Þjóðlíf - 01.03.1986, Blaðsíða 58

Þjóðlíf - 01.03.1986, Blaðsíða 58
. . í samfélagi braskara verðum við að líta á menntunina sem eitt öflugasta tækið gegn því að auðmagnið verði latið ráða í þessu landi. . Haraldur Ólafsson þingmaöur á fundi með náms- mönnum í Háskólabíói 6. febrúar sl. „Námslánakerfið er hluti af menntakerfinu í landinu. Við höfum ekkert að gera við tóma skóla og skólar eru ekki byggð- ir með arðsemissjónarmiði. Við erum að mennta fólk fyrir lýð- ræðið og lífið í þessu landi.“ Guömundur Einarsson þingmaöur á sama fundi. „Sú hugmynd að einfalda og fella niður tekjutillit við út- borgun stangast á við þau sjónarmið sem lögð eru til grundvallar núgildandi lögum. Þetta býður upp á miklu meira brask með lánin. Núna getur sá einn braskað með lánin sem hefur einhverjar duldar tekjur. í öðru lagi þyrfti meiri heildar- fjárveitingu til handa sjóðnum, eða þá að minna kæmi í hlut þeirra sem þurfa í raun á fullri aðstoð að halda. Þá fengju allir eitthvað en þeir sem raunveru- lega þyrftu lanin fengju ekki nóg til að geta stundað sitt nám. Sum atriði í hugmyndum menntamálaráðherra og hans manna um endurgreiðslur skerða hagsmuni sjóðsins að óþörfu. Þetta á t.d. við, að endurgreiðslur myndu skila sér hægar í sjóðinn, ef tekjutillit verður fellt niður.“ Þorsteinn Vilhjálmsson dósent í eðlisfræöi viö HÍ, en hann var lengi stjórnarformaöur LÍN og einn þeirra sem vann aö samningu núgildandi laga. stæðari en annað tiltækt fjár- magn og beri því lægri vexti en almenn lífeyrissjóðslán. „Vegna þess að hagur þjóðfélagsins af háu menntunarstigi er mikill...“ Annarsstaðar í umfjöllun um þessi mál er þess getið að tengsl séu milli hagvaxtar og menntun- arstigs þjóða. Menn greini á um hversu mikil þau séu, enda fari það eftir arðsemi menntun- arinnar! í samtali greinarhöfundar við Eirík Ingólfsson kom fram að það er sameiginleg túlkun beggja að orðið „hagur“ í tilvitn- uninni hér að ofan standi fyrir hagvöxt, eða efnahagslegan ávinning. Það kann að vekja furðu að eina „réttlætingin" sem finnst í þessum gögnum fyrir fjár- veitingum til menntunar er að hún beri með sér efnahagslegan bata. Hvergi er minnst á menn- ingarlegt sjálfsgildi menntunar. Annar „kostur“ vaxtanna kem- ur fram í skýrslu Ragnhildar þar sem segir: „Eftirspurn eftir lán- um byggist á mati viðkomandi einstaklings á því hvort það nám sem hann hyggst stunda hefur það gildi að geta borið kostnað við lánið.“ í Morgunblaðinu bendir blaðamaður á í umfjöllun sinni um fraumvarpsdrögin að lágir vextir af námslánum komi engan veginn í veg fyrir misnotk- un meðan t.d. ríkissjóður bjóði 9 prósent raunvexti af skulda- bréfum. STYRKUR FRÁ STÓRABRÓÐUR í skýrslu Ragnhildar og öllum seinni gögnum kemurfram sú skoðun að námslán séu ekki lán í eðlilegum skilningi þess orðs. Við endurgreiðslur er tekið veru- legt tillit til aðstæðna þess sem borgar, þannig að þeirsem tekið hafa mjög há lán og hafa lág laun að námi loknu borga lánin aldrei að fullu til baka. Hluti láns- ins verður þá styrkur. í þessum efnum er lagt til að skýr greinarmunur verði gerður á lánum og styrkjum. Tryggt verði að námslán skili sér að fullu tii baka. Endurgreiðslurnar verði jafnar árlegar greiðslur sem taka mið af heildarupphæð lánsins, en ekki tekjum lánþega að námi loknu, endurgreiðslu- reglur hertar og innheimtugjald og lántökugjald komi til að mæta kostnaði við lánsviðskiptin. Á hinn bóginn er lagt til að komið verði á námsstyrkjum. Þá. .. ... getur hið opinbera komið inn hvetjandi þætti í langskólanám einstaklinga ... til einstaklinga sem sýna afburða hæfileika og/ eða til nemenda sem skila mikl- um afköstum. Ennfremur mynd- ast þarna tækifæri til að örva um tíma fræðimennsku á ákveðnum sviðum, myndist um slíkt pólitísk samstaða. (Úr Ragnhildar- skýrslu) í þessum orðum kemur mjög skýrt fram vilji til opinberrar mið- stýringar á námsvali. í öðrum gögnum, s.s. því sem birt er úr frumvarpsdrögunum í Morgun- blaðinu, er einungis minnst á námsstyrki til framhaldsnáms og styrki til afburðamanna, auk ferðastyrks sem er við lýði, einn styrkja í núgildandi kerfi. BREYTILEG LÁNS- UPPHÆÐ Þær hugmyndir frumvarps- draganna sem vafalaust gætu haft hvað alvarlegust áhrif á hag námsmanna eru ákvæði um fjár- streymi í sjóðinn. Námsmenn og stjórnendur LÍN hafa undanfarin ár kvartað undan því að löggjaf- inn hafi æ ofan í æ skammtað sjóðnum minna fé en honum er lögum samkvæmt ætlað að út- hluta og fjárleysi svo verið leyst með erlendri lántöku og auka- fjárveitingum. Stór útgjaldaliður sjóðsins eru vextir af erlendum lánum. í greinargerð Árdísar segir um þetta: Hér þarf að brjóta blað. Sam- þykki þingið lág framlög og litlar lánsfjárheimildir til handa lána- sjóðnum hvort sem er til styrkja eða lánadeildar hans verður ráð- herra og stjórn sjóðsins að taka tillit til þess við úthlutun úr báðum deildum hans og þrengja skil- greiningar á láns- og styrk- hæfni. . . Með þessum hætti er sjálfvirkni afnumin og tekin upp markviss stjórn á fjárstreymi til námsmanna. Með þessu er fjárveitingavald- inu gefið frjálst vald til þess að skera lánin niður þegar ekki er handbært fé í ríkiskassanum. Reynslan af fjárlagagerð undan- farinna áratuga er sú, að alltaf er til heldur minna en þarf, og því ólíklegt að þeir blómatímar komi semÁrdís talarum: .. . Samþykki þingið há framlög og miklar lánsfjárheimildirtil handa lánasjóðnum væri hins- vegar unnt að víkka skilgreining- ar á láns- og styrkhæfni. Svo virðist sem þessar hug- myndir hafi farið óbreyttar inn í frumvarpsdrögin. f Mbl. 6. febr. bendir Sigurbjörn Magnússon á þann möguleika, að þegar fram- lög væru lág mætti....t.d. fækka lánshæfum sérskólum." Einhverjum kann að detta í hug 58 þjóðlIf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.