Þjóðlíf - 01.03.1986, Síða 19

Þjóðlíf - 01.03.1986, Síða 19
flokksins. Þessi stefnuskrá gerði að engu hugmyndir manna um hugsanlega skattahækkun á síðara kjörtímabili Reagans, til að rétta af hallann í þjóðarbú- skapnum. (heild erstefnuskráin mjög íhaldsöm. Lýst er yfir stuðningi við bænahald í skólum og andstöðu við fóstureyðingar - einnig fyrir konur er hafa orðið fórnarlömb nauðgara eða blóð- skammar. Leggurstefnuskráin til að enginn dómari verði út- nefndurtil Hæstaréttar nema hann sé fylgjandi áðurnefndum sjónarmiðum. MARIO CUOMO Lausnari? Mario Cuomo, ríkisstjóri í New Vork, hefur verið talinn líklegast- urforsetaframbjóðandi demó- krata allar götur frá því hann hélt eldheita barátturæðu á flokks- þinginu fyrir kosningarnar 1984. Frá þeim tíma hefur hróður Cuo- mos, sem er 53 ára gamall, aukistjafnt og þétt. Hann hefur haldið fyrirlestra um allt land við góðan orðstír. Nýlega var hann á ferðinni íTexas þar sem hann hélt ræðu, er vakti mikla hrifn- ingu. Margir stjórnmálaskríb- entar höfðu hins vegar haldið því fram, að Cuomo ætti litlu fylgi að fagna þar um slóðir vegna ít- alsks ætternis síns. Reyndar hafa vangaveltur blaðamanna þess eðlis, að frambjóðandi af ítölskum ættum eigi enga mögu- leika á því að verða forseti, kveikt heilaga reiði í brjósti þessa snaggaralega manns og nýlega lýsti hann því yfir að vel gæti svo farið að hann gæfi kost á sér til framboðs - til að sanna að hann hefði jafn mikla mögu- leika og aðrir frambjóðendur. Cuomo hefur verið mikið í sviðsljósinu og á síðasta ári valdi tímaritið Playboy hann einn af 10 kynþokkafyllstu karlmönnum Bandaríkjanna. Stjórnmálasér- fræðingar telja Cuomo einn af hæfustu ræðumönnum sem uppi eru nú í Bandaríkjunum. Þeir segja hann búinn þeirri náð- argáfu að geta sett flókna hluti fram á einfaldan og auðskiljan- legan hátt. Mary McGrory, póli- tískur dálkahöfundur hjá Was- hington Post lýsti Cuomo sem „íhugulum og tápmiklum stjórn- málamanni", sem eigi auðvelt með að ná til kjósenda í fjölmiðl- um - ekki síst í sjónvarpi. RICHARD GEPHARDT Hver er stefnan? Það er jafn erfitt að finna Rich- ard Gephardt stað í pólitíkinni og að henda reiður á því í hvaða átt hann og stuðningsmenn hans eru að reyna að þoka Demó- krataflokknum. Gephardt, sem er 44 ára, kom fram á sjónar- sviðið seint á sjöunda áratugn- um og vakti fyrst á sér athygli með harkalegri gagnrýni á ýmis velferðarmálefni, sem flokkurinn studdi. Síðar sneri Gephardt blaðinu við og styður nú þessi sömu málefni, sem mörg hver eiga undir högg að sækja vegna stefnu Reagans. Gephardt hafði haldið uppi harðri gagnrýni á forystu Demó- krataflokksins er hann var valinn til forystustarfa í flokknum 1984. Nú gegnir hann fjórða mikil- vægasta embætti innan þing- flokksins í fulltrúadeildinni auk þess að vera forseti Leiðtoga- samtaka demókrata. í Leiðtoga- samtökunum eru þingmenn úr öldungardeild og fulltrúadeild og ríkisstjórar. Samtökin hafa það markmið að þoka Demókrata- flokknum nær miðju í bandarísk- um stjórnmálum. Stjarna Gephardts hefur risið hratt, „vegna þess að hann er gáfaður, kemur vel fyrir í sjón- varpi og er örlátur á viðtöl við fjölmiðla," segir pólitískur dálka- höfundur blaðsins The Baltimore Sun. Gephardt hefur einnig gefið sér tíma til að afla sér stuðnings og vinsælda félaga sinna í Dem- ókrataflokknum, einkum yngri kynslóðarinnar. Allt sem Gep- hardt hefur aðhafst undanfarið hefur verið rökrétt skref þess, sem áhuga hefur á forsetafram- boði, þótt hann gefi ekki enn upp hug sinn til þess máls. Gephardt hefur ráðið reyndan ráðgjafa sem aðstoðarmann sinn, en sá starfaði fyrir Gary Hart í kosn- ingabaráttunni 1984. Þá hefur hann stofnað kosningasjóð sem stendur straum af fundahöldum hans um allt landið, auk þess sem demókratar, sem eru að berjast fyrir þingsæti í kosning- unum á þessu ári, hafa fengið fjárframlög úrsjóðnum. HOWARD BAKER I valdaklíkunni? Howard Baker reyndi að ná útnefningu Repúblikanaflokks- ins fyrir kosningarnar 1980, en þá reyndist tímaskortur vera hans versti óvinur. Baker, sem þá var þingflokksformaður repú- blikana í öldungadeildinni, hafði lítinn tíma til að sinna kosninga- baráttu, nema rétt um helgar eins og hann hefur orðað það. Baker hefur lagt þingmennsku á hilluna og nú hefur hann nægan tíma til að berjast fyrir útnefn- ingu, ef hann ákveður að fara í framboð. Baker er 59 ára og var áður þingmaður fyrir Tennessee-fylki. Hann hefur lýst því yfir í fjölmiðl- um að hann hafi áhuga á að verða forseti, einn líklegra fram- bjóðenda. Hann er vel liðinn af fyrrverandi samstarfsmönnum í þinginu og fylgir sömu línu og forsetinn í utanríkis- og varnar- málum. í innanlandsmálum er hann talinn frekar frjálslyndur af repúblikana að vera. Hann er fylgjandi fóstureyðingum, ef líf móður er talið vera í hættu, svo og ef um nauðgun eða blóð- skömm er að ræða. Ólíkt öðrum frambjóðendum repúblikanatel- ur hann nauðsynlegt að hækka skatta til að koma á jafnvægi í þjóðarbúskapnum. Baker á ekki upp á pallborðið hjá „nýja hægri" armi flokksins og telja margir að það geti komið í veg fyrir forsetadrauma hans. Er það mat stjórnmálasér- fræðinga að þessi armur flokks- ins ráði úrslitum um það hvaða frambjóðandi hlýtur útnefningu. Skoðanakannanirsýna, að Baker er sá frambjóðandi repú- blikana sem helst gæti höfðað til demókrata. Staða hans í Suður- ríkjunum er óvenju sterk. Á móti vegur hins vegar að margir telja hann tilheyra „valdaklíkunni í Washington" og margirtelja framkomu hans í sjónvarpi ekki nægilega sannfærandi. Árni Þórður Jónsson stundar fram- haldsnám í fjölmiðlafræðum í Was- hington D.C. í Bandaríkjunum. ÞJÓÐLÍF 19
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.