Þjóðlíf - 01.03.1986, Blaðsíða 80
er eins og*
hver annar? i
l
'ngibjörg Sólrún Gísladóttir hefur í
tæp fjögur ár setið í borgarstjórn
Reykjavíkur sem fulltrúi Kvenna-
framboðsins og tíunda hluta Reyk-
víkinga. Allan tímann í minnihluta
inni í Skúlatúni þótt konur séu í
talsverðum meirihluta meðal borg-
arbúa.
Sennilega hefur það ekki hvarflað
að henni fyrir fjórum árum - í árs-
byrjun 1982 - að hún ætti eftirað
hafa pólitík að aðalstarfi næstu árin.
Þá var Solla, eins og hún er kölluð
meðal vina, sagnfræðinemi og bjóst
við því að halda því áfram næstu
árin. Reyndarer hún enn á magist-
ersstigi í sagnfræði en námið hefur
sóst heldur treglega meðfram póli-
tíkinni.
Atburðir vetrarins 1981-82 settu
heldur betur strik í reikning Sólrún-
ar. Kvennaframboðið var stofnað
síðla árs 1981 og kom eins og hvítur
stormsveipur inn í íslenska pólitík.
Ekki kannski síst kvennapólitíkina
sem hafði verið í nokkurri lægð frá
því Rauðsokkahreyfingin var upp á
sitt besta um miðjan síðasta áratug.
Eftir Pröst Haraldsson
Hundruð kvenna gengu til liðs við
Kvennaframboðið og Hótel Vík í
hjarta borgarinnar öðlaðist nýtt líf
um það leyti sem það virtist vera að
geispa golunni.
Árin fjögur hafa verið viðburðarrík
í lífi Sólrúnar, því auk þess að verða
borgarfulltrúi og atvinnupólitíkus
varð hún húseigandi í félagi við
sambýlismann sinn og annað par.
Nú býr hún í tvílyftu timburhúsi vest-
arlega við Bárugötuna, þau Hjör-
leifur Sveinbjörnsson á efri hæðinni
en hitt parið í kjallaranum. Miðhæðin
er sameiginleg, eldhús, borðstofa
og herbergi sem er blanda af stofu
og vinnuherbergi.
Síðast en ekki síst hefur Sólrún
alið tvo syni á kjörtímabilinu. Svein-
björn fæddist skömmu eftir að Sól-
rún tók þátt í afgreiðslu fyrstu fjár-
hagsáætlunar borgarinnar, en
Hrafnkell kom í heiminn í haust og
hamlaði því að Sólrún tæki þátt í
afgreiðslu fjárhagsáætlunar ársins
1986. Hún var í barnsburðarfríi þeg-
ar ég ræddi við hana í endaðan janú-
ar. Já, vel á minnst, þegar hún átti
80 ÞJÓÐLÍF