Þjóðlíf - 01.03.1986, Blaðsíða 53
Verslunarskólans hafa þann tilgang einan aö
mennta fólk til starfa viö einkaverslunina, sem
alltaf væri andstæð samvinnuhreyfingunni - auk
þess sem sú hagfræði sem kennd var viö Versl-
unarskólann væri.....í vil auðsöfnun einstakra
manna án sérlega nákvæms tillits til hagsmuna
almennings."
Af 39 kaupfélagsstjórum sem nú gegna störf-
um í landinu eru nú 24 fyrrverandi nemendur
Samvinnuskólans. Hjá Sambandinu eru sam-
vinnuskólamenn auðvitaö einnig starfandi og má
þar nefna Magnús Friðgeirsson núverandi fram-
kvæmdastjóra Búvörudeildar, og Ómar Jóhanns-
son forstjóra Skipadeildar.
Nemendur Samvinnuskólans koma í miklum
meirihlutafrá landsbyggðinni. Samkvæmt upp-
lýsingum Jóns Sigurðssonar skólastjóra er um
þriðjungur nemenda af Reykjavíkursvæðinu og
Suðurnesjum, en 2/3 frá öðrum landshlutum.
Margir nemendur hefja nám við skólann tiltölu-
lega seint, eða á aldrinum 25-35 ára, eftir að hafa
starfað um skemmri eða lengri tíma hjá kaupfé-
lögunum eða öðrum samvinnufyrirtækjum. Til
viðbótar við námið í Samvinnuskólanum hafa
margir nemendur í gegnum tíðina stundað svo-
kallað starfsnám, en það er fólgið í því að þeir eru
sendir til starfa vítt um landið í tvö ár og kynnast
þannig aðstæðum og öðlast reynslu í samvinnur-
ekstri. Þá fara margir nemendur Samvinnu-
skólans í framhaldsnám, ýmist til Bretlands eða
Danmerkur.
„Samvinnuhreyfingin verður að fylgjast með
tímanum eins og aðrir," sagði Jón Sigurðsson
skólastjóri í samtali við ÞJÓÐLÍF. „Auðvitað verð-
ur hún að ráða til sín sérfræðinga á hinum ýmsu
sviðum. Hún menntarekki sjálf viðskiptafræð-
inga eða lögfræðinga. En þetta á ekki að þurfa að
þýða það að félagslegi þátturinn gleymist." Jón
sagði að miklar breytingar væru fyrirhugaðar á
Samvinnuskólanum næstu árin, skólinn yrði
hækkaður upp í skólakerfinu og komið yrði á fót
eins árs námi í samvinnu- og rekstrarfræðum eftir
stúdentspróf. Þannig myndi skólinn reyna að
koma til móts við kröfur tímans.
„Ég er ekki á móti menntun," sagði Ólafur
Friðriksson kaupfélagsstjóri á Sauðárkróki. „En
yfirsýn er mikilvæg í þessu sem annars staðar í
þjóðfélaginu. Samvinnuhreyfingin máekki stjórn-
ast af sérfræðingum. í þessu efni verður að finna
einhvern meðalveg, svo hægt sé að binda endi á
þessa árekstra sem nú eiga sér stað. Ræturnar
mega ekki þorna, þá visnar allt tréð.“
Hermann Hansson á Höfn tekur líkt til orða.
„Menn verða að þekkja uppruna sinn,“ segir
hann. Hann segir bilið milli Sambandsins og
kaupfélaganna e.t.v. vera að breikka. „En ef gjá
er að myndast er enginn vandi að brúa hana. Það
þarf að vanda til mannaráðninga þannig að þessi
tengsl haldist, og það þarf að senda háskóla-
mennina út á land svo að þeir kynnist undirstöð-
unni. Á sama hátt má senda reynda menn utan af
landi til starfa hjá Sambandinu fyrir sunnan.
Þannig má koma í veg fyrir skilningsleysi á báða
bóga.“
Örnólfur Örnólfsson
Bakarameistari að
mennt, en starfaði m.a.
sem verslunarstjóri í hús-
gagnaverslun áður en hann
gerðist verksmiðjustjóri
kexverksmiðjunnar Holt
1978. Kexverksmiðjan er í
eigu Sambandsins. Hætti
síðar störfum hjá samvinnu-
hreyfingunni. Hefurstarfað
fyrir Framsóknarflokkinn í
Garðabæ og í Reykjanes-
kjördæmi.
Þórður Ingvi Guð-
mundsson
MA-próf í stjórnsýslu-
fræðum frá Ontario í
Kanada 1980. Réðst síðan
til starfa í heilbrigðisráðu-
neytinu og síðar félags-
málaráðuneytinu. Ráðinn
framkvæmdastjóri Sam-
vinnusjóðs íslands og
fjármálastjóri Marels 1984.
Var félagsmaður í Alþýðu-
bandalaginu en gekk í
Framsóknarflokkinn í byrjun
þessa áratugar.
Eysteinn Helgason
Viðskiptafræðingurfrá HÍ
1973. Framkvæmdastjóri
Sölustofnunar lagmetis þar
til hann gerðist fram-
kvæmdastjóri Samvinnu-
ferða-Landsýn 1977. Hóf
störf hjá lceland Seafood
Corp. í Bandaríkjunum
1983 og tekur við sem fram-
kvæmdastjóri þar af Guð-
jóni B. Ólafssyni, verðandi
forstjóra Sambandsins.
Árið 1972 var hann endur-
skoðandi Vöku, félags lýðr-
æðissinnaðra stúdenta,
ásamt Þorsteini Pálssyni,
núverandi formanni Sjálf-
stæðisflokksins.
Esther Guðmundsdóttir
Lauk BA-prófi í þjóðfé-
lagsfræðum frá HÍ1975.
Starfaði á vegum ríkisskip-
aðrar kvennaársnefndar.
Ráðin skólastjóri Bréfa-
skólans 1977, en sá skóli er
í eigu Sambandsins auk
nokkurra félagshreyfinga
og stéttarsamtaka. Lét af
því starfi. Hefur starfað mik-
ið að jafnréttismálum og
stjórnmálum, m.a. verið for-
maður Hvatar, félags Sjálf-
stæðiskvenna í Reykjavík,
og verið í framboði fyrir
Sjálfstæðisflokkinn.
Tómas Óli Jónsson
Viðskiptafræðingurfrá HÍ
1974. Síðan framhaldsnám
við verslunarháskólann í
Kaupmannahöfn. Síðan
ráðinn hagfræðingur hjá
Skipulagsdeild Sambands-
ins og 1981 ráðinn aðstoð-
arframkvæmdastjóri Véla-
deildar og framkvæmda-
stjóri Bílvangs frá 1984.
Framkvæmdastjóri skrif-
stofu Sambandsins í Ham-
borg frá 1985.
L
ÞJÓÐLÍF 53