Þjóðlíf - 01.03.1986, Blaðsíða 76
c
^kumirsegja, að kreppueinkenni
^^birtist á ytra borði mannlífsins
sem áhersla á ýmis lífsins gæði:
falleg föt, fallegt fólk, fallega (og
dýra) bíla, falleg tímarit og -
glamúrkvikmyndir. Ef svo er, þá
hefur kreppan haldið innreið
sína í kvikmyndaheiminn. Nú eru
væntanlegar að minnsta kosti
tvær söngva- og dansamyndir
þar sem fallegt og spengilegt
fólk þeysist um svið í leit að
frægð og frama, og dýrðinni sem
þessu tvennu fylgir.
0" nnurmyndannaerframleidd
vestur í Bandaríkjunum og
henni leikstýrir Richard Atten-
borough, er við þekkjum meðal
annars vegna kvikmyndarinnar
Gandhi sem hann leikstýrði.
Myndin sú heitir/t Chorus Line
og er væntanleg í kvikmyndahús
þar vestra innan tíðar. Hin ber
nafnið Absolute Beginners,
framleidd í Bretlandi og henni
leikstýrir enginn annar en Julien
Temple, er fyrst gerði garðinn
frægan í hljómsveitinni Sex Pist-
ols. I þessari mynd fer kappinn
Davie Bowie með eitt af aðal-
hlutverkunum og þykir hafa unn-
ið eitt leikafrekið enn. Margir
muna eflaust enn eftir Bowie úr
myndinni Madurinn sem féll til
jarðar, sem sýnd var í sjónvarp-
inu ekki alls fyrir löngu, en í nýju
myndinni leikur hann allt aðra
manngerð.
A Chorus Line er gerð eftir
vinsælu stykki, sem gengið hef-
ur á Broadway allt frá árinu 1975
við miklar vinsældir, og er
reyndar einn vinsælasti söng-
leikur sem þar hefur verið settur
76 ÞJÓÐLÍF