Þjóðlíf - 01.06.1989, Qupperneq 30

Þjóðlíf - 01.06.1989, Qupperneq 30
ERLENT Sundrung á hægri vængnum Óvissa um úrslit kosninganna í Noregi í haust. Margir valkostir en áframhaldandi stjórnarþátttaka Verkamannaflokksins líkleg í haust, nánar tiltekið 14. septeniber, kjósa Norðmenn sér nýtt Stórþing. Stóra spurning- in er hver útkoma Framfaraflokksins verð- ur, því flest bendir til að flokkurinn, undir forystu Carl I. Hagen verði í lykilaðstöðu til að ákveða hvers konar stjórn verði í Noregi næstu 4 árin. Undanfarin tvö ár hefur minni- hlutastjórn Verkamannaflokksins, undir forystu Gro Harlem Brundtl- and, stýrt landinu. Áður höfðu borg- araflokkarnir undir stjórn Hægri mannsins Káre Willoch setið í ríkis- stjórn. Fall hennar stafaði af ósætti um ráðstafanir til að hefta þenslu í þjóðfélaginu. Síðar hefur Hægri, nú undir stjórn Jan P. Syse gert ítrekað- ar tilraunir til að ná samstöðu meðal borgaraflokkanna til að fella minni- hlutastjórn Verkamannaflokksins, en án árangurs. Horfurnar á að borgaraflokkunum takist að koma sér saman um raun- verulegan valkost við stjórn Verka- mannaflokksins fara versnandi. Á yfirstandandi kjörtímabili hafa þessir flokkar haft 78 af 157 þingsætum. Vinstri flokkarnir hafa samanlagt 77 og Framfaraflokkurinn er í oddaað- stöðu með tvö þingsæti. flokkurinn ótvíræður sigurvegari kosning- anna. Þá neyddust aðrir flokkar til að horfast í augu við raunveruleikann og taka Framfara- flokkinn með í leikinn og nú tekur flokkur- inn þátt í meirihlutasamstarfi með Hægri í ýmsum sveitarstjórnum. Áður var um það óskráð samkomulag meðal annarra flokka að hundsa Framfaraflokkinn í einu og öllu. Stefna Framfaraflokksins er sérkennileg blanda af róttækri frjálshyggju og henti- stefnu. Formaðurinn er sérlega flinkur við að spila á hvers kyns óánægju meðal kjós- enda og lætur ekkert tækifæri fram hjá sér fara. að Verkamannaflokkurinn sé betur til þess fallinn að stjórna en aðrir flokkar. Á sama tíma hefur Verkamannaflokkur- inn legið undir gagnrýni fyrir að slaka um of á stefnunni og einblína þess í stað á völd og áhrif. Ein af ástæðum þessa kann t.d. að vera sú að flokkurinn hefur að undanförnu oft þurft að aðlaga sig kröfum miðjuflokkanna til að koma málum gegnum þingið. Auk þess eru markaðslögmálin hærra skrifuð nú en áður, líkt og í öðrum evrópskum krataflokk- um. Hægri Hægri er hefðbundinn íhaldsflokkur og hefur alltaf verið höfuðandstæðingur Verkamannaflokksins. Frá því að stjórn borgaraflokkanna féll fyrir tveimur árum hefur flokkurinn ekki náð að festa sig í sessi sem stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn. Meðal annars hefur Jan P. Syse, sem tók við formennskunni af Káre Willoch, ekki náð að vinna tiltrú og traust hinna borgaraflokkanna sem forsætisráð- herraefni. Sömuleiðis er tiltrú hans eigin flokksmanna ekki of mikil, þótt í þeim röðum sé enginn sem séð verð- ur að ógni veldi hans. Flokkurinn hefur ákveðið að gera inngöngu í Efnahagsbandalag Evrópu að kosningamáli. Það gæti hugsanlega orðið til að bæta útkomu flokksins í kosningunum en um leið dregur það úr líkum á stjórnarsetu að kosningum loknum, þar sem Miðju- flokkurinn hefur gert andstöðuna gegn EB að sínu helsta kosningamáli. Jon Michelet er talin ein helsta von norskra regnhlífar- samtaka í kosningum til Stórþingsins næstkomandi haust. Hann er vinsæll maður og á skrautlega fortíð sem sjómaður, blaðamaður, sakamálasaganhöfundur og kommúnisti. Framfaraflokkurinn Samkvæmt skoðanakönnunum gæti þingflokkur Framfaraflokksins stækkað úr því að vera sá minnsti á þinginu með aðeins tvo fulltrúa í það að vera sá þriðji stærsti með 15 til 20 þing- menn. Og allt bendir til að flokkurinn verði áfram í oddaaðstöðu. Framfaraflokkurinn á sér stutta en merki- lega sögu. Upphaflega hét hann Flokkur Andreas Lange og fékk fyrst fulltrúa á þing árið 1973. í kosningunum 1977 féll flokkur- inn út af þingi en 1981 kom hann aftur inn með fjóra fulltrúa. Þá hafði flokkurinn feng- ið nafnið Framfaraflokkurinn og Carl I. Hagen hafði tekið við formennskunni af Lange. Síðustu ár hefur flokkurinn fengið stór- aukið fylgi í skoðanakönnunum og í fylkis- og sveitarstjórnakosningunum 1987 var Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn hefur heldur verið að sækja í sig veðrið að undanförnu eftir hægribylgjuna sem reið yfir Evrópu í byrjun 8. áratugarins. Það hefur ekki verið auðvelt fyrir minni- hlutastjórn að stjórna Noregi síðustu misseri á tímum stöðnunar og samdráttar og nú síð- ast með vaxandi atvinnuleysi. En styrkur stjórnarinnar, og um leið Verkamanna- flokksins, liggur kannski ekki hvað síst í því að andstæðingunum hefur ekki tekist að koma sér saman um aðrar og betri leiðir. Þar með hefur tiltrú almennings um leið vaxið á Kristilegi þjóðarflokkurinn Kristilegi þjóðarflokkurinn er stærstur af þremur miðjuflokkum norskra stjórnmála. Hinir eru Miðju- flokkurinn og Vinstri. Flokkurinn hefur að undanförnu átt í inn- byrðis deilum eftir að ung kona, Kristin Aase kynnti í miðstjórn flokksins hugmyndir sínar um breyttar áherslur varðandi fóstureyð- ingalögin. Andstaðan gegn fóstureyðingum er heilagt mál í flokknum og allt fór í loft upp. Gamlir flokkshestar með Káre Kristi- ansen í broddi fylkingar hlupu upp og Kristi- ansen sem er fyrrverandi formaður hótaði úrsögn úr þingflokknum. Honum þótti sem flokkurinn hefði sveigt óþarflega mikið til vinstri og krafðist þess að dregið yrði úr áhrifum Aase og fleiri ungliða á stefnu flokksins. Allt bendir til að Kristiansen hafi 30
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.