri árslaun en 10 þúsund doll-
ara. Aðrir launahópar studdu
Reagan frekar, og hélst fylgis-
aukningin í hendur við hærra
kaup.
Stjórnmálafræðingurinn Ric-
hard Scammon telur, að
persónueiginleikar séu ekki
síður mikilvægir í forsetakosn-
ingum en góður málstaður. „Það
er mjög sjaldgæft, að mikilvæg
málefni hafi úrslitaáhrif á forseta-
kosningar, því frambjóðendur
beggja flokka styðja slík mál-
efni,“ segir hann. „Hvers vegna?
Vegna þess að þeir eru að reyna
að fá fimm milljónir manna til að
kjósasig!"
Sagnfræðingurinn Arthur
Schlesinger Jr. sagði ísamtali
við National Journal nýlega, að
Forseti Banda-
ríkjanna og vara-
forseti: Ronald
Reagan og Ge-
orge Bush. Hver
tekur sæti
þeirra?
14 ÞJÓÐLÍF