Þjóðlíf - 01.07.1988, Page 27
ERLENT
ÍJprte Maria Bjarnov úr SF í Danmörku kveður klámandstæöinga gera alitof mikið úr
vUundaráhrjfgm klámsins. Sjálf noti hún slíkt sem örvun...
ekki hvað síst samvinnuhreyfingarinnar)
hafi óskað eftir því að svokölluð karlablöð
séu ekki til sölu í verslununum og hefur þeim
orðið nokkuð ágengt. Einnig hefur þess orð-
ið vart hér í Lundi að kaupmenn hafa orðið
við tilmælum um að hafa blöð þessi ekki í
sýningargluggum verslana sinna.
En hvað svo sem líður deilum um klám og
áhrif þess virðast sænskir dómstólar hallast
að því að þau séu heldur skaðleg. í þeim
undarlegu réttarhöldum yfir læknum tveim
ásökuðum um morð, sem nokkuð hefur
verið fjallað um hér í Þjóðlífi hefur það nú
gerst að rétturinn hefur fallist á að lögð verði
fram sem sönnunargagn myndbönd sem
fundust á heimili annars læknanna. Mun þar
vera á ferðinni heldur suddalegt ofbeldis-
klám og vill ákærandinn með sýningu þeirra
undirstrika „pervert" eðli læknisins og þá
jafnframt undirbyggja þá skoðun að manni
með slíkar tilhneigingar sé til alls trúandi. Er
ákvörðun réttarins mjög umdeild og þeirri
spurningu hefur verið varpað fram hvort það
skuli teljast manni, sökuðum um kynferðis-
afbrot gagnvart börnum, til sektar ef hjá
honum finnst eintak af Lolitu Vladimirs
Nabakovs.
Lundi 17. 6.1988/lngólfur V. Gíslason
Öryggi
fyrirtækja
Hefur fyrirtæki
þitt orðið fyrir
innbroti,
skemmdum
sökum vatns
eða eids?
Þurfa vélar og
tæki sem eru í
gangi á
nóttinni
örugglega ekki
eftirlit?
Öryggis-
miðstöðin
veitir þér þessa
þjónustu.
Leitaðu tilboða
þér að kostn-
aðarlausu.
ÖRYGGISMIÐSTÖÐIN
Hamraborg 1, 200 Kópavogi,
sími 641332, box 202-487
27