Þjóðlíf - 01.06.1989, Page 40

Þjóðlíf - 01.06.1989, Page 40
MENNING útgáfa af sjálfum mér. Magnús er lögfræð- ingur. Hann er jafnaldri minn. Eftir stúd- entspróf þegar ég hélt að ég kæmist aldrei í kvikmyndaskóla byrjaði ég í lögfræði og ég hef stundum hugsað um það síðan, hvað um mig hefði orðið ef ég hefði verið... hvað á ég að segja? ... ja, svona tempraðri manneskja í geðslagi og klárað lögfræðina mína með bók- færslu og öllu — og gengið inn í embættis- mannakerfið hérna. Hvurslags manneskja væri ég? Og hvernig liði mér? Hvað væri ég að horfast í augu við? Þessar pælingar voru kannski kveikjan að Magnúsi, sem er þá eins konar „alter ego“. Eitt er að fá hugmynd að kvikmynd, annað að skrifa hana og erfiðast er að kvikmynda hana, a.m.k. ef tekið er tillit til peninga. Hvernig gekk að fá fjármagn í Magnúsl — Það var svosem sama aðferð og fyrri- daginn. Það er að segja ég fjármagna hana sjálfur. Ég á hana sjálfur. Þurfti að veðsetja allt sem fjölskyldan á og það sem upp á vant- ar hef ég fengið í styrk úr Kvikmyndasjóði. Og án þess styrks hefði ég ekki ráðið við að gera þessa mynd. Ég hef haft meira svigrúm við gerð þessarar myndar en áður, enda hefði ég ekki nennt að halda áfram á sama hátt og ég hef orðið að vinna til þessa. Það veitir mér enga ánægju lengur að Tilraun til henging- ar. Magnúserleikinn af Agli Ólafssyni. án þess að vera með hamagang og læti og gefa leikurunum kost á því að njóta sín án þess að vera að „tjúna þá upp“ með þeim brögðum sem kvikmyndagerðin hefur yfir að ráða. — Það er skemmtilegt við kvikmynda- gerðina að hún er full af töfrabrögðum og blekkingum. Þetta er blekkingamiðill. John Wayne sálugi fékk Óskarsverð- laun fyrir leik í þessum miðli. Sem ugglaust voru mjög verðskulduð, en mér er til efs að hann hefði unnið til margra verðlauna á leiksviði. En hver veit? í öllu falli fannst mér kyrrlátur og ein- faldur frásagnarmáti henta þessari inynd. Henta Magmísi. Hvers son er Magnús? — Magnús er Bertelsson. Það er náttúrlega sérviska í mér að hafa hann Bertelsson, en mér finnst Magnús vera nokkurs konar önnur 40

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.