Þjóðlíf - 01.03.1986, Blaðsíða 8
YLEGA tók til starfa nýr frétta-
maður hjá sjónvarpinu, eins og
landsmenn hafa væntanlega tekið
eftir. Sú heitir Ólína Þorvarðardóttir,
27 ára gömul, og Reykvíkingur að
ætt og uppruna. Hún tók stúdents-
próf frá Menntaskólanum á ísafirði,
innritaðist að því búnu í íslensku og
heimspeki í Háskóla íslands og lauk
B.A. prófi vorið 1985. Hún er nú
hálfnuð með cand.mag stig í ís-
lensku.
Ólína hefur áður unnið að frétta-
mennsku, var blaðamaður á NT frá
því það var stofnað og þar til Magn-
ús Ölafsson lét af störfum sem rit-
stjóri blaðsins. Hún erfjögurra
barna móðir og er hið yngsta 9 mán-
aða og hið elsta 10 ára.
Áhugamál sín kveður hún vera
.amennsku, bókmenntirog
fréttamennsku. Aðspurð um hvernig
starfið legðist í hana svaraði hún að
bragði: „Þetta er æðislega gaman,
þótt ég hafi nú litla reynslu af þessu
enn sem komið er. En mér finnst
rikja þarna góður andi og það leggst
vel í mig að starfa við sjónvarpið."
Ólína Þorvarðardóttir: Nýr frétta-
maður hjá sjónvarpi.
L 1
að leika í nýrri kvikmynd eftir
hartnær fjögurra ára hlé frá kvik-
myndaheiminum. Myndin ergerð
eftir sögunni Agnes, barn Guðs, en
Leikfélag Reykjavíkur sýndi leikgerð
sögunnar fyrir nokkru eins og marg-
ir muna eftir. Sagan gerist í nunnu-
klaustri, þar sem ung nunna verður
fyrir því óláni að fæða barn - hvað
aldrei skyldi nunnur henda!
Jane leikur þarna sálfræðinginn
sem fenginn ertil að kanna hvort
nunnan unga ersakhæf. Leikkonan
fræga, Ann Bancroft, leikur hins
vegaryfirboðara ungu nunnunnar,
abbadísina í klaustrinu, en sú er
sannfærð um sakleysi Agnesar.
Nunnuna ungu leikur ung og tiltölu-
lega óþekkt leikkona, Meg Tilley.
Leikkonunum þremur þykirtakast
fjarska vel upp og er þegar farið að
spá í nokkra Óskara, þeim og mynd-
innitil handa.
Heilsufríkið Jane Fonda verðurað
keðjureykja í allri myndinni. Hér fá
þær sér smók, abbadísin og geðl-
æknirinn.
8 PJÓÐLlF