Þjóðlíf - 01.03.1986, Qupperneq 86

Þjóðlíf - 01.03.1986, Qupperneq 86
hafa heyrstinnan úr samtökunum, aö konurgeti varið kröftum sínum beturen í vonlausan slag við Davíð Odds- son. Væntanlega verðurbúið að taka ákvörðun í þessu máli þegar ÞJÓÐLÍF kemur út en Sólrún var spurð um hvað umræðurnar snerust. Sólrún: Eins og er stefnir allt í framboð. Spurningin er hvort það verður í nafni Kvennaframboðsins eða Kvenna- listans. Það má segja að það sé ekkert vit í að halda uppi tveimur apparötum sem almenningur gerir ekki greinarmun á. Af því er bara óhagræði. Á hinn bóginn hefur nafn Kvennaframboðsins ákveðinn sess í huga kvenna, við það eru bundnar ákveðnar tilfinningar. En málið er að konur í Kvennalistanum hafa jafnvel meiri áhuga á framboði en við í Kvennaframboðinu, svo e.t.v. er eðlilegt að framboð í hans nafni verði ofaná. Þjóðlíf: Erþá allur ágreiningur milli lista og framboðs úr sögunni? Sólrún: Það eimir auðvitað eftir af honum. Hann er einkum tilfinningalegur og persónulegur og erfitt að festa hönd á honum. Það eru til konur bæði í Kvennaframboðinu og Kvennalistanum sem telja að það sé stefnumunur á þessum tveimur samtökum. Ég var í þeim hópi sem taldi ekki rétt að bjóða fram tii Alþingis, en nú tel ég fráleitt að standa gegn Kvennalistanum. Það væri að leita uppi ágreiningsefni og leiðir okkur í sama farið og vinstrihreyf- ingin lenti í þegar hún klofnaði upp í ótal flokksbrot, maó- ista, trotta o.s.frv. Fólk á að geta starfað saman þrátt fyrir ágreining, ef hann er ræddur opinskátt. En eins og stendur get ég ekki séð hvað verður ofan á í framboðsmálunum. Þjóðlíf: Hvernig hefurinnra starf Kvennaframboðsins verið ? Hafið þið forystukonurnar sætt svipuðum ásökunum og forystumenn ísumum flokkunum, svo sem um valda- græðgi og nefndasöfnun ? Sólrún: Við höfum reynt að passa upp á að ekki verði til nefndadrottningar í okkar röðum. Reglan hefur verið sú að engin kona sitji í fleiri nefndum en einni. Einu undantekn- ingarnar hafa verið að í stöku tilviki hefur kona verið aðalfulltrúi í einni nefnd og varafulltrúi í annarri. En auðvit- að hefur heyrst sú gagnrýni að sumar konur séu í of mörgum nefndum. Til dæmis þegar Guðrún Jónsdóttir var í borgarráði, þá fékk hún sjálfkrafa sæti í tveimur öðrum nefndum. Við því var bara ekkert að gera, þetta er bundið í samþykktum um stjórn Reykjavíkurborgarog undan því varð ekki komist að borgarráðsfulltrúinn sæti í þessum nefndum, það gat engin önnur kona farið í þær. Mér finnst það vera af hinu góða að þannig sé fylgst með störfum okkar. Hins vegar hefur gengið misjafnlega að skipta út konum í nefndum eins og við höfum viljað. Það er ekki hægt að þröngva t.d. varafulltrúa til að verða aðalfull- trúi, og hjá okkur er ekki slegist um nefndarsætin! Þjóðlíf: Setjum svo að íhaldið missti meirihlutann. Með hverjum mynduð þið starfa efþið lentuð í oddaaðstöðu? Sólrún: Það myndi ráðast af málefnunum. í slíkri stöðu myndum við setja ákveðin skilyrði fyrir samstarfi. Ef ekki yrði gengið að þeim teldum við forsendur fyrir samstarfi vera brostnar. Þjóðlíf: Hveryrðu skilyrðin? Sólrún: Við myndum krefjast endurmats á störfum þeirra kvenna sem starfa hjá Reykjavíkurborg, stóraukinn- ar uppbyggingar dagvistarstofnana, bygginga leiguíbúða og aukinna áhrifa íbúasamtaka á stjórn borgarinnar. Þetta eru helstu skilyrðin. Þjóðlíf: Hvað með þig persónulega, - gætirþú hugsað þérað taka upp meirihlutasamstarf með íhaldinu? Sólrún: Nei, ég hef ekki áhuga á að starfa með Davíð Oddssyni, og ég held að það sé nokkuð útbreidd skoðun hjá okkur. Þó ekki væri vegna annars en alls þess sem við höfum orðið að þola af hans hálfu, bæði pólitískt og per- sónulega. Það gæti svo sem vel verið að við hefðum sömu afstöðu til Sigurjóns Péturssonar ef hann hefði verið í meirihluta, ég veit það ekki. En ég sé ekki að við eigum neina samleið með íhaldinu. Mitt pólitíska uppeldi miðar allt að því að slást við íhaldið. Ég vandist á það í Stúdentaráði. Og það stressar mig minna að rífast í borgarstjórn en innan Kvennaframboðs- ins. Þjóðlíf: Ermikið rifistþar? Sólrún: Nei, alls ekki, en auðvitað koma upp ágrein- ingsmál þar eins og á öllum góðum bæjum og þá er kannski tekist á um ólík sjónarmið. Ég er bara því marki brennd, eins og margar konur, að taka ágreiningsmál mjög nærri mértilfinningalega. Þjóðlíf: En hvað um aðra flokka?Hvernig hefursam- komulagið verið? Sólrún: Það hefur ekki verið formlegt samstarf hjá minni- hlutaflokkunum, en við hringjumst oft á til að sameinast um bókanir. Samstarfið hefur gengið þokkalega nema hvað gætt hefur nokkurrar togstreitu milli okkar og Alþýðubanda- lagsins. Hún stafar e.t.v. af því að Alþýðubandalagið hefur litið á sig sem leiðandi afl í minnihlutanum, en við ekki verið tilbúnar að hlíta því. Við höfum stundum varpað skugga á þau og kannski stolið senunni sem andófsafl í borgarstjórn. Það hefur svo ekki bætt úr skák að Davíð hefur strítt þeim á því. Þjóðlíf: Dæmi? Sólrún: Þegar aðild borgarinnar að ísfilm var til umræðu neituðum við að taka trúnaði um svo stórpólitiskt mál. Við töldum trúnaðinn engum þjóna nema íhaldinu, en Alþýðu- bandalagið neitaði að vera með okkur í því. Þjóðlíf: Þessi togstreita sem þú nefndir, erþetta slagur umatkvæði? Sólrún: Milli kosninga er ekki verið að slást um atkvæði. Þetta er frekar spurning um „eignarrétt" á ákveðnum mála- flokkum. Þjóðlíf: Stundum hlýturþað að flökra að þér að þetta puð í borgarstjórn, sem bersvona lítinn árangur, sé dálítið leiðinlegt? Sólrún: Stundum finnst mér það hundleiðinlegt! Vissu- lega er þreytandi að fá ekki viðurkenningu fyrir það sem maður gerir. En ég hef gaman af slagnum að vissu leyti, því get ég ekki neitað. Ég er hins vegar ekki á þeirri skoðun að starf okkar hafi borið lítinn árangur. Þvert á móti finnst mér að okkur hafi tekist að vekja upp umræðu um kvennamál og kvennabar- áttu og færa hana inn í sali borgarstjórnar. Sjónarmiðum kvenna er ekki tekið þar lengur eins og um sé að ræða hagsmuni Marsbúa, en það var óneitanlega sú tilfinning sem maður hafði fyrst. Það, að þessi sjónarmið heyrist á borgarstjórnarfundum, held ég að auðveldi konum í stjórnmálaflokkunum að taka upp þessi mál á sínum vett- vangi. Eyru karlanna eru farin að venjast málflutningi kvenna. Þjóðlíf: Mérersagtað sumir fulltrúarhinna minnihluta- flokkanna semji bak við tjöldin við meirihlutann um að þoka málum áleiðis, sem ekki hefurgengið á borgarstjórnarfund- unum. Hafiðþið reynt að fara þessa leið? Sólrún: Nei, við höfum ekki stundað neitt baktjalda- makk, enda erum við ekki í neinu kallfæri við íhaldið. Það eru ákveðin óformleg tengsl á milli karlanna og þeir geta t.d. rættsaman ájafnréttisgrundvelli. Ég veitekki hvernig þau samskipti fara fram og hef reyndar engan áhuga á þeim. Ég get ekki rætt við Davíð á jafnréttisgrundvelli, það er óhugsandi. Það er ekki bundið persónu Davíðs heldur höfum við svo ólíka reynslu og hugmyndir um hlutina. Ég vil heldur ekki að hann eigi neitt inni hjá mér. Þjóðlíf: Að lokum, Sólrún, ætlarðu að gefa kost á þér aftur ef til þín verður leitað ? Sólrún: Ég veit það ekki. Ég hef í sjálfu sér ekki áhuga á að sitja áfram í borgarstjórn og myndi gjarnan vilja takast á við önnur verkefni. En ef sú staða kæmi upp, að engin þeirra sem borið hafa hitann og þungann af starfinu á þessu kjörtímabili gæfi kost á sér, myndi ég hugsa málið aftur. Það verður einhver að halda áfram svo reynslan skili sér í starfinu. En þetta ræðst af uppstillingunni. 86 ÞJÓÐLÍF
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.