Þjóðlíf - 01.06.1989, Qupperneq 23
SKÁK
heitir nú Ólafur Ragnar Grímsson og er vita-
skuld alveg óbundinn af loforðum fyrirrennara
síns. Sá er orðinn utanríkisráðherra og — eins
og hvert bam hlýtur að skilja — algerlega
óbundinn af yfírlýsingum sínum sem fjármál-
aráðherra. Málaleitan um 800.000 kr. styrk —
sem nemur u.þ.b. helmingi kostnaðar — er
ekki svarað, málið er „í athugun“.
„Okkur skildist að ráðherra vildi skoða
þessi mál þar sem við hefðum fengið auka-
fjárveitingu fyrr á árinu. Var látið í það skína
að við værum búnir að fá ansi ríflegan skammt
og önnur samtök myndu kvarta ef við fengjum
of mikið og við beðnir um að leggja fram
reikninga okkar og frekari rökstuðning. Hins-
vegar hefur ráðherra ekki látið svo lítið að
ræða þessi mál við okkur sjálfur, þótt bráðum
sé hálft ár liðið frá því að við sendum honum
þetta erindi," sagði Þráinn Guðmundsson for-
seti Skáksambands Islands í samtali við Þjóð-
h'f.
Þögn ráðherra
Skáksambandið fær árlegan styrk frá ríkinu
sem tæplega hrekkur fyrir almennum skrif-
stofukostnaði. Að auki er hefð fyrir því að þau
ár sem Ólympíuskákmót eru kemur framlag
frá tíkinu upp í hluta af kostnaði. Sú fjárveiting
nam í fyrra milljón króna og mun fjármálar-
Fréttamenn ræða við Jóhann
Hjartarson á sigurstundu í Saint
John. Allt gleymt og grafið?
áðherra hafa hnotið um hana þegar fyrrnefnd
styrkumsókn barst til hans. Að sögn Þráins
Guðmundssonar hafa ráðamenn fram að
þessu lagt áherslu á að hafa þennan hátt á
fremur en að Skáksambandið ætti aðild að
ólympíunefnd og fengi fjárstyrk þaðan.
I samskiptum fjárveitingavaldsins og skák-
hreyfíngarinnar hafa því í samkomulagi beggja
aðila komist á vissar hefðir sem ráðherra virð-
ist nú vilja endurskoða. Um það eru allir ásátt-
ir en margra mánaða þögn ráðherra hefur
komið sambandinu í mikinn vanda. Þráinn
Guðmundsson: „Við vorum þeir sakleysingjar
að gera ráð fyrir fjárstuðningi eins og lofað
hafði verið. Tvö stórverkefni á skömmum
tíma á borð við Ólympíuskákmótið og einvígið
í Seattle eru fjárvana samtökum eins og okkar
mjög erfið og ekki annað fyrirsjáanlegt en við
verðum að hætta við ýmis verkefni á næstunni.
Þetta kemur verst niður á unglingunum, þar
sem nú er í vændum Heimsmeistaramót ungl-
inga í Kólumbíu og árleg keppni fjögurra
Norðurlanda í Danmörku. Þangað er okkur
boðið með sveit tíu unglinga, en nú lítur út
fyrir að við verðum að sitja hjá vegna fjár-
skorts.“
Það eru því blikur á lofti í íslenska skák-
heiminum nú um stundir og virðist svo sem
afrek undanfarinna þriggja ára séu fljót að
gleymast. Spyrja má hversu mikilvægt það sé
þessari þjóð að halda sér í hópi tíu bestu skák-
þjóða, að eiga fulltrúa í 8 manna hópi sem
keppir um rétt til að skora heimsmeistarann á
hólm? Má það kosta eitthvað að eiga heims-
meistara í unglingaflokki, Skákmeistara Norð-
urlanda, að vera gósenland skáklistarinnar í
hugum fjölda fólks um allan heim? Eða voru
útsendingarnar frá Saint John forðum ekki
fullt eins skemmtilegar og Júróvisjón hér um
daginn?
Áskell Örn Kárason
TABAC ORIGINAL
Sígildur ilmur
fyrir alla herra alstaðar...
5NYKTIVOS|k
Sundaborg 9, sími 681233
23