Þjóðlíf - 01.07.1988, Blaðsíða 13
INNLENT
ngum
✓
Jón Asgeir
Sigurðsson fylgdist
innanbúðar með
aðgerðum
bandarískra
Grœnfriðunga þegar
þeir hertóku
Jökufellið:
þarna í Glocester var í fullu starfi hjá sam-
tökum Grænfriðunga, annaðhvort á prós-
entum við það að safna peningum, rann-
sóknarstörf eða að skipuleggja mótmælaað-
gerðir. Flest voru búsett á austurströnd
Bandaríkjanna, þar á meðal í höfuðborginni
Washington. Nokkrir voru með háskólapróf
í líffræði eða félagsvísindum. Ýmsir sögðu
sögur af svaðilförum við klifur upp skýja-
kljúfa til að koma fyrir mótmælaskiltum eða
hlekkja sig fasta, eða við önnur mótmæli
gegn mengun. Einhver minnti á að Græn-
friðungar væru „neptúnsk'* samtök, þau
hefðu alla tíð lagt megináherslu á það að
vernda lífríki sjávar.
Um miðnættið gengu menn til náða, lágu á
gólfum og í rúmum á nokkrum samliggjandi
herbergjum. Campbell Plowden, sem ásamt
Randy Jones stjórnaði aðgerðunum, ræsti
mig tveimur tímum áður en von var á Jökul-
fellinu. Þá voru Grænfriðungar komir á stjá
og voru að gera klárt í bátana. Þeir höfðu
flutt fimm gúmbáta í stórum flutningabfl til
Glocester og voru að ræsa utanborðsmótor-
ana. Síðan var siglt niður eftir ánni sem hót-
elið stendur við og haldið út á höfnina í
Glocester.
Grænfriðungar höfðu fylgst með ferðum
Jökulfellsins og vissu að ekki væri ætíð staðið
við tímasetningar. Þeir vildu ekki missa af
skipinu, svo að það var beðið rúmlega
klukkustund í höfninni. Á meðan fylgdist
njósnahópur með ferðum skipsins á ytri
höfninni og var í talstöðvasambandi við
gúmbátamenn.
Skipuleggjendur höfðu fylgst með skip-
inu, þegar það hafði áður komið til Glocest-
er og séð hvernig áhöfnin reisti bómurnar á
Meðferðis voru stórir mótmælaborðar gegn innflutningi á íslenskum fiski meðan á
hvalveiðum stæði.
skipskrönunum tveimur áður en lagst var að
bryggju. Ætlunin var að taka kranana tvo
traustataki, læsa uppgönguleiðum, festa
fjallgönguvaði á milli bómanna og hanga
þannig yfir lestum Jökulfellsins. Með því
móti yrði ógerlegt að skipa upp úr lestum
skipsins.
Um morguninn höfðu nokkrir liðsmenn
bæst við, þar á meðal gamalreyndur Græn-
friðungur, Flip að nafni. Hann hafði stjórnað
fjölmörgum aðgerðum á austurströndinni,
þar sem aðallega var ráðist á gúmbátum gegn
mengun frá iðnverum. Læðast Grænfriðung-
ar í skjóli nætur og troða töppum upp í túlann
á ræsum til þess að hindra að mengandi frá-
rennsli komist í vötn og hafið. Flip minnti
helst á herforingja þegar hann spurði grimmt
um stöðu undirbúnings skipstökunnar og
gerði ýmsar athugasemdir, sem voru þegar í
stað teknar til greina.
Mér varð smám saman ljóst að þarna voru
að verki einarðir, harðskeyttir atvinnumenn
sem undirbjuggu aðgerðirnar af kostgæfni.
Campbell lagði reyndar áherslu á það, að
þau mundu forðast að meiða menn eða valda
skemmdum á eignum. Átta manns færu um
13