Þjóðlíf - 01.07.1988, Síða 24
ERLENT
Bretland
Deilt um
atvinnu-
leysistölur
Norman Fowler í gervi Nelson flotaforingja. Hann ber atvinnuleysissjónaukann upp
að blinda auganu og segir: „Ég sé enga heri atvinnulausra".
Um þrjár milljónir manna hafa enga atvinnu
í Bretlandi en um þessar mundir er meira
rætt um fjölda þeirra en vanda.
Atvinnuleysi í Bretlandi hefur minnkað á
síðustu tveimur árum og er ástæðan einkum
sú að breskur efnahagur hefur dafnað vel.
Um þetta er ekki deilt. Ríkisstjórnin birti
hins vegar nýverið tölur um atvinnuleysi sem
gagnrýndar hafa verið. Samkvæmt tölum at-
vinnumálaráðuneytisins voru 800 þúsund
færri atvinnulausir í maí síðastliðnum en í
sama mánuði 1986 og um 500 þúsund færri en
á sama tíma og í fyrra. Ef marka má þessar
tölur þá er atvinnuleysi í Bretlandi nú um
9,5%, fjóru og hálfu prósenti minna en þegar
ástandið var sem verst fyrir um tveimur ár-
um. Til samanburðar benti breski atvinnu-
málaráðherrann, Norman Fowler á, að í
Frakklandi Mitterands væri atvinnuleysið
um 10,5%.
Ríkisstjórnin hefur margoft verið gagn-
rýnd fyrir þær aðferðir sem hún notar við að
mæla atvinnuleysi. Hún miðar einungis við
þá einstaklinga sem þiggja atvinnuleysisbæt-
ur. Á undanförnum árum hefur þeim ein-
staklingum fækkað af fleiri ástæðum en
þeirri að þeir hafi fengið atvinnu. Breytingar
hafa verið gerðar á atvinnuleysisbótakerfinu
sem hafa haft þau áhrif að erfiðar hefur
reynst að fá bætur með þeim afleiðingum að
færri hafa fengið þær.
Efnahags- og framfarastofnunin, OECD,
mælir með öðrum aðferðum til þess að finna
fjölda atvinnulausra. Væri þeim aðferðum
beitt kæmi í Ijós að atvinnulausum hefði
fækkað um einungis fjórðung af því sem hið
opinbera heldur fram, OECD telur að væn-
legasta leiðin til þess að finna fjölda atvinnu-
lausra sé að spyrja stórt úrtak atvinnubærra
manna um stöðu sína. Richard Layard, pró-
fessor við London School of Economics, hef-
ur á undanförnum tveimur árum beitt að-
ferðum sambærilegum við þær sem OECD
mælir með. Samkvæmt niðurstöðum hans
fækkaði atvinnulausum frá maí ’87 til maí ’88
um 127 þúsund en ekki 500 þúsund eins og
ríkisstjórnin heldur fram. Layard hefur einn-
ig bent á að séu sömu aðfeðir notaðar við að
telja atvinnulausa nú og fyrir tveimur árum
þá hafi þeim ekki fækkað um 800 þúsund, á
sama tíma, heldur 580 þúsund.
Á meðan flestir fagna þeim árangri sem
ríkisstjórn Thatchers hefur náð að undan-
förnu í baráttunni gegn atvinnuleysi þá eru
margir sem spyrja af hverju hún beri ekki
saman sambærilegar tölur og sýni hinn raun-
verulega árangur. Er hún e.t.v. að draga
athyglina frá aðalvandanum sem er líf og
hamingja þeirra um þriggja milljón einstak-
linga sem enn ganga atvinnulausir?
ÁF
24