Þjóðlíf - 01.03.1986, Side 60

Þjóðlíf - 01.03.1986, Side 60
„Ég tel ekki líkur á að þessar tillögur fari í gegn núna en þær gætu komist í gegn eftir næstu kosningar. Ef það kæmi ti! dæmis upp sú staða að það yrði hér samstarfsstjórn Sjálfstæð- isflokks og Alþýðuflokks.“ Hrólfur Ölvisson varaformaöur Stúdentaráös í samtali viö Þjóðlíf. „Mönnum finnast lánin vera of há, - það er alveg eining um það í Sjálfstæðisflokknum. Það er líka skoðun þeirra flokks- manna sem starfa í náms- mannahreyfingunni. En menn eru ekki sammála um það á hvern hátt á að breyta þessu, - þetta hefur enn ekkert verið rætt sérstaklega í þingflokkn- um.“ Friörik Sophusson alþingismaður í samtali viö Þjóðlíf, en hann var einn þeirra sem stóö aö samningu núgildandi laga um LÍN. „Ég er andvígur því að lögunum verði breytt. Lögin eru ramma- lög og þó ráðherra sjái ástæðu til að breyta einhverju og hækka lánin, getur hann gert það án lagabreytinga. Ég geri ráð fyrir því að í þingflokki Framsoknarflokksins séu menn sammála um þetta, Alþýðu- bandalagsmenn líka, og þessi skoðun á áreiðanlega hljóm- grunn inn í þingflokk Sjálfstæð- isflokksins.“ Ingvar Gíslason alþingismaöur og fyrrverandi menntamálaráöherra í samtali viö Þjóölíf. aö hafa t.d. fóstru- og vélstjóra- nema inni annað hvert ár! Einnig í þessum efnum kemur fram sterkur vilji til miðstýringar og trú á góöan ásetning ríkis- valdsins í samskiptum viö þegnana. „VEIKINDI OG ÞESS HÁTTAR . . .“ Fyrr er minnst á að við endur- greiðslur námslána skuli skv. þessum tillögum ekki tekið neitt tillit til tekna lánþega, eins og gert er í núgildandi kerfi. Sömu stefnu skal fylgt við úthlutun lán- anna. Ekkert tillit skal tekið til tekna námsmanns við úthlutun lána. Við núverandi kerfi dragast sumartekjur námsmanns frá láni þegar þær fara yfir þá upphæð sem námsmaðurertalinn þurfa sértil framfærslu. í Ragnhildar- skýrslu er vikið að því félagslega tilliti, sem LÍN tekur við úthlutun lána. Barnafólk og þeir sem eiga tekjulausan maka fá hærri lán, meðan þeir sem eiga tekjuháan maka fá lægra lán. Skýrslan segir: Námsaðstoð verði úthlutað með það aðalmarkmið laganna I huga að....veita íslenskum náms- mönnum fjárhagsaðstoð til fram- haldsnáms við stofnanir. ..“ Þannig vísi stjórn Lín kröfum um aukin „lán“ vegna veikinda o.þ.h. til hins almenna tryggingakerfis í landinu. í bréfi endurskoðunarnefndar- innar til Sverris Hermannssonar er minnst á þennan þátt: Einnig var raett um það að hve miklu leyti bæri að taka tillit til búsetu s.s. þess hvort menn búa í foreldrahúsum eða ekki og var bent á að þessi og jafnvel fleiri atriði byðu upp á að farið væri í kringum lögin eins og þau eru nú. Þá var nefnd sú hugmynd að einfalda mætti útreikning náms- lána ef, auk fyrrgreindra atriða, væri tekin sá háttur að taka tillit til fjölskyldustærðar með einfaldari hætti en nú er. Hér er ýjað að þeirri hugmynd, að ekkert tillit skuli tekið til „ómegðar" eða annarra að- stæðna námsmanns. Það er þó hvergi kveðið skýrt á um þetta. Þannig er þess ekki getið í Morg- unblaðinu, að ákvæði þess efnis sé að finna í frumvarpsdrögun- um. Þar er einungis getið þess ákvæðis, að tekjur skuli ekki skerða námslán. í Mbl. 6. febr. varar Sigurbjörn Magnússon við þessari hugmynd félaga sinna: Það er talið að miðað við þá sem nú taka lán þá spari tekjutillitið um 150 milljónir. Þá eru þeir ekki taldir með sem hafa vellaunaða sumarvinnu og vita að þeir eiga ekki kost á námsláni. Sá hópur gæti verið töluvert stór, e.t.v. 2 - 3 þúsund. Ef tekjutillitinu væri alfarið sleppt og allir ættu kost á láni með um 3% vöxtum, er hætt við að eftirspurnin ykist gífur- lega... MIÐSTÝRING - OG FRJÁLSHYGGJA Hér hefur verið farið yfir helstu atriðin í þeim breytingatillögum sem títtnefndur hópur hefur lagt til. Aðrar tillögur hópsins eru veigaminni og sumt flokkast undir eðlileg leiðréttingaratriði á tæknilegum göllum núverandi kerfis. En þessar hugmyndir líta ekki út fyrir að vera allar frá sömu hendi. Annars vegar örlar á frjálshyggju, þarsem talað er gegn því að tekið verði tillit til tekna og félagslegra aðstæðna við útborgun og endurgreiðslur lánanna. Hins vegar eru á ferð- inni „sovéskar" miðstýringar- hugmyndir eða forræðishyggja þar sem talað er um náms- styrkjakerfi sem verða megi til þess að ríkisvaldið geti stýrt mönnum inn á ákveðnar brautir þar sem reikna má með að þörf sé fyrir ákveðna menntun. Hörð- ustu andstæðingar ríkisafskipta kynnu í þessu samhengi að benda á vanhæfni ríkisvaldsins til þess að sjá slíka þróun fyrir og viðurkenna breytta þróun nógu snemma. Miðstýringarhugmyndirnar eru þó enn sterkari þar sem lagt er til að löggjafinn skammti sjóðnum ákveðna upphæð sem lánsupp- hæð hvers árs skuli svo taka mið af. Höfundar þessarar tillögu virðast trúa blint á markvissa peningastjórn ríkisvaldsins, eins og fram kemur í þeirri fullyrðingu Árdísar að slíkt þurfi..ekki að þýða lakari aðstoð til náms- manna í heild þar sem ekki er vitað hve þingið verður örlátt við að veita sérstakar fjarveitingar til námsmanna". Hvergi er minnst á rétt náms- manna gagnvart ríkisvaldinu, - eða einstaklingsins til þess að stunda nám og fá til þess nauð- synlegt fé. Þess í stað er lagt ti! grundvallar að enginn „þurfi" að hverfa frá námi sökum efna- leysis, - enda efli það hagvöxt- inn að fólk gangi menntaveginn! Bjarni Harðarson er blaðamaður í Reykjavík. 60 ÞJÓÐLÍF

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.