Þjóðlíf - 01.06.1989, Blaðsíða 47

Þjóðlíf - 01.06.1989, Blaðsíða 47
HEILBRI Et, drekk, reyk ok ver grannr! Oholl aðferð til að halda kjörþyngd Margir reykingamenn vilja gjarn- an hætta þeim ósið að draga ofan í lungun reyk sem er mettaður alls kyns skaðlegum efnum. Því miður er það svo að margir sem hætta falla og taka upp ósómann á ný. Ýmsar ástæður eru taldar vera fyrir því hversu illa fólki gengur að halda sig frá reyknum. Ein orsökin gæti verið að stöðv- un reykinga leiðir oft til þess að viðkomandi bætir á sig holdum. Viðtekin skýring þess er sú að hinn reykhefti fái sér konfekt- mola eða eitthvað annað fitandi í stað sígarettunnar, hann verði sæknari í sætan og orkuríkan mat. Þetta er þó að sjálfsögðu mjög einstaklingsbundið. Samkvæmt ýmsum nýlegum rannsóknum þyngist fólk þó ekki bara vegna meira áts eða neyslu orkuríkrar fæðu. Samband virð- ist vera á milli reykinga og þyngdar. Þegar þyngd reykinga- manna er borin saman við þyngd jafnhárra og jafngamalla manna kemur í ljós að þeir fyrrnefndu eru að meðaltali 3-5 kg léttari. Þegar þeir hætta að reykja bæta þeir gjarnan þessum kílóum á sig. Niðurstöður dýratilrauna gefa til kynna að það sé nikótínið í reyknum sem hafi áhrif á þyngd- ina. Nikótínið örvar efnaskiptin og þar með brunann í líkamanum og þegar það er fyrir hendi þarf meiri orku til tiltekins verks en ella. En þar með er ekki öll sagan sögð. Það virðist nefnilega vera þannig að þótt reykingamennirn- ir séu léttari þá er dreifing fitunn- ar um líkamann mun óæskilegri ef litið er til hættunnar á hjarta- og æðasjúkdómum. Bæði offita og reykingar eru þekktir áhættu- þættir þessara sjúkdóma en þegar tillit er tekið til beggja þessara þátta er áhættan sem fylgir því að vera 5-10 pundum Kroppadýrkunin í nútímaþjóðfélagi hefur m.a. leitt til þess að fólk veigrar sér við að hætta að reykja. Rannsóknir benda til að reykingafólk sé að jafnaði 3 til 5 kílóum léttara en aðrir. yfir kjörþyngd lítil sem engin miðað við þá sem reykingafólk tekur. Kroppadýrkun er mjög al- menn í nútímaþjóðfélagi og hún verður ekki til þess að hvetja fólk sem hefur tilhneigingu til holda- söfnunar að hætta að reykja. Það er því augljóslega í þágu reyk- ingamanna að breyta viðhorfum fólks til fegurðar. Granna feg- urðardísin missir talsvert af sjarma sínum þegar hrukkur, gulir fingur og tennur koma í ljós, að ekki sé minnst á reykingahóst- ann og hættuna á alls kyns hættu- legum sjúkdómum sem geta hlot- ist af reykingum hennar. Er þá ekki æskilegra að vera með hrein og falleg lungu, eðlilega lita fing- ur og gott þol þó að fyrir það þurfi að greiða þrjú til fjögur aukakíló? -hþ (Byggt á New England Journal of Medicine) Óbeinar reykingar hættulegar Reyklaus dagur sem nýlega er afstaðinn gefur tilefni til hugleið- inga um skaðsemi reykinga. Flestir vita að rekja má lungna- þenibu og lungnakrabbamein að miklu leyti til reykinga og þær auka líkur á hjarta- og æðasjúk- dómum. Niðurstöður ýmissa rannsókna hafa einnig gefið til kynna að reykingamönnum sé hættara við krabbameini í þvag- blöðru, vélinda og leghálsi, enda er tíðni krabbameins í þessum líf- færum hærri en meðat reyklauss fólks. Á undanförnum árum hefur athygli verið beint í síauknum mæli að hættu sem stafar af óbeinum eða þvinguðum reyk- ingum, nauðreykingum. Nýlega birtist í tímariti bandarísku læknasamtakanna skýrsla um rannsókn á tengslum reykinga og leghálskrabbameins. Meginnið- urstöður voru þær að líkur á að fá leghálskrabbamein væru þrefalt meiri meðal kvenna sem reyktu en þeirra sem ekki reyktu. Þessi niðurstaða kemur fáum á óvart. En rannsóknin náði lika til kvenna sem önduðu einungis að sér reyk frá öðrum, — reyk sem mætti nefna aðreyk eða nauð- reyk. Þar kom fram að konur sem önduðu honum að sér í a.m.k. þrjá klukkutíma á sólar- hring áttu jafnmikið á hættu að fá leghálskrabbamein og þær sem reyktu. Konur sem bæði reyktu og sátu í reykmettuðu lofti voru í enn meiri hættu en ef aðeins ann- ar þátturinn var fyrir hendi. Talið er að reykur sem stígur upp frá sígarettu sé mun skaðlegri en sá er kemur úr lungum reykinga- manns og hefur hreinsast (!) þar. Samspil áhættuþátta Læknar hafa lengi gert sér grein fyrir helstu áhættuþáttum leghálskrabbameins. Þeir helstu eru að hefja kynlíf mjög snemma, þegar leghálsinn hefur ekki náð fullum þroska, og fjöllyndi, þ.e. að hafa samfarir með mörgum. Veirur sem valda vörtum á kyn- færum hafa einnig verið taldar mjög líklegar sem orsakavaldur og þær tengjast fjöllyndinu, enda berast þær milli fólks við samfar- ir. En hvernig kemur sígarettu- reykur við sögu hér? Ekki er það ljóst út í hörgul en sennilegt þykir að skaðleg efni í reyknum berist með blóði til vefja í leghálsi og örvi á einhvern hátt veiruna sé hún til staðar þar. -hþ (Byggt á TIME) 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.