Þjóðlíf - 01.06.1989, Page 45

Þjóðlíf - 01.06.1989, Page 45
MENNING „Ég hef alltaf haft góðar taugar til kvenna, misjafnlega eftir tímabilum og aldri, en laðast mikið að þeim. Mér finnst þær heilli en karlmenn", segir Ríkharður Valtingojer m.a. í viðtali við Guðrúnu Túliníus. degi. Það er erfitt að hafa stjórn á „agres- sjónum“ sínum. Ert þú fullur af þeim? — Það eru allir fullir af þeim, annars liti heimurinn allt öðruvísi út. En hvað með árin fyrir 1972, ef þú lítur til baka og hugsar síðan um sjálfan þig núna, ertu allt annar maður? — Nei, sennilega er ég það ekki, en það sem ég hef misst er þessi trú að hægt sé að breyta heiminum. í kringum ’68 fylltist ég von um að hægt væri að skapa betra þjóðfé- lag. Það er ekki af svartsýni að ég segi að það er sáralítið gott af því sem mennirnir gera. Þegar við byggjum hús eyðileggjum við jörð- ina undir. Þar vex aldrei aftur fífill. En hvað með fallegt mannlíf inni í húsinu í staðinn? — Það sprettur alltaf eitthvað upp, en það sprettur ekki alltaf gott upp af góðu. Þróunin er ekki sú í lífinu. Við byrjum ávallt uppá nýtt, hlutirnir endurtaka sig ekki í sömu mynd, heldur í breyttri. Hefur samviskan aldrei plagað þig? — Ég hef alltaf þótt hafa lélega samvisku. Ég sá dálítið snemma í lífinu að það að fá móral og sjá eftir hlutunum var vonlaust og hætti því algjörlega eftir að kaþólsku skóla- árunum lauk. Auðvitað hef ég fengið eitt og eitt kast og fundist ég vera slæmur maður, en ég hætti að hafa móral, tók hann úr sam- bandi. Ef maður hefur ekki rænu á að sjá það fyrirfram, þá er idíótískt að sjá eftir hlutun- um. Þannig er kristnin. Þú ferð að skrifta og hlutirnir eru komnir í lag aftur. Þetta er tóm vitleysa, því þannig verður þú ekki að manni. í íslam safnast sektin saman og ekk- ert er fyrirgefið. Hvernig verðum við að betri mönnum? — Ég vil ekki verða betri maður í einhverj- um einum skilningi, heldur vera í meira sam- ræmi við náttúruna og líkjast frekar ein- hverju dýri. Það má ekki slíta okkur úr sam- hengi við náttúruna. Helgarferð til Hveragerðis er ekki að vera í sambandi við hana. Ég vil reyna að vera sáttur við sjálfan mig. Ég fylgi ekki neinni einni stefnu, ég er ekki í neinum samtökum. Reynsla mín er sú að ég þarf þess ekki. Ég hef enga þörf fyrir slíkt. Ég hef kynnst mörgu misjöfnu, en þar sem rútínan byrjar, eða endurtekningin, hef ég yfirleitt hætt og farið út í eitthvað annað. Ég er háður ákveðnum hlutum. Maður verður að gera eitthvað af sér. Auðvitað á maður ekki alltaf að taka án þess að gefa, en Iífið á að vera spennandi. Ef mér tekst eitthvað ekki hvort sem það er mér að kenna eða öðrum, þá hætti ég. Stundum mjög skyndi- lega. Ég hef þá mjög gjarnan farið yfir í algjöra andstæðu þess sem ég var í eins og að fara frá Akademíunni í Vínarborg á Þorkel Mána á íslandi. í tvö ár rak ég Gallerí Djúp- ið, það var nóg. Þá hætti ég. Ari seinna gerði ég svolítið merkilegt fyrir sjálfan mig. Ég klippti hár mitt og skegg til að eyðileggja þá ímynd, sem ég hafði haft hérna. Allir þekktu mig með síða hárið og skeggið. Þó þetta hafi verið hlægilegt, þá var það alls ekki einfalt. Fólk hætti að þekkja mig. Það hefur áttað sig núna, en einfalt var þetta ekki. En ég á eftir að spyrja þig nieira út í ástina og lífið. — Lífið er númer eitt, að finna að maður sé á lífi. Hvernig fer maður að því? — Með því að vinna. Vinna fyrir sjálfan sig. En það er náttúrlega ekki sama hvernig maður vinnur. Það besta er að geta unnið við að hrinda eigin hugmyndum í framkvæmd. Því miður geta alltof fáir gert það. Ef maður veit ekki hver tilgangur vinnunnar er, ef hún er bara brot af heildinni, þá er hún auðvitað frústrerandi. Við höfum það í okkur að vilja klára ákveðin verk, ganga frá öllu. Ég er í mjög góðri stöðu. Kennslan er alveg dásam- legt starf. Að kenna er mjög mikilvægt. Ef ég mætti mín einhvers myndi ég borga kennur- um mjög hátt kaup til að fá besta fólkið í kennsluna, því hún er það eina sem gildir. Síðan hef ég listina, ég byggi húsið mitt og rækta garðinn minn. Þannig er það að lifa lífinu. Og ástin, hvað með hana? — Hún er náttúrlega mjög mikilvæg, en hún verður alltaf erfiðari og erfiðari. Þegar maður er ungur er það sem maður skilgreinir sem ást mjög auðvelt. Þá verður maður ást- fanginn einu sinni eða oftar í viku. Fer eftir manngerð. En að vera ástfanginn er allt ann- að en að elska. Það er einfalt að verða ást- fanginn, því að það er hægt að verða ástfang- inn af svo mörgu. Maður fær svo marga impúlsa sem kveikja í manni. Að elska er eitt. Maðurelskart.d. manneskjumeð öllum sínum kostum og göllum. En ástfanginn sér maður bara ákveðna hluti, sem maður vill sjá, eða hluti sem eru í tísku á ákveðnum tíma. Vissa fegurðarímynd eða stór brjóst, allt þetta dótarí. Slíkt hefur ekkert að segja um það að elska. Að vísu er þarna viss neisti sem blossar upp, sterk tilfinning, en er yfir- leitt ekki langlífur. Þú hefur oft fundið svona ncista, er það ekki? — Það er sjálfsagt. Ég hef alltaf haft góðar taugar til kvenna, misjafnlega eftir tímabil- um og aldri, en laðast mikið að þeim. Mér finnst þær heilli en karlmenn. í sögunni hafa karlmenn alltaf verið í skítverkum, verið í stnði og drepið aðra, framkvæmt sínar agg- ressjónir. A meðan hafa konurnar gætt elds- ins, matreitt, séð um heimilin og alið börnin upp. Hlutverk kvenna hefur aldrei verið jafn brotið og ömurlegt og karlanna. Samviska kvenna er mikið betri og sterkari. Ég hef mjög mikið álit á konum og held að hérna á íslandi hafi landið gengið vegna kvennanna. Þú sérð að karlarnir eru enn að leika sér. f íslendingasögunum kemur hvergi fram hver hélt búinu gangandi á meðan þeir léku sér í stríðsleikjum, eða voru í skemmtisiglingum úti í nokkur ár. Þannig er það enn. Karlarnir leika sér með bfla og byssur, fundi, öll þessi merkilegheit. En það sem skiptir máli er að 45

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.